Bensínverð hækkar aftur á morgun Lovísa Arnardóttir skrifar 31. ágúst 2026 14:59 Eflaust fara margir að fylla á bílinn í dag og geta þannig sparað sér nokkrar krónur. Vísir/Vilhelm Virðisaukaskattur á bensín hækkar aftur á morgun úr 11 prósentum í 24 prósent og þar með bensínverðið.
Virðisaukaskattur á bensín og dísil var í maí lækkaður úr 24 prósentum í 11 prósent út sumarið eða til 31. ágúst samkvæmt tímabundinni heimild sem gefin var í lögum sem samþykkt voru á Alþingi í maí. Aðgerðin var hluti aðgerðapakka sem ríkisstjórnin tilkynnti um apríl gegn verðbólgu. Samkeppniseftirlitinu var í kjölfarið falið að fylgjast með því að lækkunin skilaði sér að fullu til neytenda. Í umræðuskjali Samkeppniseftirlitsins, sem gefið var út í byrjun júlí, kom fram að ekki væri hægt að fullyrða að virðisaukaskattslækkun eldsneytis hefði í öllum tilvikum skilað sér að fullu í endanlegu útsöluverði. Þar kom einnig fram að ýmsum spurningum væri enn ósvarað. Einhver olíufélög hafi hækkað verðið dagana fyrir gildistöku skattalækkunarinnar. Á síðunni gasvaktin.is, sem sækir verð á eldsneyti hjá flestum olíufélögum, mátti eftir virðisaukaskattslækkunina sjá að verð hefði lækkað eftir virðisaukaskattsbreytinguna um 26 til 27 krónur lítrinn á bensíni og dísil um 30 til 32 krónur. Þá var ódýrasti lítrinn af bensíni hjá Costco þar sem hann kostaði 198,3 krónur en þar þarf meðlimakort til að kaupa bensín. Á almennum bensínstöðvum var ódýrasti lítrinn hjá Orkunni þar sem hann kostar 202,3 krónur. Hjá Atlantsolíu var hann á 202,4 krónur. Í dag er lítrinn, samkvæmt sömu síðu, hjá Costco á 191,1 krónu og á 201 krónu hjá Orkunni. Hjá Atlantsolíu er lítrinn á 201,2 krónur og 201,3 hjá ÓB. Hjá N1 er lítrinn víða á 202 krónur en svo er verðið annað ef skoðað er á landsbyggðinni. Til dæmis er lítrinn á 216 krónur hjá Orkunni í Stykkishólmi og 225,3 hjá ÓB á Ísafirði. Lítrinn af dísil er ódýrastur hjá Costco á 224,3 krónur og svo á 234,3 krónur hjá Orkunni og 234,4 hjá Atlantsolíu.
Bensín og olía Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Neytendur Samkeppnismál Verðlag Fjármál heimilisins Skattar, tollar og gjöld Orkumál Tengdar fréttir Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir vaxtahækkun Seðlabankans vonbrigði. Hún viðurkennir að hækkanir opinberra gjalda hafi haft áhrif á verðbólgu en segir þær ekki óvenjumiklar í sögulegu samhengi. Hún vísar gagnrýni vegna fjölgunar opinberra starfsmanna til fyrirhugaðs aðhalds í ríkisfjármálum. 21. ágúst 2026 13:10 Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri? Donald Trump hefur heitið því að beita klerkastjórnina í Íran enn harðari efnahagsaðgerðum og þvinga Írani þannig til uppgjafar, þar sem beinn hernaður virðist ekki ætla að virka. Þá segist forsetinn ætla að einangra Íran með því að beita ríki sem eiga í viðskiptum við klerkastjórnina einnig refsiaðgerðum. 21. ágúst 2026 13:21 Segir efnahagsmálin og verðbólguna að þróast í rétta átt Forsætisráðherra vísar því á bug að stjórnvöld hafi látið áhyggjur verkalýðshreyfingarinnar vegna mögulegs forsendubrests kjarasamninga eins og vind um eyru þjóta. ASÍ og SA verði að koma sér saman um hvers konar aðgerðir þau vilji sjá. 11. ágúst 2026 12:10 Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira
Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir vaxtahækkun Seðlabankans vonbrigði. Hún viðurkennir að hækkanir opinberra gjalda hafi haft áhrif á verðbólgu en segir þær ekki óvenjumiklar í sögulegu samhengi. Hún vísar gagnrýni vegna fjölgunar opinberra starfsmanna til fyrirhugaðs aðhalds í ríkisfjármálum. 21. ágúst 2026 13:10
Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri? Donald Trump hefur heitið því að beita klerkastjórnina í Íran enn harðari efnahagsaðgerðum og þvinga Írani þannig til uppgjafar, þar sem beinn hernaður virðist ekki ætla að virka. Þá segist forsetinn ætla að einangra Íran með því að beita ríki sem eiga í viðskiptum við klerkastjórnina einnig refsiaðgerðum. 21. ágúst 2026 13:21
Segir efnahagsmálin og verðbólguna að þróast í rétta átt Forsætisráðherra vísar því á bug að stjórnvöld hafi látið áhyggjur verkalýðshreyfingarinnar vegna mögulegs forsendubrests kjarasamninga eins og vind um eyru þjóta. ASÍ og SA verði að koma sér saman um hvers konar aðgerðir þau vilji sjá. 11. ágúst 2026 12:10