Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar 8. október 2026 13:46 Um helgina verða 40 ár liðin frá því að Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Míkhaíl Gorbatsjov, leiðtogi Sovétríkjanna, hittust í Höfða í Reykjavík. Fundurinn skilaði ekki þeim samningum sem menn höfðu vonast eftir og fyrstu dagana á eftir töldu margir hann hafa mistekist. En eftir því sem árin liðu kom betur í ljós hversu mikilvægur hann hafði verið. Þegar tuttugu ár voru liðin frá fundinum, árið 2006, var hann orðinn einn af merkari áföngunum á leiðinni að lokum kalda stríðsins. Það eru líka tuttugu ár síðan ég fékk tækifæri til að kynnast Gorbatsjov persónulega.Í byrjun árs 2006 kom Ólafur William Hand, vinur minn, að máli við mig með hugmynd um að fá Gorbatsjov aftur til Íslands í tilefni afmælisins. Fyrirtækið mitt, Concert, hafði verið umfangsmikið í tónleikahaldi á þessum árum og mér fannst spennandi að bjóða upp á fyrirlestur og samtal við þennan merka mann um Höfðafundinn og það sem á eftir fylgdi. Það gekk auðvitað ýmislegt á þessa daga. Mér er það afar minnistætt þegar einkavél Björgólfs Thors Björgólfssonar lenti með Gorbatsjov á Reykjavíkurflugvelli. Hann hafði boðist til að fljúga honum hingað og áfram til New York þangað sem leið Gorbatsjov lá til ávarpa þing Sameinuðu þjóðanna. Björgólfur var þá einn aðaleiganda Landsbankans sem aðstoðaði mig við að koma heimsóknini á. Skyndilega fyltist andyri flugstöðvarinnar af fulltrúm rússnesku leyniþjónustunnar sem þá var ekki burðugari en svo eða hættulegri í mínum huga að ég bað öryggisverðina mína að henda þeim út. Eitthvað sem maður myndi kannski ekki gera í dag. En það er önnur saga. Heimsóknin varð að veruleika og ég hef sagt frá ýmsu af þessu í lengra í bókinni Öll trixin í bókinni. Ólafur Ragnar Grímssson, þá forseti Íslands, Ragnheiður Elín Árnadóttir, sem þá starfaði með Geir H. Haarde þá Utanríkisráðherra og varð síðar ráðherra, Valgerður Sverrisdóttir Utanríkisráherra sem tók við embættinu rétt fyrir komu Gorbatsjov, Jón Kristinn Snæhólm aðstoðarmaður Borgarstjóra og Bandaríska sendiráðinu lögðu mér öll lið og ég hugsa til þess með þakklæti. Þegar ég rifja heimsóknina upp í dag eru það hins vegar ekki þessi uppátæki sem standa upp úr, heldur maðurinn sjálfur. Ég hafði auðvitað mínar hugmyndir um Gorbatsjov áður en ég hitti hann. Þetta var maður sem hafði verið leiðtogi annars tveggja stórvelda heimsins, staðið andspænis Ronald Reagan og tekið þátt í atburðum sem breyttu gangi heimssögunnar. Það sem kom mér mest á óvart var hversu hlýr og mannlegur hann var. Hann hafði húmor, var forvitinn um fólkið í kringum sig og virtist hafa einlæga ánægju af samskiptum við aðra. Það var lítið af þeirri fjarlægð eða tilgerð sem maður hefði kannski búist við frá manni sem hafði setið á einum valdamesta stól heimsins. Á þessum dögum gafst tækifæri til að hlusta á hann rifja upp samskipti sín við Reagan, Höfðafundinn og atburðina sem fylgdu í kjölfarið. Hann talaði af mikilli hlýju um Ísland og Íslendinga og það var greinilegt að heimsóknin árið 1986 hafði skilið eftir sig góðar minningar. Mér fannst stundum hálfótrúlegt að sitja þarna og hlusta á mann segja frá atburðum sem ég hafði sjálfur fylgst með í fréttum. Það var líka áhugavert að sjá hina hliðina á honum. Hliðina sem hafði misst eiginkonu sína, upplifað allar þessar ótrúlegu breytingar og haft öll þessi gríðarlegu völd.Hvað ef friðurinn kostar mann völdin? Eftir því sem árin líða hef ég hugsað meira um það hlutverk sem Gorbatsjov gegndi á þessum tíma. Þegar hann tók við forystu Sovétríkjanna hafði kalda stríðið staðið í áratugi og stórveldin eytt ótrúlegum fjármunum í vopnakapphlaup. Milljarðar manna bjuggu við þann veruleika að nokkrir einstaklingar gátu með ákvörðunum sínum hrundið af stað kjarnorkustyrjöld. Gorbatsjov ákvað að reyna að breyta þessu. Hann opnaði á samtal við Vesturlönd, tók upp viðræður við Reagan um fækkun kjarnorkuvopna og breytti samskiptum stórveldanna. Hann hóf líka umbætur heima fyrir sem á endanum áttu eftir að breyta Sovétríkjunum meira en hann hafði sjálfur séð fyrir. Hann hlaut að vita að það var ekki áhættulaust að breyta kerfi sem hafði byggt tilveru sína á miðstýringu, hernaðarlegum styrk og tortryggni gagnvart Vesturlöndum. Hann hlaut líka að vita að það yrðu margir innan þess kerfis sem myndu líta á slíkar breytingar sem veikleikamerki. Kannski gerði hann sér ekki grein fyrir því hversu langt þetta myndi ganga. Ég veit það auðvitað ekki. En ég velti því fyrir mér hvort hann hafi ekki einhvern tíma staðið frammi fyrir þeirri spurningu hvort hann ætti að verja eigin völd og stöðu eða halda áfram á þeirri braut sem hann taldi rétta. Það er auðvelt að tala um frið þegar maður þarf engu að fórna fyrir hann. En hvað þegar friðurinn gæti kostað mann völdin? Sagan er auðvitað flóknari en svo að Gorbatsjov hafi einn og óstuddur bundið enda á kalda stríðið. Þar komu margir við sögu, ekki síst Ronald Reagan, leiðtogar Evrópuríkja og fólkið í Austur-Evrópu sem krafðist breytinga. Gorbatsjov var heldur ekki gallalaus leiðtogi og arfleifð hans er enn umdeild. En það breytir ekki þeirri staðreynd að hann tók þátt í að opna á samtal sem hafði gríðarleg áhrif á heimsbyggðina og lagði grunn að afvopnunarsamningum sem áður höfðu virst fjarlægir. Á endanum liðu Sovétríkin undir lok og Gorbatsjov missti sjálfur völdin. Fjörutíu árum síðar Það er eiginlega ótrúlegt að hugsa til þess að fjörutíu ár séu liðin frá Höfðafundinum og tuttugu ár frá því að ég fékk að kynnast þessum manni. Stundum finnst mér heimsóknin árið 2006 hafa átt sér stað í öðru sólkerfi. Heimurinn hefur breyst svo mikið á þessum tuttugu árum. Vonirnar sem margir höfðu um friðsamlegri heim eftir lok kalda stríðsins virðast á köflum ansi fjarlægar í þeim veruleika sem við búum við í dag. Við erum aftur farin að horfa upp á stórveldi auka vígbúnað sinn, tala í hótunum og beita hernaðarlegum mætti til að ná fram markmiðum sínum. Tortryggnin milli austurs og vesturs er aftur orðin stór hluti af alþjóðastjórnmálum. Og þegar maður horfir á þá sem fara með völdin í austri og vestri í dag virðist þessi hæfileiki, að setja hag heildarinnar ofar eigin metnaði og hagsmunum, ekki áberandi. Ég veit ekki hvort hann leit sjálfur svo á að hann væri að fórna eigin völdum fyrir stærri hagsmuni. En ég held að hann hafi skilið að eitthvað varð að breytast. Að ekki væri hægt að halda áfram endalaust á sömu braut. Að það væri mikilvægara að reyna að draga úr ótta milljarða jarðarbúa og stöðva glórulaust vígbúnaðarkapphlaup en að halda fast í gamla heimsmynd. Það þarf ákveðið hugrekki til að setjast niður með þeim sem manni hefur alla tíð verið kennt að líta á sem óvin. Ég hef enga sérstaka trú á því að heimurinn verði nokkurn tíma laus við átök eða að stjórnmálamenn fari almennt að setja eigin metnað til hliðar fyrir stærri hagsmuni. En sagan hefur þó sýnt okkur að það er hægt. Höfðafundurinn árið 1986 er ágætis áminning um það. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast Míkhaíl Gorbatsjov. Ekki bara vegna þess hver hann var eða hvaða hlutverk hann hafði gegnt í heimssögunni, heldur vegna þess hvernig maður hann reyndist vera þegar við hittumst. Ég fékk að deila með honum nokkrum klukkustundum af ævi hans. Klukkustundum sem enn lifa með mér, tuttugu árum síðar. Heimurinn þarf fleiri sem treysta sér til að hringja í óvin sinn. Höfundur er framkvæmdastjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Einar Bárðarson Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Tvöfalt álag – frjósemi á vinnustað Sigríður Auðunsdóttir Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð skrifar Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á gervigreindinni? Kristján Logason skrifar Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson skrifar Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Tvöfalt álag – frjósemi á vinnustað Sigríður Auðunsdóttir skrifar Skoðun Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Að geta gert ráð fyrir góðu lífi Guðmundur Ármann Pétursson skrifar Skoðun Íslensk bókhaldsgögn eiga heima innan Evrópu Jóhann Tómas Sigurðsson skrifar Skoðun Enginn á að standa einn – sérstaklega ekki fyrir jólin Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Stillum ekki íþróttum og menningu upp sem andstæðum pólum Gunnar M. Gunnarsson skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn? Hópur fulltrúa í Ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða skrifar Skoðun Allir með Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested skrifar Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Börn með fjölþættan vanda – hver hugsar um framtíð þeirra? Þórdís Hulda Tómasdóttir skrifar Skoðun Hvað verður um störfin okkar? Auður Alfa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn minnkar kökuna Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Sjá meira
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar
Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir skrifar
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun