Bætir tækni í kennslustofunni nám? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar 9. september 2026 16:31 Því meiri tækni sem er innleidd í skólum, því lakari verður námsárangur barna. Þetta á ekki bara við á Íslandi, heldur í nánast öllum OECD-ríkjum. Í gær fengum við niðurstöður úr nýjustu PISA-könnuninni, þar sem við sjáum að börnunum okkar gengur sífellt verr í lesskilningi, náttúruvísindum og stærðfræði. Þetta eru leiðinlegar fréttir, en það versta er að við erum ekki einu sinni hissa. Við áttum einhvern veginn öll von á þessu. Það er mikilvægt að byrja á að nefna að niðurstöðurnar sýna líka að við eigum virkilega góða kennara, nemendur eru forvitnir, þeim líður vel í skólanum og þeir leita til kennara, og foreldrar eru virkir og taka þátt í námi barnanna sinna. Hvað er þá vandamálið? Mér finnst það svo augljóst, sérstaklega í ljósi þess að hrapið í PISA-árangri á ekki aðeins við um Ísland, heldur nánast öll OECD-ríki, frá og með árinu 2012. Hvað gerðist árið 2012? Nemendur byrjuðu að fá snjallsíma og samfélagsmiðla sem eru hannaðir til þess að vera ávanabindandi. Snjallsímarnir mættu í skólann með nemendum. Nemendur hættu að fá mikilvæga hvíld í frímínútum, á kvöldin, jafnvel á nóttunni. Svefn og hvíld gegna lykilhlutverki í námi. Heilanum tekst ekki að vinna úr öllu áreitinu sem hann verður fyrir yfir daginn. Núna bindur mennta- og barnamálaráðherra, Inga Sæland, miklar vonir við að símafrí í skólum muni bjarga stöðunni. Sem baráttukona fyrir símafríi í skólum er ég alveg með henni í liði. En verður það nóg? Upp úr 2015 tóku skólar á Íslandi að innleiða spjaldtölvur og fartölvur í kennslustofur. Sumir nemendur fóru að eyða kennslustundum í afþreyingu, og tæknin í skólastofunni fór að keppa um athygli nemenda á sama tíma og hæfileiki þeirra til að halda einbeitingu hefur sífellt farið dvínandi. Nemendur lesa færri bækur og skrifa minna á blað. Í bókinni The Digital Delusion (Tálsýn tækninnar), eftir Dr. Jared Cooney Horvath, sem ég mæli með að allir kennarar, foreldrar og skólastjórnendur lesi, sýnir höfundur að það er mjög mikil fylgni á milli þess að lönd innleiði tækni í skólum og falls í PISA-árangri. Eins og hann orðaði það sjálfur í nýlegu viðtali við Morgunblaðið: „Við báðum aldrei um rannsóknir um samband tækni og náms þegar við fórum að innleiða tæknina, og við biðum aldrei eftir neinum niðurstöðum. Við náðum einfaldlega í tækið, plöntuðum því fyrir framan krakkana og sögðum þeim að læra." Menntatækni í skólum hefur oft verið sett undir sama hatt og upplýsingatæknikennsla. Þetta er samt ekki sami hluturinn. Það að spila kennsluleiki á iPad er ekki upplýsingatæknikennsla, ekki frekar en það að horfa á sjónvarpið. Auðvitað eigum við að kenna börnum upplýsingatækni, eins og vélritun, forritun, rökhugsun, gervigreindar- og miðlalæsi, öryggi og persónuvernd á netinu. Upplýsingatæknikennsla er ótrúlega mikilvæg! En þar eiga upplýsingatæknikennarar með sérþekkingu að stýra ferðinni í öruggu umhverfi. Ég veit að ég fæ líklega mikil andmæli frá ákveðnum hópi yfir því sem ég er að segja, en: það eru ekki allir kennarar upplýsingatæknikennarar, frekar en að allir kennarar séu smíðakennarar. Eftir að hafa átt samtöl við ótal marga foreldra, kennara og nemendur um skjánotkun í skólastarfi, þá kemur sífellt meira í ljós að við erum ekki með neina skýra stefnu í menntatækni í skólum. Sum börn á yngsta stigi fá að horfa á teiknimyndir í nestistímanum og spila leiki til að læra grunnfærni í lestri og stærðfræði. Eldri nemendur horfa á YouTube og spila tölvuleiki í tímum sem verðlaun fyrir að klára verkefni. Þau afrita og líma texta af netinu, og sum láta gervigreindina sjá um verkefnin fyrir sig með öllu. Nemendur nota snjallúr til að svindla í prófum og gervigreind til að leysa heimavinnuna sína. Lönd eins og Svíþjóð ætla að taka skref til baka í skjánotkun í skólastarfi, sem og fleiri lönd um allan heim. Við ættum að huga að því sama. Það minnsta sem við getum gert er að rannsaka tengslin sem gefa svo skýra vísbendingu um vandamálið sem blasir við okkur.Sönnunarbirgðin á ágæti stafrænnar tækni í skólastarfi á að vera á þeim sem framleiða og innleiða hana í skólastarfið, en ekki t.d. foreldra eða einstaka kennara.Minnkum stafræna áreitið í kringum börnin okkar, förum skref til baka og tökum upp blað og blýanta. Spyrjum okkur „þarf ég að nota tölvu fyrir þetta verkefni?" áður en við leggjum það fyrir. Það er ekkert að nemendunum okkar, kennurunum okkar eða foreldrunum. En athyglishagfræðin og keppnin um athygli okkar byrjaði um 2012, og við þurfum að taka skref til baka í skjánotkun – bæði heima og í skóla. Við þurfum raunverulega að sjá fílinn í herberginu, benda á hann og ákveða að núna sé nóg komið. Núna er komið símafrí í skólum. Húrra! Samfélagsmiðlabann fyrir börn er á leiðinni sem er frábært skref, þótt því verði auðvitað að fylgja fræðsla og forvarnir. En við verðum líka að staldra við og draga úr skjánotkuninni í skólastarfinu sjálfu. Höfundur er tölvunarfræðingur og sérfræðingur hjá Stafrænni velferð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Tuttugu ár í þjónustu samfélagsins Árni Hrannar Haraldsson skrifar Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson skrifar Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinnar við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinnar við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun