Ræður Ísland eitt við heilbrigðisverkefni framtíðarinnar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar 24. ágúst 2026 07:01 Við viljum vera í fremstu röð – en til þess þurfum við öflugt samstarf Ég hef áður skrifað um þær miklu breytingar sem bíða okkar þegar þjóðin eldist og fólk lifir lengur. Þar hef ég lagt áherslu á að við þurfum að þróa nýtt þjónustusamfélag sem hjálpar fólki að lifa lengur við heilsu, sjálfstæði og öryggi. Þessi samfélagsbreyting kallar á fleiri hjúkrunarrými, öflugri heimaþjónustu, endurhæfingu, nýjar tæknilausnir og fleira heilbrigðisstarfsfólk. En öldrun þjóðarinnar er aðeins einn hluti af miklu stærra verkefni. Langvinnum sjúkdómum fjölgar. Ný lyf og lækningatæki verða flóknari og dýrari. Samkeppni um lækna, hjúkrunarfræðinga og annað fagfólk harðnar. Við þurfum jafnframt að búa okkur undir lyfjaskort, heimsfaraldra, sýklalyfjaónæmi, netárásir og truflanir á aðfangakeðjum. Við viljum að Ísland verði áfram í fremstu röð meðal þjóða í heilbrigðismálum. Getur 400 þúsund manna þjóð tryggt ein og sér öll lyf, alla sérfræðiþekkingu, rannsóknir og viðbúnað sem heilbrigðisþjónusta framtíðarinnar krefst? Svarið er nei. Til þess þurfum við öflugt og varanlegt samstarf. ESB er stærsta og raunhæfasta samstarfsleiðin sem okkur stendur til boða. ESB tekur ekki yfir Landspítalann Ísland myndi áfram ákveða og setja lög um; hvernig Landspítalinn, heilsugæslan og hjúkrunarheimilin eru rekin. Við myndum áfram ákveða fjármögnun, laun starfsfólks, greiðsluþátttöku og forgangsröðun. Evrópusamstarfið snýst ekki um að afhenda öðrum íslenska heilbrigðiskerfið. Það snýst um að styrkja grunn þess með sameiginlegum kröfum, þekkingu og öryggisneti sem lítil ríki geta ekki byggt upp ein. Tíu stoðir evrópsks heilbrigðissamstarfsins Umfang samstarfs ESB-ríkjanna er mikið. Markmiðið er að samræma reglur, tryggja lágmarksöryggi og styðja ríkin við að bæta heilbrigðisþjónustuna. Samstarfið nær meðal annars til: 1. Gæða og öryggis lyfja Sameiginlegar reglur gilda um rannsóknir, framleiðslu, markaðsleyfi, dreifingu og eftirlit með aukaverkunum. 2. Öryggis lækningatækja Sameiginlegar kröfur eru gerðar til meðal annars hjartagangráða, gerviliða, blóðprófa, myndgreiningarbúnaðar og stafrænna heilbrigðislausna. 3. Viðurkenningar menntunar og starfsréttinda Reglurnar auðvelda læknum, hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum, tannlæknum og lyfjafræðingum að fá menntun og starfsréttindi viðurkennd milli ríkja. Það veitir Íslendingum tækifæri erlendis og auðveldar íslenskum heilbrigðisstofnunum að ráða hæft fagfólk. 4. Réttinda sjúklinga milli landa Sjúklingar geta undir ákveðnum skilyrðum sótt meðferð í öðru ESB- eða EES-ríki. Evrópska sjúkratryggingakortið tryggir einnig nauðsynlega þjónustu við tímabundna dvöl. 5. Samstarfs sérfræðinga og sjúkrahúsa Evrópsk samstarfsnet tengja saman sérfræðinga vegna sjaldgæfra og flókinna sjúkdóma. Þannig geta íslenskir sjúklingar notið þekkingar sem ekki er raunhæft að byggja upp að fullu hér. 6. Sóttvarna og heilbrigðisviðbúnaðar Ríkin vinna saman að eftirliti með smitsjúkdómum, áhættumati, rannsóknum, bóluefnum, lyfjum, hlífðarbúnaði og neyðarbirgðum. 7. Öryggis blóðs, líffæra, vefja og frumna Sameiginlegar lágmarkskröfur gilda um gæði, öryggi og rekjanleika þessara mikilvægu þátta heilbrigðisþjónustunnar. 8. Heilbrigðisgagna og rafrænna lyfseðla Evrópska heilbrigðisgagnarýmið á að auðvelda fólki að nálgast eigin gögn og nota rafræna lyfseðla milli ríkja með ströngum kröfum um persónuvernd. 9. Rannsókna og heilbrigðisnýsköpunar Samstarfið tengir háskóla, sjúkrahús, vísindamenn og fyrirtæki. Ísland hefur þar mikla möguleika á sviði erfðarannsókna, líftækni, fjarlækninga og gervigreindar. 10. Vinnuverndar og réttinda starfsfólks Sameiginlegar reglur mynda grunn um vinnutíma, hvíld, orlof, jafnrétti og öryggi heilbrigðisstarfsfólks. Laun og kjarasamningar eru áfram ákveðin í hverju ríki. Þetta samstarf leysir ekki öll vandamál heilbrigðiskerfanna. En það sýnir hversu umfangsmikið verkefnið er og hvers vegna þjóðir Evrópu telja sig sterkari saman. Smæð lyfjamarkaðarins kostar okkur Í greininni „Lyfjamál og ESB“ bendir Einar Magnússon, fyrrverandi lyfjamálastjóri heilbrigðisráðuneytisins, á að tæplega 3.000 lyf séu með markaðsleyfi á Íslandi en um 10.000 á hinum Norðurlöndunum. Afleiðingarnar eru minna lyfjaúrval, skortur á ódýrum samheitalyfjum, tíðari lyfjaskortur, minni samkeppni og hærri kostnaður. Í fyrri aðildarviðræðum var rætt um að tengja Ísland stærri lyfjamarkaði, nýta sameiginleg lyfjaútboð og taka upp rafræna fylgiseðla. Það gæti aukið lyfjaúrval, dregið úr skorti og lækkað kostnað. Við fáum ekki að vita hvort slíkar lausnir nást nema við höldum viðræðunum áfram. Við þurfum að innleiða reglurnar án þess að vera við borðið Ísland nýtur nú þegar margra kosta evrópsks heilbrigðissamstarfs vegna EES. Við tökum upp flestar lyfjareglur ESB og tökum þátt í Horizon Europe og EU4Health. En við höfum hvorki þingmenn á Evrópuþinginu né atkvæði í ráðherraráði ESB þegar reglurnar og framtíð samstarfsins eru mótuð. Við erum að miklu leyti áheyrnarfulltrúar. Með aðild fengjum við sæti við borðið og sterkari stöðu til að verja hagsmuni lítils íslensks heilbrigðis- og lyfjamarkaðar. Við viljum vera í fremstu röð Ísland á áfram að stjórna eigin heilbrigðiskerfi. En við getum ekki ein tryggt öll lyf, alla sérfræðiþekkingu, alla tækni og allan viðbúnað sem framtíðin krefst. Við þurfum að vinna með öðrum ef við ætlum að vera í fremstu röð. ESB er stærsta og raunhæfasta leið Íslands að slíku samstarfi. Já 29. ágúst er ekki já við aðild. Það er já við því að kanna hvort samningur við ESB geti styrkt íslenska heilbrigðiskerfið og tryggt stöðu okkar til framtíðar. Við megum ekki hafna þeirri leið áður en við sjáum hvað okkur stendur til boða. Sjáum samninginn. Höfundur er hagfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar