Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar 11. september 2026 14:30 Örstutt frá gamla miðbæ Ajaccio á Korsíku (sem er talinn vera fæðingarbær Napóleons Bónaparte) er tröllvaxin stytta af Napóleon. Þetta er stytta sem dregur að sér fjölda ferðafólks. Þetta fékk mig til að hugsa um okkar Napóleon. Jú, fyrsti maðurinn sem mér dettur í hug er Jón Sigurðsson, sem leiddi sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar gegn Dönum. Við heiðrum framlag hans og baráttu með stórri styttu á besta stað, þ.e. á Austurvelli gegnt Alþingishúsinu. Það er vel og það mætti líka setja þar upp upplýsingaskilti fyrir ferðamenn um hver Jón Sigurðsson var og hvað hann gerði. Ég fór að hugsa um hvaða Íslendingur hefur náð langt á alþjóðavettvangi, gert Ísland stærra í augum umheimsins og fyllt okkur stolti. Fyrir utan Jón Sigurðsson dettur mér eitt nafn í hug: Halldór Laxness, sem hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 1955. Með fullri virðingu fyrir öðrum hefur engum Íslendingi hlotnast álíka heiður og Halldóri. Ég kannaði málið og komst að því að það er engin stytta til af Halldóri Laxness. Því legg ég til að reist verði vegleg og stór stytta af Halldóri og henni komið fyrir á áberandi stað í Reykjavík, t.d. á Lækjartorgi. Þessi stytta mun án efa vekja mikla athygli og verða þjóðargersemi. Erlendir ferðamenn munu áreiðanlega sýna verkum Halldórs Laxness meiri áhuga í kjölfarið. Gerum Íslendingum sem hafa náð langt á alþjóðavettvangi hærra undir höfði Þegar gengið er í gegnum brottfararsalinn á Arlandaflugvelli í Stokkhólmi er gengið fram hjá fjölda mynda af Svíum sem hafa náð langt á alþjóðavettvangi. Þetta eru myndir af fólki sem hefur skarað fram úr í vísindum, listum, bókmenntum, tónlist, íþróttum og fleiru. Þarna eru myndir af Birni Borg, Ingrid Bergman, meðlimum ABBA, Ingemar Stenmark, Gretu Thunberg, Zlatan Ibrahimović og Ingemar Johansson. Að mínu mati mættum við þekja veggi í tösku- og brottfararsal Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar með myndum af Íslendingum sem hafa náð langt á alþjóðavettvangi. Fólki eins og Björk, Eiði Smára Guðjohnsen, Arnaldi Indriðasyni, Vigdísi Finnbogadóttur, Hildi Guðnadóttur, meðlimum Kaleo, Sigur Rósar, Mezzoforte og Sykurmolanna, Ragnari Jónassyni og Yrsu Sigurðardóttur, svo einhverjir séu nefndir. Þessar myndir myndu vekja áhuga erlendra ferðamanna og vafalaust koma þeim á óvart hvað margt hæfileikaríkt fólk býr á Íslandi. Hví ekki? Höfundur er heilsuhagfræðingur Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar