Jón Arnór byrjar að þjálfa Sindri Sverrisson skrifar 28. ágúst 2026 10:02 Jón Arnór Stefánsson þekkir það betur en flestir að spila í Laugardalshöll. Nú mun hann stýra æfingum þar. vísir/Bára Jón Arnór Stefánsson, einn farsælasti körfuboltamaður Íslands frá upphafi, hefur ákveðið að miðla af þekkingu sinni sem þjálfari í vetur.
Jón Arnór er á meðal þeirra sem þjálfa munu í yngri flokkum körfuknattleiksdeildar Ármanns í vetur en æfingar hefjast í næstu viku. Hann mun þjálfa 10. og 11. flokk karla, sem sagt stráka sem fæddir eru 2011 og 2010, og þannig meðal annars þjálfa son sinn sem áður æfði með KR. Flokkarnir sem Jón þjálfar munu ýmist æfa í íþróttahúsi Kennaraháskólans eða í Laugardalshöll, þar sem Jón hefur átt margar eftirminnilegar stundir, þar á meðal þegar hann lék sinn 100. og síðasta landsleik, í febrúar 2019. Hann lagði skóna á hilluna vorið 2021. Jón Arnór lauk landsliðsferlinum í Laugardalshöll, með sínum 100. landsleik, en mun nú þjálfa unglinga þar.vísir/bára Hefur beitt sér fyrir bættri aðstöðu Jón Arnór er búsettur í Laugardal og hefur látið sig aðstöðumál í hverfinu varða. Hann var í viðtali við Guðjón Guðmundsson haustið 2021 þegar algjört neyðarástand ríkti hjá körfuknattleiksdeild Ármanns, einni allra stærstu körfuknattleiksdeild landsins, vegna lokunar Laugardalshallar. Jón valdi sjálfur á sínum tíma að æfa með KR í stað Ármanns til að komast í betri aðstöðu. „Síðan 1992, þegar ég byrja, þá er nánast sama staða ef ekki verri. Ármann er hér í hverfinu orðinn það stórt félag að aðstaðan er ekki boðleg. Það er stór ástæða fyrir því að ég fór í KR á sínum tíma og sama er að gerast fyrir mín börn,“ sagði Jón í viðtalinu fyrir fimm árum. „Ég er bara hérna sem íbúi þessa hverfis og faðir barna sem að stunda íþróttir með Þrótti og Ármanni, og vil vekja athygli á þessari hrikalega lélegu íþróttaaðstöðu sem við höfum í hverfinu. Þetta er mikið áhyggjuefni fyrir okkur foreldra. Börnin vilja stunda íþróttir, þau þurfa einhvers staðar að vera, og það er ekki aðstaða fyrir þau. Þetta er ákall til borgarinnar um að gera eitthvað í þessum málum,“ sagði Jón í viðtalinu. Síðan þá hefur Laugardalshöllin opnað á ný og verið aðalæfingahöll Ármenninga en þeir bíða þó enn eftir aðstöðu sem þeir geta haft út af fyrir sig. Þá æfa yngstu iðkendur enn í smáum íþróttasal Laugarnesskóla. Jón Arnór, sem er 43 ára, átti glæstan atvinnumannsferil og var meðal annars á mála hjá NBA-liði Dallas Mavericks í upphafi ferilsins, vann Evrópudeildartitil með rússneska liðinu Dynamo Saint Petersburg, en lék lengst af á Ítalíu og Spáni auk þess að vinna fjölda titla hér á landi með KR og Val. Hann var valinn íþróttamaður ársins ári 2014 og hefur langoftast karla verið valinn körfuboltamaður ársins á Íslandi eða alls 12 sinnum.
Ármann Körfubolti Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Íslenski boltinn „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Fleiri fréttir Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ Sjá meira