Hvenær verður nóg nóg? Borgar Antonsson (Boggi Tona) skrifar 15. september 2026 11:31 Af gefnu tilefni eru miklar umræður um aukna skattheimtu á ferðaþjónustu. Mig langar því að fara yfir gjöldin á mitt litla fyrirtæki og hvernig þau hafa aukist síðan ég stofnaði það árið 2017. Fyrirtækið heitir Ice Cave in Iceland og við förum með ferðamenn í litlum hópum í íshella í Breiðarmerkurjökli. Ég byrjaði með einn sex manna jeppa en nú er dóttir mín farin að keyra með mér á öðrum bíl. Í rauninni erum við ekkert annað en smábátaútgerð á landi: lítið fjölskyldufyrirtæki sem sækir verðmæti í náttúruauðlind, fer með fáa gesti í einu og byggir á staðbundinni þekkingu og umgengni af virðingu við náttúruna. Litlir hópar og persónuleg upplifun er grunnur fyrirtækisins. Stjórnvöld hafa upp á síðkastið lagt mikla áherslu á að styðja við smábátaútgerð. En það virðist vera töluverður munum á því hvort gert sé út landi eða sjó. Alla vega bætast sífellt fleiri gjöld á sambærileg lítil fyrirtæki í landi. Í upphafi greiddi ég 50.000 krónur á ári fyrir atvinnuleyfi innan þjóðgarðsins. Síðan bættist við 400 króna gjald fyrir hvern farþega og leyfisgjaldið hækkaði í 100.000 krónur. Þá kom bílastæðagjaldið við Jökulsárlón, fyrst 1.350 krónur en nú 1.450 krónur. Svo kom kílómetragjaldið, sem á að hækka um næstu áramót, og frá 1. september bættist við 18.750 króna mánaðarlegt veggjald vegna akstursins milli Hafnar og Jökulsárlóns. Við geymum jeppana nálægt Jökulsárlóni og keyrum á fólksbíl á milli. Þannig spörum við töluverðan akstur en keyrum samt bílana þrjá um 260 kílómetra á dag. Miðað við 75% sætanýtingu erum við að jafnaði með 13–14 farþega á dag. Þá eru kílómetragjald, bílastæðagjöld, veggjald, farþegagjald og leyfisgjald samtals um 10.700 krónur á dag eða um 1,5 milljónir yfir 140 daga tímabilið. Ferðin kostar 18.000 krónur á mann og meðaltekjurnar eru því um 243.000 krónur á dag. Gjöldin nema um 4,4% af veltunni. Það hljómar kannski ekki mikið. En þetta er velta, ekki hagnaður. Hér á eftir að greiða virðisaukaskatt, laun og launatengd gjöld, eldsneyti, viðhald, tryggingar, öryggisbúnað, bókunarkostnað og allan annan rekstrarkostnað. Að auki greiða svo kúnnarnir mínir líka bílastæðagjöld. Oftar en ekki eru þetta pör sem eru að ferðast í bílaleigubíl og greiða þá fyrir hvern bíl. Sex manns á þremur bílum eru þá að greiða 4.350 krónur til þjóðgarðsins fyrir utan gjöldin sem eru innifalin í ferðinni sjálfri. Við erum farin að finna vel fyrir gjalda og skattahækkunum síðustu ára. Sem dæmi þá heldur komum skemmtiferðaskipa á Djúpavog áfram fækkar milli ára sem skilar sér sem minni tekjur bæði hjá okkur og hjá ríkissjóð. Og nú tala stjórnvöld um að ferðaþjónustan þurfi einnig að greiða auðlindargjald. Hvað sem það nú þýðir. Eru það gjöld sem eiga einfaldlega að bætast ofan á allt hitt? Eru leyfisgjaldið og farþegagjaldið ekki nú þegar gjöld fyrir aðgang að og afnot af auðlindinni? Ef ekki, hvað eru þau þá? Hvernig er reiknað út hvað telst réttmætt auðlindagjald og hvenær er þeirri upphæð náð? Við eigum auðvitað að leggja okkar af mörkum, sem við og gerum. En stjórnvöld verða líka að horfa á heildarmyndina, telja með það sem þegar er greitt og skilgreina hvenær takmörkum er náð. Hvað er „réttmætt auðlindargjald“ – og hvenær verður nóg nóg? Höfundur er eigandi Ice Cave in Iceland. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ferðaþjónusta Mest lesið Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson Skoðun SÁÁ Ingibergur Þorkelsson Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar Skoðun Þakkir til kennara frá ráðherra Inga Sæland skrifar Skoðun Leigubremsa innleidd á Íslandi! Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson skrifar Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson skrifar Skoðun Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar Skoðun Mælum fyrst – hækkum svo Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Þegar skuldir færa völdin til Brussel Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson skrifar Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað einkennir góðan vinnustað? Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Ákall vegna athugasemdakerfis Guðrún Elísa Friðbjargardóttir Sævarsdóttir skrifar Skoðun Pútín, Kalíngrad og Ísland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun SÁÁ Ingibergur Þorkelsson skrifar Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir skrifar Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Kæru borgarfulltrúar Haraldur Þorgeirsson,Ásta Kristrún Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Sjá meira
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun
Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar
Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar
Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir skrifar
Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar
Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun