Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar 13. september 2026 07:31 Séra Friðrik Friðriksson lést árið 1961. Rúmum sex áratugum síðar voru bornar á hann ásakanir um kynferðislega háttsemi gagnvart drengjum. Hann getur ekki svarað þeim, skýrt atvik, bent á vitni, lagt fram gögn eða mótmælt túlkun á atburðum sem eiga að hafa gerst fyrir löngu. Hann átti heldur enga afkomendur sem geta stigið fram og varið minningu föður síns. Þetta vekur spurningu sem er stærri en mál eins manns: Hvaða skyldur höfum við gagnvart æru hins látna þegar hann getur ekki lengur varið sig sjálfur? Persónuleg tenging - en ekki sönnun Ég hef persónulega ástæðu til að velta þessu fyrir mér. Séra Friðrik skírði mig og ég hitti hann sjálfur, þá orðinn háaldraðan. Tengsl hans við fjölskyldu mína náðu miklu lengra aftur. Fjölskyldan hafði orðið fyrir þungum áföllum og séra Friðrik veitti henni andlegan stuðning árum saman. Hann heimsótti fósturömmu mína og fósturbörn hennar, þar á meðal móður mína, og lét sér annt um fólk sem hafði misst mikið. Ég segi þetta ekki til að sanna að séra Friðrik hafi aldrei gert neitt rangt. Persónuleg góð reynsla eins manns getur ekki afsannað frásögn annars. En sama regla hlýtur að gilda í hina áttina: ein frásögn eða óbein endursögn getur ekki án frekari rannsóknar orðið að algildum dómi um aldur og ævi. Alvarlegar ásakanir kalla á vandvirkni og fagmennsku Ásakanir um kynferðisbrot gegn börnum ber að taka alvarlega. Það á að hlusta á fólk sem segir frá erfiðri reynslu og sýna því virðingu. En einmitt vegna alvarleika ásakananna þarf jafnframt að gera ríkar kröfur um nákvæmni, heimildir og orðalag - sérstaklega þegar sá sem sakaður er hefur verið látinn í áratugi. Í skýrslu sem Bjarni Karlsson og Sigrún Júlíusdóttir unnu fyrir KFUM og KFUK í desember 2023 segja höfundarnir sjálfir að rannsóknarefnið hafi verið „rýrt”. Þau taka fram að af fimm heimildum sé ein sem feli í sér beina lýsingu á meintu broti frá fyrstu hendi. Niðurstaða þeirra er síðan sú að „meiri líkur en minni“séu á að háttsemi séra Friðriks hafi í sumum tilvikum farið yfir kynferðisleg velsæmismörk gagnvart ungum drengjum og valdið þeim skaða. Vert er að benda á að rannsakendur hafa ekki sérþekkingu svo sem sagnfræðimenntun og rýrir það óneitanlega ályktanir þeirra. Þetta líkindamat Bjarna og Sigrúnar er ekki sama og fullvissa. Samt varð opinbert orðalag síðar meir miklu afdráttarlausara og stjórn KFUM og KFUK talaði um vitnisburði sem væru „hafnir yfir skynsamlegan vafa“ um kynferðislega áreitni. Hvernig varð „rýrt” rannsóknarefni og niðurstaðan „meiri líkur en minni“ að fullyrðingu sem var orðuð með hugtaki sem almenningur tengir við ströngustu sönnunarkröfu sakamálaréttar? Sú spurning er ekki árás á neinn. Hún er nauðsynleg ef við viljum umgangast bæði mögulega þolendur og hinn látna af sanngirni. Dauðinn afnemur ekki alla æru Íslensk lög gera beinlínis ráð fyrir æruvernd látinna. Í 240. gr. almennra hegningarlaga segir að sé ærumeiðingum beint að dánum manni geti það varðað refsingu. Réttarstaðan er þó flókin þegar kemur að því hver getur látið reyna á slíkt mál, enda eru reglur um málshöfðun í sama kafla að verulegu leyti miðaðar við þann sem misgert var við. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur einnig viðurkennt að orðspor látins fjölskyldumeðlims geti við ákveðnar aðstæður haft áhrif á einkalíf og sjálfsmynd eftirlifandi ættingja. Á móti stendur ríkt tjáningarfrelsi, ekki síst þegar fjallað er um sögulegar og opinberar persónur. Það er því enginn einfaldur réttur til að mæta ærumeiðandi umfjöllun um látinn mann. En lögin og dómaframkvæmdin minna okkur á eitt: Dauðinn breytir ekki sjálfkrafa staðreynd í ásökun eða ásökun í staðreynd. Sama krafa til allra Ég bið ekki um að séra Friðrik verði lýstur saklaus án rannsóknar. Það væri sama skekkjan í gagnstæða átt. Ég bið aðeins um að við köllum hlutina réttum nöfnum: Frásögn sé frásögn, óvissa sé óvissa, líkur séu líkur og sönnun sé sönnun. Séra Friðrik getur ekki lengur svarað. Það ætti ekki að minnka ábyrgð okkar gagnvart æru hans og orðspori. Það ætti að auka hana. Höfundur er einn af drengjum Sr Friðriks. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Freyja Þórisdóttir skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Sjá meira
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun