Innherjamolar

Sam­starf við Bloom­berg til að auka sýni­leika ís­lenska markaðarins

Hörður Ægisson skrifar

Íslenska greiningarfyrirtækið Jakobsson Capital hefur gert samstarfssamning við Bloomberg, fjármála- og gagnaveitu, meðal annars í því skyni að reyna auka sýnileika íslenska markaðarins.

Snorri Jakobsson, framkvæmdastjóri og stofnandi Jakobsson Capital, segir ládeyðu og áhugaleysi hafa einkennt íslenskan hlutabréfamarkað síðustu misseri þrátt fyrir að verðlagning skráðra félaga sé almennt hagfelld. Heildarveltan, svo dæmi sé tekið, skrapp meðal annars saman um liðlega 45 prósent á fyrri árshelmingi og engar nýskráningar hafa orðið í Kauphöllinni frá árinu 2024.

„Íslenskur hlutabréfamarkaður er smár sem hlutfall af vergri landsframleiðslu og þátttaka almennings lítil í samanburði við þróuð ríki. Það hefur neikvæð áhrif á fjárfestingu og nýsköpun á Íslandi,“ útskýrir Snorri. Jakobsson Capital er eitt þriggja greiningafyrirtækja hér á landi sem birtir reglulega verðmöt um skráð félög – hin eru IFS Greining og Akkur – en Jakobsson heldur úti í dag umfjöllun um nítján fyrirtæki í Kauphöllinni.

Verðmatsgreiningar Jakobsson Capital hafa verið aðgengilegar áskrifendum fyrirtækisins á Bloomberg gagnaveitunni síðan í sumar. Verðmatsgengi og fjárfestingarráðgjöf félaga mun birtast öllum á Bloomberg skömmu eftir útgáfu verðmatsgreiningar, að sögn Snorra. Hann bætir við að það gætu orðið einhverjar breytingar á uppsetningu verðmata á næstu mánuðum, auk þess sem upplýsingagjöf um einstök félög á Bloomberg gagnveitunni aukist.

„Fyrsta skrefið er smátt en mikilvægt og af fyrri reynslu veit ég að dropinn holar steininn,“ segir Snorri.

Jakobsson Capital, sem var stofnað árið 2020, velti um sextíu milljónum króna á árinu 2025 og var hún nánast óbreytt frá fyrri ári. Tveir starfsmenn eru hjá félaginu.




Innherjamolar

Sjá meira


×