Upp­gjörið: HK - ÍR 18-20 |  Tæpur sigur ÍR í Kópa­voginum

Þorsteinn Hjálmsson skrifar
Frá leik ÍR í efstu deild
Frá leik ÍR í efstu deild

ÍR er með fullt hús stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar í Olís-deildinni. Varð það ljóst eftir tveggja marka sigur liðsins á HK í Kórnum í dag, 18-20, en HK er án stiga eftir tvær umferðir. Miðað við þróun leiksins undir lokinn þá hefði HK þó getað náð í stig.

Mikill hraði einkenndi spilamennsku beggja liða í upphafi leiks og vantaði aðeins upp á yfirvegunina og því lítið um að liðin náðu að skapa sér góð færi. Það var þó mikið jafnræði með liðunum og var staðan jöfn 4-4 eftir tíu mínútna leik.

Markaskorið í fyrri hálfleiknum var fremur lágt en var það helst fyrir tilstilli þess að leikmenn liðanna áttu í erfiðleikum með að koma boltanum í markið úr dauðafærum. Til að mynda klúðruðu bæði lið vítum í fyrri hálfleiknum sem og nokkrum opnum færum úr hornunum og hraðaupphlaupum.

Heimakonur í HK fóru þó ögn verr með sín færi og leiddi því ÍR með tveimur mörkum í hálfleik, staðan 8-10 fyrir Breiðhyltingum.

ÍR nýtti sér brösótta byrjun HK í síðari hálfleiknum, en HK fór í gegnum 13 mínútna kafla án þess að skora. Staðan 8-13 þegar HK tók leikhlé snemma í síðari hálfleik.

ÍR-ingar virtust ætla að sigla heim þægilegum sigri en fimm marka munur var á liðunum þegar stundarfjórðungur var eftir af leiknum. Staðan 10-15 fyrir gestunum.

HK-ingar gáfust þó ekki upp og nálguðust forystu ÍR og náðu að minnka muninn niður í eitt mark þegar mínúta var eftir. Reynsluboltinn í liði ÍR, Sólveig Lára Kjærnested, gerði þó út um það með sínu þriðja marki í leiknum með vippu þegar lítið var eftir.

Atvik leiksins

Það var ótrúlegt að sjá Sólveigu Láru skora þrjú mörk með vippu úr hægra horninu og það eitt á mikilvægu augnabliki undir lok leiksins. Markverðir HK sennilega afar óhressir að fá svona mörk á sig í þrígang.

Stjörnur og skúrkar

Sara Dögg Hjaltadóttir dró vagninn fyrir ÍR liðið sóknarlega og skoraði níu mörk. Gamla brýnið Sólveig Lára var svo sannarlega betri en enginn í hægra horninu hjá Breiðhyltingum.

Reynsluboltinn í liði heimakvenna, Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir, var ekki á deginum sínum í dag. Tókst henni ekki að skora í leiknum þrátt fyrir sjö skot. Tapaði hún einnig boltanum illa nokkrum sinnum og fékk auk þess tvisvar tveggja mínútna brottvísun. HK þarf að fá meira frá Valgerði Ýr í vetur heldur en hún sýndi í dag.

Dómarar

Jónas Elíasson og Þorleifur Árni Björnsson voru fínir í dag. Vissulega má halda því fram að dæma hefði átt fleiri víti í leiknum, en í handbolta getur dómgæslan sveiflast mikið.

Stemning og umgjörð

Ágæt mæting í Kórinn á þennan leik. Kannski ekki drauma leiktíminn, klukkan 16:00 á laugardegi, en þrátt fyrir það fínasta stemning. Hljóðkerfið hjá HK-ingum var eitthvað að klikka í dag í fyrsta heimaleiknum og því engin tónlist. Vonum að það séu aðeins örlitlir byrjunarörðugleikar og það verði komið í lag fyrir næsta leik.

Dagur Snær Steingrímsson: „Mér fannst ekkert vanta upp á lokakaflann“

Dagur Snær SteingrímssonHK handbolti

„Fyrst og fremst svekktur. Það voru tækifæri fyrir okkur að ná í allavegana stig í dag, en því miður tókst það ekki,“ sagði Dagur Snær Steingrímsson, þjálfari HK, eftir tapið í dag.

Um miðbik leiksins kom kafli þar sem HK skoraði ekki mark í 13 mínútur. Dagur Snær var spurður út í hvað hafi gengið á hjá hans konum á þeim kafla.

„Við erum bara ekki að vinna maður á mann. Mér fannst við ekki ná krafti og fjarlægð í árásunum þannig að við enduðum einhvern veginn alltaf í fríkasti og þær ná að búa til þetta forskot.“

Á lokakafla leiksins hefði HK getað jafnað leikinn og mögulega náð í stig. Það tókst hins vegar ekki, en hvað vantaði upp á á lokakaflanum?

„Mér fannst ekkert vanta upp á lokakaflann. Það var meira þessi millikafli sitthvoru megin við hálfleikinn sem vantaði upp á. Það býr til forskotið þeirra. Við gerðum þetta vel í lokin og komum okkur aftur inn í þetta sem ég er ánægður með, en færanýtingin heilt yfir allan leikinn þarf að vera betri.“

HK eru nýliðar í Olís-deildinni og tóg Dagur Snær við liðinu í sumar. Að lokum var Dagur Snær spurður út í byrjunina á tímabilinu, en liði er án sigurs eftir að hafa mætt Haukum og ÍR.

„Ég er svekktur að við séum ekki komnar með stig, en ég er ánægður með að við erum að sýna hér alvöru frammistöðu í tveimur leikjum. Auðvitað erfitt að mæta Haukum í fyrsta leik, en við unnum okkur alltaf aftur inn í þann leik og hættum aldrei. Auðvitað erum við nýliðar að koma upp og þetta bara tekur tíma að sjóða saman liðið og stilla saman strengi á þessu getustigi. Það kemur í næstu leikjum, ég hef engar áhyggjur af því.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira