Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Lovísa Arnardóttir og Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifa 2. september 2026 10:22 Eva Katrín, til vinstri, og Steinunn, til hægri, hafa verið í versluninni í alla nótt að reyna að bjarga lagernum. Vísir/Einar Eva Katrín Baldursdóttir og Steinunn Hrólfsdóttir voru vaktar í nótt við það að viðvörunarkerfið í verslun þeirra, Andrá, var farið í gang. Eldur var í kjallara hótels í sama húsnæði og töluverður reykur í versluninni sem er full af nýjum vörum fyrir haustið. Þær segja þetta mikið áfall og tjónið líklega verulegt. „
Ég vaknaði við viðvörunarkerfið í Andrá, ég hélt ég hefði stillt einhverja fáránlega vekjaraklukku. Svo var hringt frá Securitas og þá var reykskynjarinn kominn í gang,“ segir Steinunn Hrólfsdóttir, einn eigenda verslunarinnar Andrá við Laugaveg 16. Stuttu síðar hafi hún svo fengið staðfest að Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hafi verið komið á vettvang. Eldur kviknaði í nótt á hóteli í sama húsi. Tveir gesta hótelsins voru fluttir á slysadeild vegna gruns um reykeitrun og einn handtekinn vegna málsins. Steinunn segist hafa drifið sig niður eftir en þær ekkert fengið að fara strax inn. „Það var hræðilegt að koma að, það voru gestir á hótelinu og maður vissi ekki neitt. En við fengum fljótt upplýsingar um að það væru flestir komnir út.“ Reykur en ekki eldur Steinunn og Eva Katrín Baldursdóttir eigendur voru í versluninni í alla nótt. „Það var svo mikill reykur bak við, þar sem lagerinn okkar, þannig við vorum að reyna að bjarga því sem hægt var,“ segir hún og að þær hafi svo, þegar þær máttu fara inn, reynt að færa til það sem hægt var. Þær segja að sem betur fer hafi ekki verið eldur í versluninni en reykurinn hafi verið töluverður. Verslunin er full af nýjum vörum fyrir haustið. Vísir/Einar Eva Katrín segir þær bíða eftir svörum frá tryggingarfélagi um hvað þær eigi að gera næst. „En þetta er mikið sjokk,“ segir Eva Katrín. Steinunn segir almennt hafa verið rólegt í nótt. Það hafi verið mikið af fólki í bænum og margir að fylgjast með. Það hafi samt fækkað fljótt í hópnum eftir því sem leið á nóttina. „Við fengum ekki að fara strax inn, það var opnað og reykræst. Mesti reykurinn var í kjallaranum þannig að það þurfti að lofta út,“ segja þær en að staðan sé töluvert betri núna. Lyk í fötunum Spurðar um tjónið segir Steinunn að þær hafi verið að „moka inn“ haustvörum síðustu daga og því verði tjónið eitthvað. „Mikið af fallegum hlutum, mjög leiðinlegt,“ segir Steinunn og að það þurfi að meta tjónið. Þetta sé í raun versti tíminn því það sé svo mikið af nýjum klæðnaði í versluninni. Það sé lykt í fötunum sem hangi í búðinni en eitthvað sé í kössum og plasti og þær eigi eftir að meta það. Þær vita ekki hvað tekur við næst en segjast vera að leita að húsnæði til að taka vörurnar í. Eldurinn kviknaði í kjallaranum á Hótel Skjaldbreið en verslunin er fyrir ofan. Vísir/Anton Brink „Ef einhver vill lána okkur húsnæði þannig að við getum farið með lagerinn þangað og reynt að koma búðinni í stand,“ segir Steinunn. Eva Katrín tekur undir það og að þær vilji endilega heyra í fólki sem hafi lent í slíkum bruna. Þær eigi samt sem áður von á því að tryggingafélagið ráðleggi þeim með næstu skref.
Lögreglumál Slökkvilið Verslun Reykjavík Tengdar fréttir Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Bruce Allen Ednie frá Connecticut í Bandaríkunum var gestur á hótel Skjaldbreið í nótt þegar eldur kom upp. Alls voru um 60 gestir á hótelinu þegar kviknaði í um klukkan hálf eitt í nótt. Tveir gestir voru fluttir á slysadeild. Einn var handtekinn stuttu eftir að aðgerðir hófust. Slökkvistarfi lauk um klukkan fjögur í nótt. 2. september 2026 09:55 Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Kristófer Oliversson, forstjóri Center Hotel, segir tjónið verulegt á Hótel Skjaldbreið, hóteli þeirra í miðbænum, þar sem kom upp bruni í nótt. Hann segir um 60 gesti hafa verið flutta á önnur hótel í nótt. Tveir gestir voru fluttir á slysadeild vegna gruns um reykeitrun. 2. september 2026 08:40 Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Karlmaður var handtekinn í nótt eftir að bruni kom upp í kjallara á Hótel Skjaldbreiður á Laugavegi 16 í miðbæ Reykjavíkur. Tveir voru fluttir á slysadeild vegna gruns um reykeitrun. 2. september 2026 06:10 Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Fleiri fréttir Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Sjá meira
Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Bruce Allen Ednie frá Connecticut í Bandaríkunum var gestur á hótel Skjaldbreið í nótt þegar eldur kom upp. Alls voru um 60 gestir á hótelinu þegar kviknaði í um klukkan hálf eitt í nótt. Tveir gestir voru fluttir á slysadeild. Einn var handtekinn stuttu eftir að aðgerðir hófust. Slökkvistarfi lauk um klukkan fjögur í nótt. 2. september 2026 09:55
Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Kristófer Oliversson, forstjóri Center Hotel, segir tjónið verulegt á Hótel Skjaldbreið, hóteli þeirra í miðbænum, þar sem kom upp bruni í nótt. Hann segir um 60 gesti hafa verið flutta á önnur hótel í nótt. Tveir gestir voru fluttir á slysadeild vegna gruns um reykeitrun. 2. september 2026 08:40
Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Karlmaður var handtekinn í nótt eftir að bruni kom upp í kjallara á Hótel Skjaldbreiður á Laugavegi 16 í miðbæ Reykjavíkur. Tveir voru fluttir á slysadeild vegna gruns um reykeitrun. 2. september 2026 06:10