Loka Krambúðinni á Húsavík Áróra L Davíðsdóttir skrifar 27. september 2026 12:55 Svanur Valgeirsson er framkvæmdastjóri Krambúðanna, Spar og 10-11. Samsett Krambúðinni á Húsavík verður lokað í lok þessa árs. Framkvæmdastjóri verslana Samkaupa segir alltaf erfitt að taka ákvarðanir um að segja upp starfsfólki en reksturinn hafi reynst erfiður.
Svanur Valgeirsson, framkvæmdastjóri Krambúðanna, 10-11 og Spar, segir húsaleigusamninginn renna út í febrúar og að fyrirtækið sé ekki tilbúið að skuldbinda sig til næstu fimm til tíu ára, enda hafi reksturinn reynst erfiður. Í byrjun árs hafi staðið til að breyta öllum verslunum Krambúðarinnar í verslanirnar Spar, „með það í huga að hlutirnir gætu breyst.“ Á Húsavík er einnig Nettó-verslun en bæði Krambúðin og Nettó eru í eigu Samkaupa. Svanur segir reksturinn meðal annars hafa verið erfiðan vegna návígis verslananna tveggja. „Reksturinn hefur verið krefjandi með aðra búð innan Samkaupa í næsta nágrenni. Við mátum það svo að það væri ekki forsvaranlegt og tókum ákvörðun um að hlúa betur að Nettó,“ segir Svanur. Alls starfi um tíu manns í versluninni, í mismiklu starfshlutfalli og með mislangan starfsaldur. Því verður sagt upp en óljóst er hvort því verði boðið starf í öðrum verslunum Samkaupa og verið sé að meta stöðuna. „Eins erfitt og það er að taka svona ákvörðun um að segja upp fólki var hún nauðsynleg,“ segir Svanur. Lengja mögulega opnunartíma Nettó Mögulega verði einhverjum starfsmönnum Krambúðarinnar boðið starf hjá Nettó en allt sé enn til skoðunar. Þar að auki sé til skoðunar að lengja opnunartíma Nettó á móti og þá gæti verið þörf á fleira starfsfólki. Opið hafi verið í Krambúðinni að jafnaði til klukkan ellefu á kvöldin en í Nettó til klukkan sjö. Krambúðirnar eru þrettán talsins. Þær eru staðsettar á Akureyri, Flúðum, Hólmavík, Húsavík, Laugarvatni, Selfossi, í Keflavík, Reykjahlíð, Búðardal og fjórar á höfuðborgarsvæðinu.
Matvöruverslun Verslun Norðurþing Mest lesið Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Viðskipti innlent Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Sjá meira