Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Kjartan Kjartansson skrifar 10. september 2026 11:20 Steingerður er samstarfsverkefni Orku náttúrunnar og Carbfix um að fanga og binda kolefni og brennistein frá Hellisheiðarvirkjun. Carbfix Lofthreinsistöð Carbix hefur bundið svo gott sem allan koltvísýring og brennisteinsvetni frá Hellisheiðarvirkjun síðasta árið. Fyrirtækið segist nú hafa bundið rúmlega 120 þúsund tonn af koltvísýringi í berg frá því að tæknin var tekin í notkun.
Bæði koltvísýringur og brennisteinsvetni losnað við vinnslu á jarðvarma. Fyrrnefnda lofttegundin eykur gróðurhúsaáhrif lofthjúpsins og stuðlar að hnattrænni hlýnun en sú síðarnefnda getur haft áhrif á loftgæði. Síðasta árið, frá byrjun júlí 2025 til 30. júní í ár, batt Steingerður, lofthreinsistöðin við Hellisheiðarvirkjun, 99,6 prósent þess koltvísýrings og brennisteinsvetni sem barst inn í föngunarkerfið hennar samkvæmt nýjustu rekstrarniðurstöðum hennar. Lofttegundirnar eru leystar upp í vatni og dælt ofan í jörðu þar sem þær bindast varanlega í berggrunninum með aðferð sem Carbix, dótturfélag Orkuveitunnar þróaði á Hellisheiði. Magnið af koltvísýringi sem hefur verið bundið með Carbfix-aðferðinni á Hellisheiðinni nemur nú rúmlega helmingi losunar allra jarðvarmavirkjana á Íslandi árið 2024. Auk þess hafa rúmlega 55 þúsund tonn af brennisteinsvetni verið bundin í jörð samkvæmt tilkynningu Carbfix. Nýsköpunarsjóður Evrópusambandsins styrkti Silfubergsverkefni Orku náttúrunnar og Carbfix um tæpar 3,9 milljónir evra en Steingerður er sögð lykilþáttur í því. Þurfa að fanga og binda kolefni til þess að ná tökum á loftslagsvá Skýrsla Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna sem var birt í síðustu viku gerði ljóst að útséð væri um að menn næðu metnaðarfyllra markmiði Parísarsamkomulagsins um að takmarka hnattræna hlýnun við 1,5°C á þessari öld. Gera þyrfti ráð fyrir að farið yrði yfir þau mörk og að mannkynið þyrfti að þróa leiðir til þess að fanga og binda kolefni úr lofti til þess að koma loftslagi jarðar aftur inn fyrir þolanleg mörk. Carbfix hefur einnig átt í samstarfi við svissneska nýsköpunarfyrirtækið Climeworks sem þróar tækni við að fanga koltvísýring beint úr lofti á Hellisheiði. Sú tækni er þó skammt á veg komin.
Orkumál Loftslagsmál Jarðhiti Tækni Loftgæði Mest lesið Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Samherji selur Margréti til Færeyja Viðskipti innlent Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Viðskipti innlent Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Viðskipti innlent Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Viðskipti innlent Fleiri fréttir Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Sjá meira