Innlent

Vaktin: Verk­falls­að­gerðum flug­virkja af­lýst

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Á milli 200 og 300 farþegar biðu eftir því að fá nánari upplýsingar frá Icelandair.
Á milli 200 og 300 farþegar biðu eftir því að fá nánari upplýsingar frá Icelandair. Vísir/Anton Brink

Verkfall flugvirkja stóð í um ellefu klukkustundir en var aflýst rétt fyrir hádegi. Icelandair aflýsti fjölda flugferða áður en Flugvirkjafélag Íslands og Icelandair komust að samkomulagi. Fylgst var með gangi mála í vaktinni á Vísi.

Alls var 26 flugferðum aflýst frá Keflavík til Evrópu og til baka auk fimm flugferða innanlands. Aðgerðin hafði áhrif á hátt í 5500 farþega samkvæmt tilkynningu frá Icelandair.

Verkfallið var boðað í síðustu viku og eru verkfallsaðgerðirnar ótímabundnar. 88,3 prósent flugvirkja sem tóku þátt í atkvæðagreiðslunni um verkfallsaðgerðirnar greiddu atkvæði með þeim.

Ef vaktin birtist ekki er ráð að endurhlaða síðuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×