Uppselt á opnunarmyndina í tveimur sölum Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 24. september 2026 18:34 RIFF fer af stað með glæsilegri opnunarhátíð í kvöld. RIFF Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík hefst í kvöld, fimmtudaginn 24. september, með sýningu opnunarmyndarinnar The Last First: Winter K2 í Háskólabíói. Uppselt er í bæði sal 1 og sal 2, enda hefur myndin vakið gríðarlegan áhuga.
Logi Már Einarsson, ráðherra menningarmála, setur hátíðina, sem er sú 23. í röðinni, í kvöld, og Margrét Örnólfsdóttir, handritshöfundur og tónlistarkona, flytur hina árlegu hátíðargusu. Tveir af heiðursgestum RIFF 2026, leikstjórinn David Leitch og framleiðandinn Kelly McCormick, verða einnig viðstödd í kvöld. The Last First: Winter K2 fjallar um tilraun íslenska fjallgöngumannsins Johns Snorra Sigurjónssonar til að verða fyrstur manna til að ná tindi K2 að vetri til. Myndin varpar ljósi á einstakan leiðangur hans, óbilandi staðfestu og þær gríðarlegu áskoranir sem fylgja því að takast á við eitt hættulegasta fjall heims við erfiðustu mögulegu aðstæður. Fjölskylda Johns Snorra og vinir verða viðstödd sýninguna í Háskólabíó í kvöld. Glænýjum 4K-skjávarpa hefur verið komið upp í Háskólabíó, sem tryggir að sögn skipuleggjenda framúrskarandi skerpu og myndgæði í hæsta gæðaflokki. Kvikmyndin og stórbrotið landslag K2 fá þannig að njóta sín til fulls á hvíta tjaldinu. „Það hefur verið leiðarljós RIFF frá upphafi að sýna áhugaverðar og framsæknar kvikmyndir í hæsta gæðaflokki. Að sýna þær í allra bestu mögulegu myndgæðum er draumur sem rætist í kvöld. Ég hlakka ósegjanlega til að sjá hið magnaða sjónarspil sem opnunarmyndin er í þessum myndgæðum og gestir kvikmyndahátíðar eiga sannarlega von á góðu,“ segir Hrönn Marínósdóttir stjórnandi RIFF.
RIFF Kvikmyndagerð á Íslandi Kvikmyndahús Bíó og sjónvarp Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Fleiri fréttir Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ Sjá meira