Formúla 1

Hamilton segist ekki hafa beðið um að reka fólk úr liðinu

Andri Broddason skrifar
Lewis Hamilton reynir að fá allt það besta úr liðsfélögum sínum.
Lewis Hamilton reynir að fá allt það besta úr liðsfélögum sínum. Clive Mason/Getty Images

Mikill hiti hefur verið í herbúðum Ferrari eftir að liðið átti vægast sagt slæmar síðustu keppnir í Formúlu 1. Fréttir bárust að hann hafi viljað reka starfsmenn liðsins vegna slæms gengis en hann harðlega neitar þeim sögusögnum.

Lewis Hamilton var ekki langt frá Kimi Antonelli á toppi heimsmeistaramótsins í Formúlu 1 þegar sumarfríið byrjaði í ágúst. Síðustu tvær keppnir hafa þó ekki verið góðar fyrir Bretann og fékk hann aðeins átta stig í þeim keppnum sem þýðir að hann er núna 101 stigi frá Antonelli.

Samkvæmt Sky Sports hafa ítalskir miðlar sagt að Lewis Hamilton hafi verið ósáttur við nokkra starfsmenn liðsins og að hann hafi beðið um að þeir hafi verið látnir fara. Lewis Hamilton þverneitaði þessum sögusögnum og deildi færslu á Instagram þar sem hann stóð við bakið á liðsmönnum Ferrari.

Skjáskot af hringrás Lewis Hamilton á Instagram.lewishamilton

„Ég hef séð sögur sem ég vil leiðrétta. Ég hef ekki beðið um að neinum í liðinu verði skipt út. Allir sem ég vinn með leggja hart að sér á hverjum degi, og tileinkun þeirra til verkefnisins er það sem keyrir liðið áfram,“ sagði Lewis Hamilton og tók fram að hann vilji bæta fólkið í sínu liði svo hann sé umkringdur besta fólkinu.

„Ég reyni að hjálpa fólki að vera besta útgáfan af sjálfu sér. Ég mun kannski ekki alltaf ná því en það er ætlunin mín og það er það sem ég er hér til að gera. Við vinnum öll saman og ætlum að halda því áfram.“

Fred Vasseur, liðsstjóri Ferrari, hefur verið gagnrýndur fyrir það að Ferrari ökumennirnir Lewis Hamilton og Charles Leclerc hafi vafist fyrir hvor öðrum í keppnum. Hann hefur þó tekið skýrt fram að hann ætli ekki að forgangsraða öðrum ökumanninum fram yfir hinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×