Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar 25. september 2026 12:01 Fátt hefur verið meira rætt í efnahagsumræðunni undanfarið en fjölgun starfa hjá hinu opinbera. Tölurnar hafa verið notaðar sem vísbending um að ríkið sé að þenjast út og að opinberi geirinn keppi um vinnuafl við atvinnulífið. Þegar rýnt er í gögnin kemur hins vegar í ljós að myndin er flóknari en oft er látið í veðri vaka og að sú umræða sem af henni hlýst getur verið bæði villandi og ekki til þess fallin að styðja við faglega ákvarðanatöku og samfélagslegan ávinning. Samkvæmt nýrri samantekt fjármála- og efnahagsráðuneytisins fjölgaði stöðugildum hjá ríkinu um 16% frá 2019 til 2025. Um 93% fjölgunarinnar eru í heilbrigðisþjónustu, öryggisþjónustu og kennslu. Heilbrigðisþjónustan ein skýrir 72% fjölgunarinnar. Í öðrum störfum ríkisins, sem eru um helmingur allra ríkisstarfa, var fjölgunin aðeins 2% á sex árum. Með öðrum orðum hefur störfunum ekki fjölgað innan stjórnsýslunnar þrátt fyrir verulegt álag og mikilvægi þess að stjórnsýsla landsins standi traustum fótum. Þeim hefur hins vegar fjölgað í framlínustörfum tengdum því að sinna sjúklingum landsins, löggæslu og kennslu. Þetta er þjónusta sem almenningur reiðir sig á dag hvern. En af hverju hefur orðið fjölgun á fyrrgreindum sviðum? Skýringin er að stórum hluta lýðfræðileg. Landsmönnum fjölgaði um rúmlega 11% á sama tímabili og miðað við íbúafjölda hefur stöðugildum hjá ríkinu aðeins fjölgað um 4%. Það sem vegur þó þyngst er breyting aldurssamsetningar þjóðarinnar. Fólki á aldrinum 70–79 ára hefur fjölgað um 35% frá 2019, meira en í nokkrum öðrum aldurshópi. Eldra fólk þarf meiri heilbrigðisþjónustu og það kallar á fleira starfsfólk og aukna þjónustu. Sú þróun mun halda áfram á næstu árum eftir því sem þjóðin eldist og er mikilvægt að við tökum stefnumarkandi ákvarðanir til þess að mæta þeirri þróun Fleiri þættir skipta einnig máli. Ríkið hefur tekið við hluta öldrunarþjónustu frá sveitarfélögunum, þannig að hluti starfanna er ekki nýr heldur hefur færst á milli stjórnsýslustiga. Þá kallaði stytting vinnuvikunnar einnig á aukna mönnun í heilbrigðisþjónustu og ekki síst í vaktavinnu, þar sem halda þarf uppi þjónustu allan sólarhringinn. Það skiptir einnig máli hvaða tölum er treyst. Hagstofan áætlaði fyrst að ríkisstarfsmönnum hefði fjölgað um 4,7% á einu ári, frá maí 2025 til maí 2026. Eftir leiðréttingu er talan 2,6% og tölur úr launakerfi ríkisins sýna 2,1%. Fyrstu tölur rata gjarnan í fyrirsagnir en leiðréttingarnar síður. Þegar víðtækar ályktanir eru dregnar af bráðabirgðatölum getur umræðan auðveldlega orðið skökk. Aðhald og skilvirkni í ríkisrekstri eru sjálfsögð markmið og ávallt mikilvægt að við leitum leiða til að fara vel með almannafé. En umræða sem byggir á heildartölum án samhengis leiðir okkur í ranga átt. Ef markmiðið er að fækka opinberum störfum þarf að svara því hreinskilnislega hvar eigi að draga úr, hvort sem það er í heilbrigðisþjónustu, löggæslu, skólum eða á öðrum málefnasviðum BHM hefur áhyggjur af stöðunni á almennum vinnumarkaði, þar sem um 40% félagsfólks starfar, og fylgist grannt með þróuninni. Öflugt atvinnulíf og traust opinber þjónusta eru þó ekki andstæður heldur styðja hvort annað. Atvinnulífið þarf menntað og heilbrigt starfsfólk og velferðarkerfið þarf öflugt atvinnulíf til að standa undir sér. Að stilla þessu tvennu upp sem keppinautum þjónar hvorugu. Það er eðlilegt og nauðsynlegt að ræða umfang hins opinbera. Sú umræða þarf hins vegar að byggja á traustum gögnum og taka mið af þeim lýðfræðilegu breytingum sem eru að verða á íslensku samfélagi. Þær breytingar blasa við í tölunum og þær munu móta þörfina fyrir opinbera þjónustu næstu áratugi. Á meðan deilt er um heildarfjölda ríkisstarfa án þess að spyrja hvar þeim hefur fjölgað og hvers vegna, er deilt um keisarans skegg. Raunverulega spurningin er hvernig við ætlum að mæta þörfum eldri þjóðar. Það er sú umræða sem skiptir máli. Höfundur er hagfræðingur BHM. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen Skoðun Skoðun Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Hvenær mun Alþingi setja þegna sína í forgrunn? Sunna Arnardóttir skrifar Skoðun Hugmynd skapar atvinnu Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af hverju verður allt að eins þyngra í skammdeginu? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson skrifar Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson skrifar Skoðun Utanríkisráðherra hefur ekki slíkan rétt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Friðarsúlan er langt frá því að vera friðartákn fyrir náttúruna Kristján Kristjánsson skrifar Skoðun Mikilvægi samstarfs á norðurslóðum Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason skrifar Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver á að gæta varðanna í Róm? Páll Ásgrímsson skrifar Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Betri (umferðar) borg fyrir börn Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvað viðheldur ójöfnuði milli kynslóða á Íslandi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tökum stjórn á framtíðinni Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar Skoðun Er mikið umframboð á fasteignamarkaði? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Spilin sem enginn vill fá Sigríður Eva Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Vöruverðið á vegum úti Benedikt S. Benediktsson skrifar Sjá meira
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun
Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar
Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar
Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar
Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun