Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar 8. október 2026 10:30 Lífeyrissjóðir landsins eru orðnir gríðarlega stórir í samanburði við íslenskt hagkerfi. Eignir þeirra eru nú um 9.000 milljarðar króna, eða nærri tvöföld landsframleiðsla. Í lok árs 2025 námu eignir lífeyrissjóðanna 8.878 milljörðum króna og erlendar eignir þeirra 3.681 milljörðum (Seðlabankinn). Þetta vekur eðlilega upp spurninguna: Er sjálfgefið að ríkið eigi að veita þessum gríðarlegu fjármunum í fjárfestingu hjá lífeyrissjóðum, sem stöðugt horfa á færri góðar og öruggar fjárfestingar. Aðrir möguleikar virðast hagkvæmari sbr. eftirfarandi. Lífeyrisiðgjöld yrðu áfram greidd með sama hætti og nú. En í stað þess að allt iðgjaldið færi óskert inn í lífeyrissjóðina yrði ákveðinn hluti þess greiddur til ríkisins. Til dæmis mætti hugsa sér um 25% af heildariðgjaldinu. Eða upphæð sem nálgast raunverulegan tekjuskatt af því sem greitt er í sjóðina. Lífeyrisiðgjaldi er nú 15,5% og ef 25% af því eða samsvarandi tekjuskatti væri tekið strax til ríkisins og viðbótarprósenta þannig að 37.99% (2. þrep) af þessu iðgjaldi yrði tekið strax, myndi það þýða að um 4,65% af launum færi beint til ríkis og sveitar, en 10,85% héldi áfram að renna í lífeyrissjóðinn svipað og áður var. Miðað við núverandi heildarlaun myndi þetta skila ríkinu um 60 milljörðum króna á ári. Það er ekki smáupphæð. Til samanburðar námu heildartekjur ríkissjóðs um 1.520 milljörðum króna árið 2025. Ef greiðslan til ríkissjóð sem ígildi tekjuskatts færi nær raunverulegri prósentu, yrði þetta verulega hærra framlag í ríkiskassann sem eyrnamerkja mætti sem greiðslur til niðurgreiðslu skulda og fé í innviðafjárfestingu með arðsemi yfir tilteknum mörkum. Þetta væri því ný og veruleg tekjulind fyrir ríkissjóð. Þannig mundi ríkið fá strax verulegan ávinning af “tekjuskattinum”. Skuldastaða ríkissjóðs mundi batna ár frá ári þegar vaxtagreiðslur lækka. Þetta er mikilvægt því valið er ekki einfaldlega milli þess að ríkissjóður eða lífeyrissjóðirnir fái peningana. Ef ríkið notar peningana, skatttekjurnar til að greiða niður skuldir, er það að styrkja fjárhagsstöðu samfélagsins í heild. Lífeyrissjóðirnir halda áfram að fá stærstan hluta iðgjaldanna og fjárfesta eins og þeir gera nú, en væru undir minni þrýstingi. En hvað með ávöxtunina? Lífeyrissjóðirnir hafa orðið gríðarlega stórir og lok árs 2025 voru eignir þeirra 8.878 milljarðar króna. Þar af voru um 3.681 milljarður erlendar eignir. Það er ekki endilega slæmt. En það er heldur ekki sjálfgefið að samfélagið hafi hag af því að hvert nýtt lífeyrisiðgjald fari óskert inn í þennan eignasjóð. Ef ríkið getur í staðinn notað hluta fjárins til að greiða niður skuldir þarf að bera saman hið minnsta tvo hluti. Annars vegar ávöxtunina sem lífeyrissjóðurinn hefði fengið af þessum fjármunum. Hins vegar þann fjárhagslega ávinning sem ríkið fær með því að greiða niður skuldir og lækka vaxtabyrði sína. Ef sparnaður ríkissjóðs af lægri skuldum er nægilega mikill gætu þegnar og samfélagið verið betur statt, þótt lífeyrissjóðurinn fái aðeins minni fjármuni til fjárfestingar. Þetta þyrfti ekki að raska lífeyriskerfinu Mikilvægt er að þetta þýddi ekki að lífeyriskerfið yrði lagt niður eða að ríkið tæki eignir lífeyrissjóðanna. Eignirnar sem þegar hafa safnast upp yrðu áfram eign sjóðanna og réttindi sjóðfélaga myndu standa. Breytingin væri einfaldlega sú að framtíðariðgjöld yrðu skattlögð að hluta áður en þau færu inn í sjóðina og eyrnamerkt niðurgreiðslu skulda Íslendinga. Og skatturinn kæmi fyrr Í núverandi kerfi er iðgjald til lífeyrissjóðs frádráttarbært frá tekjum og lífeyririnn síðan skattlagður þegar hann er greiddur út. Lífeyrisgreiðslur teljast þannig til skattskyldra tekna þegar þær eru greiddar. Með nýju fyrirkomulagi myndi ríkið hins vegar fá hluta skatttekjanna strax. Það hefur verulegt fjárhagslegt gildi. Ríkið þyrfti ekki að bíða í áratugi eftir því að núverandi iðgjöld yrðu að lífeyrisgreiðslum og skatttekjum. Jafnframt myndi sá hluti iðgjaldsins sem eftir væri hjá lífeyrissjóðunum áfram ávaxtast og standa undir framtíðarlífeyri. Það væri líka ljóst að einstaklingurinn ætti aðeins að greiða fjármagnstekjuskatt af ávöxtun lífeyrissjóðsins en ekki tekjuskatt eins og núna. Slíkt fyrirkomulag mundi gleðja marga sem gremst að greiða tekjuskatt af takmörkuðum lífeyrisgreiðslum. Stærsta spurningin Stærsta spurningin er því ekki hvort lífeyrissjóðirnir séu mikilvægir. Þeir eru það. Spurningin er hvort það sé skynsamlegt að byggja upp sífellt stærri lífeyrissjóði á sama tíma og ríkið safnar skuldum og greiðir háa vexti af þeim. Lífeyrissjóðirnir eru nú þegar orðnir risaveldi í íslensku hagkerfi. Eignir þeirra eru um 180% af landsframleiðslu. Það er eðlilegt að spyrja hvort jafnvægið milli þessara tveggja þátta sé rétt. Kannski er kominn tími til að líta á hluta lífeyrissparnaðarins sem sameiginlegan þjóðhagslegt sparnað og spyrja hvort samfélagið fái ekki meiri ávinning af því að leggja hluta hans beint í að styrkja samfélagið strax með niðurgreiðslu skulda og betri innviða. Ef greiddur væri strax til ríkisins tekjuskattur af núverandi lífeyrisiðgjöldum gætu það skilað ríkissjóði um 60 milljörðum króna á ári væri og það er umtalsverð breyting. Jafnframt fengju sveitarfélögin verulegt útsvar því samanlagt nálgast þessi hluti iðgjaldanna 100 milljörðum króna. Og ef þessum fjármunum væri eingöngu varið til niðurgreiðslu skulda gætu jákvæð áhrif orðið enn meiri með tímanum: lægri skuldir, minni vaxtagreiðslur og þar með aukið svigrúm ríkisins til að lækka skatta eða verja fjármunum í heilbrigðisþjónustu, menntunar, innviða og grunnþjónustu. Þetta er spurning um það hvort samfélagið vilji halda áfram að byggja upp eitt stærsta lífeyriskerfi heims miðað við stærð hagkerfisins, sem vandkvæðum er háð vegna stærðar þess eða hvort hluti þessa gríðarlega fjármagns eigi að nýtast fyrr til að styrkja fjárhag ríkisins. Styrkja innviði og samfélag. Líka væri hægt að láta hluta þessa fjármagnsins nýtast t.d. fyrstu kaupendum húsnæðis, til að koma sér upp heimili. Það er líka sparnaður til efri áranna sem nýtist allri fjölskyldunni strax. Þetta er umræða sem Íslendingar ættu að geta tekið án þess að gera ráð fyrir að núverandi fyrirkomulag sé heilagt. Höfundur er fjármálahagfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Sjá meira
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun