„Þetta er ekki alveg óvænt“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 27. ágúst 2026 22:25 Halla Gunnarsdóttir og Bjarni Benediktsson ræddu kjaramálin í kvöldfréttum Sýnar. Sýn Brostnar forsendur kjarasamninga komu hvorki Bjarna Benediktssyni, formanni Samtaka atvinnulífsins, né Höllu Gunnarsdóttur, formanni VR á óvart. Staðan sé alvarleg en telur Bjarni að samningsaðilar þurfi nú að setjast niður og rýna í stöðuna. Halla telur að verði ekkert gert sé það óhjákvæmlegt að segja upp kjarasamningunum.
Hagstofan birti í morgun niðurstöður verðmælinga ágústmánaðar og reyndist verðbólgan vera 5,6 prósent. Með því eru forsendur stöðugleikasamninganna, sem undirritaðir voru fyrir tveimur árum, brostnar. Þar var komist að samkomulagi um forsenduákvæði sem felur í sér að hægt væri að segja samningnum upp ef verðbólga mældist yfir 4,7 prósentum í ágúst 2026. „Við höfum svona séð þessa mynd teiknast upp. Þetta er ekki alveg óvænt,“ sagði Bjarni Benediktsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, í kvöldfréttum Sýnar. Það séu sérstaklega mikil vonbrigði að verðbólgan hafi verið að hjaðna fyrir ári síðan en síðan hafi verið spilað þannig úr málunum að hún jókst á ný. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, tekur undir að niðurstaðan hafi verið fyrirsjáanleg. „En það sem verra er að það hefði mátt fyrirbyggja og þar liggja svona mestu vonbrigðin. Við horfum í það að þegar kjarasamningar voru undirritaðir stóðu vonir til þess að verðbólga gengi niður og stýrivextir myndu fylgja á eftir,“ sagði hún. „Við erum búin að búa við næstum fjögur ár af háum stýrivöxtum. Verðbólgan og atvinnuleysi eru samt að færast í aukana. Þetta er mjög alvarleg staða.“ Hafi ekki raungerst Í sumar hafa stjórnvöld, ASÍ og Samtök atvinnuleysisins átt í þríhliða samtali sem Bjarni sagði að hefði mest gengið út á að greina stöðuna. Þau hafi komist að því hvernig kjör ólíkra hópa hafa þróast yfir tímabil kjarasamninganna og átt samtal um aðferðir til að draga úr vægi verðtryggingar. „Það verður samningsaðilanna að setjast niður. Þeir þurfa að setjast yfir stöðuna. Það liggur fyrir að forsendur eru brostnar og nú þarf að vega það og meta hvort að það kalli á viðbrögð og hvers konar viðbragð þá. Af okkar hálfu er aðaláherslan á það að baráttan við verðbólguna verður að halda áfram og viðbragðið verður að endurspegla það,“ sagði Bjarni. Halla sagði kjaramálin vera á eins konar núllpunkti. Eftir síðustu undirritun hafi þau vonast eftir því að stóru fyrirtækin sem hafi verðmótandi áhrif myndu halda aftur af verðhækkunum og ríki og sveitarfélög myndu stilla gjaldskrárhækkunum í hóf. „Hvorugt af þessu hefur raungerst,“ sagði hún og bætir við að hennar fylking sé afar ósátt við það andvaraleysi sem hafi einkennt stöðuna. „En við erum mætt í þetta samtal lausnamiðuð og viljum leggja okkar af mörkum. Stjórn VR er mjög ákveðin í því og fagfélögin sem við erum í samstarfi við að ef ekkert kemur til þá sé óhjákvæmlegt að segja upp kjarasamningum.“ Laun almennt hærri en samið var um Halla sagði að leita þurfi mögulega að einhverri leiðréttingu á stöðunni sem upp sé komin. Kjarasamningsbundin laun hafi minnkað minna en verðbólga og þrengt hafi mikið að barnafólki sem átti að passa. „Síðan þessa skuldbindingu, á því og við þurfum að hafa eitthvað í hendi þar, ekki bara falleg orð um að fyrirtæki séu tilbúin að taka þátt í þessu og draga úr verðhækkunum og um að stjórnvöld ætli ekki að kynda undir þessu báli.“ Bjarni sagði að almenn laun í dag væru hærri en samið var um í kjarasamningunum. „Við erum komin á það að launastigið á Íslandi er með því hæsta sem fyrirfinnst í Evrópu. Hlutfall af verðmætasköpun sem fer í launagreiðslu er mjög hátt á Íslandi. Gengið er sterkt, vextir eru háir og verðbólguvæntingar eru talsverðar, of miklar. Fyrir umhverfi fyrirtækjanna er staðan ekkert góð,“ sagði hann. Á endanum snúist málið um getu fyrirtækja til að standa undir háum launum. Það gangi ekki að búa við hátt vaxtastig, mikla verðbólgu fram undan og ósamkeppnishæft skattaumhverfi. „Það er í sjálfu sér mjög eftirsóknarvert að geta búið í umhverfi þar sem hægt er að greiða hvað hæstu laun í heiminum. En þá þurfa hin ytri skilyrði að vera til staðar,“ sagði Bjarni. „Eins og ég segi, launin í dag eru hærri en um var samið. Þannig að það er varla mikið að sækja til fyrirtækja í launaliðnum. Ég held hins vegar að á komandi vikum munum við sameiginlega. Við skoðum gögnin sem hafa verið unnin og liggja til grundvallar þessari stöðu.“
Efnahagsmál Kjaramál Verðlag Vinnumarkaður Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Fleiri fréttir Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sjá meira