Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Árni Sæberg skrifar 31. ágúst 2026 15:49 Sigmundur Davíð og Þorgerður Katrín eru ekki sammála um bókun 35. Vísir Utanríkisráðherra segir að ekkert hafi verið á ákveðið á fundi utanríkismálanefndar, sem boðað var til í morgun. Til umræðu var hvort draga ætti umsókn Íslands að Evrópusambandinu formlega til baka og bókun 35. Formaður Miðflokksins segir að það væri með ólíkindum ef bókunin yrði keyrð í gegnum þingið í kjölfar afgerandi niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um helgina.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra óskaði eftir því að koma fyrir utanríkismálanefnd í morgun til þess að fara yfir stöðu mála, eftir að þjóðin hafnaði áframhaldandi aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Berghildur Erla Bernharðsdóttir fréttamaður ræddi við hana að fundi loknum. „Fyrst vil ég segja, varðandi fundinn núna, að þetta var ekki fundur þar sem ákvarðanir voru teknar. Þetta voru samræður og upplýsingar sem að ég var að miðla til þingmanna,“ segir hún. Alveg ljóst að bókunin verður lögð fram í haust Þá segir hún varðandi bókun 35 að það sé alveg ljóst að hún muni leggja hana fram strax í haust. „Ég tel að það hljóti að vera samhljómur í því að samþykkja hana. Við erum að gera það á okkar forsendum. Nú ef þetta fer einhverja aðra leið þá eru það aðrir sem taka ákvarðanir fyrir okkur í þessu máli og miðað við það sem var sagt fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna, þá vona ég að menn hafi nú verið að tala satt, að vilja raunverulega standa með EES-samningnum.“ Með stökustu ólíkindum Berghildur Erla ræddi einnig við Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins, að fundi loknum. Hann var á öndverðum meiði. „Það væri náttúrulega með stökustu ólíkindum ef ráðherrann ætlar að láta verða af því. Ef viðbrögðin við þessari skýru niðurstöðu, og hún er skýr, mjög skýr, í því ljósi að menn vildu ekki einu sinni fara í viðræður um að gefa eftir af fullveldinu, ef viðbrögð stjórnarinnar við því eru þau að leggja það til að ESB-reglur og -lög verði æðri íslenskum lögum, það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu.“ Er það ekki svo að EES-samningurinn geri kröfur um það að bókun 35 verði tekin upp hér? „Ég myndi segja þvert á móti, vegna þess að þegar samningurinn var samþykktur á sínum tíma þá var gengið frá bókun 35 með þeim hætti sem nú er, við getum kallað þetta undantekningu, undanþágu eða hvað menn vilja, en það var gert vegna þess að ella hefði ekki verið stuðningur við málið hér á þingi. Og ella hefði það ekki farið í gegn. Þess vegna var fundin þessi leið og hún verður að halda.“ Getum ekki lifað í ótta við sambandið og samninginn Spurður að því hvort hann óttist að Evrópusambandið segði hreinlega upp EES-samningnum ef ekkert yrði af innleiðingu bókunar 35 segir Sigmundur Davíð að ekki sé hægt að lifa í stöðugum ótta við ESB og EES-samninginn. EES-samningurinn hafi verið gerður á milli ólíkra aðila og eigi að þjóna hagsmunum þeirra allra. Verði Íslendingar hræddir við hann hætti hann að virka og hætti að þjóna hagsmunum okkar. Þurfum við ekki að virða hann? Ertu alveg sannfærður um að það sé ekki hluti af þeim samningi að taka upp bókun 35? „Ég er alveg sannfærður um að það var hluti af þeim samningi að taka upp bókunina með þeim hætti sem gert var, því það var ekki tilviljun, þetta voru ekki mistök. Þegar samningurinn var samþykktur þá var bókun 35 afgreidd gagnvart Íslandi með þessum sérstaka hætti og það var forsenda þess að við fórum inn í hann.“ Hvað ertu með á bak við þig í þessari túlkun? „Staðreyndir frá upphafi, frá því að málið var afgreitt hér á Alþingi, frá allri þeirri vinnu sem fór í að gera þennan samning og síðan að staðfesta hann hérna á þingi.“ Leiðrétting: Upphaflega var ritað að utanríkisráðherra hefði boðað til fundar utanríkismálanefndar. Ráðherra getur það ekki heldur óskaði hann eftir því að boðað yrði til fundarins.
Bókun 35 Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Alþingi Miðflokkurinn Viðreisn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Sjá meira