Enn óljóst hvað verður um umsóknina Birgir Olgeirsson skrifar 31. ágúst 2026 23:00 Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Vísir/Lýður Valberg Enn er óljóst hvað ríkisstjórnin hyggst fyrir með umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Utanríkisráðherra segir eðlilegt að málið verði rætt áfram í utanríkismálanefnd og forsætisráðherra segir að skoða þurfi hvernig eðlilegast sé að loka ferlinu. Formenn stjórnarandstöðuflokkanna boða þingsályktunartillögu um að draga umsóknina til baka.
Meirihluti kjósenda hafnaði því að hefja aðildarviðræður á ný við Evrópusambandið. 52,8% sögðu nei en 47,1 prósent sögðu já. Utanríkisráðherra var skýr með það að loknum fundi með utanríkismálanefnd að ríkisstjórnin muni ekki hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið eftir að þjóðin hafnaði því í nýafstaðinni þjóðaratkvæðagreiðslu. Umsóknin verður áfram rædd á vettvangi utanríkismálanefndar. „Það eru ýmsir þættir sem spila inn í heildarmyndina og ég er alls ekki að útiloka eitt eða neitt. Ég vil bara að við áttum okkur á því hvað hvert skref þýðir og það vil ég gera í samvinnu við utanríkismálanefnd,“ segir Þorgerður Katrín Gunanrsdóttir utanríkismálaráðherra. Kristrún Forstadóttir forsætisráðherra segir skilaboðin skýr frá þjóðinni og framhaldið þurfi að ræða. „Þannig að við þurfum að skoða með hvaða hætti er eðlilegast að loka þessu ferli. Það hefur verið rætt að draga umsóknina til baka en það hefur líka verið rætt að loka þessu með öðrum hætti. Aðalmálið er að þessi ríkisstjórn er ekki að fara lengra með þetta mál,“ segir Kristrún. Áfram verði unnið innan EES en hins vegar var pólitískt hitamál nefnt strax daginn eftir atkvæaðgreiðsluna, bókun 35. Hún á að tryggja að EES-reglur gildi ef þær stangast á við íslensk lög. Stuðningsmenn segja hana nauðsynlega vegna alþjóðlegra skuldbindinga, andstæðingar óttast að hún vegi að fullveldi Íslands. Kristrún segir að Nei-hreyfingin hafi talið óþarfa að fara í viðræður við ESB því Íslendingar hefðu það svo gott innan EES. „Það getur verið sjónarmið en þá skiptir máli að fólk vilji virða EES-samninginn. Sjálfstæðisflokkurinn, Framsókn og VG sem voru í þeirri ríkisstjórn lögðu fram bókunina í síðustu ríkisstjórn því að þau áttuðu sig á því að þetta væri mikilvægt mál og það var ekki verið að fara stjórnarskrárleiðina,“ segir hún. „Svo allt í einu núna er þetta orðið að þingreiðu þegar þau eru komin í minnihluta. Auðvitað þurfum við að eiga uppbyggilegt samtal. Ég vona að við fáum minnihlutann með í að klára okkar skyldur gagnvart EES reglulega. En þetta skiptir miklu máli. Ef þú rekur kosningabaráttu á þeim forsendum að núverandi ástand sé gott þá þarftu að passa það að viðhalda því ástandi.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Utanríkismál Samfylkingin Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Innlent Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Erlent Óveður gengur yfir landið Innlent Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Innlent Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Fleiri fréttir Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Sjá meira