Erum við að fóðra glæpaheiminn og bótakerfin? Davíð Bergmann skrifar 14. ágúst 2026 16:16 Þetta er þriðji og síðasti hluti greinaflokksins sem hófst með greininni „Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll?“ og hélt áfram með grein sem var annar hluti“ MBA, meðvirkni, bómullar- og aumingjavæðing“. Erum við sem samfélag markvisst að rækta jarðveg fyrir skipulagða glæpastarfsemi og ævilanga örorku? Ef ég er spurður er svarið afdráttarlaust: Já. Á meðan við skellum hurðum framan í ungt fólk í skólakerfinu, sveltum forvarnir og hundsum raunveruleg sóknarfæri, erum við að gera nákvæmlega það. Tölurnar ljúga ekki: Í skýrslunni Forvarnir og geðrækt á höfuðborgarsvæðinu kom fram að um 3.000 ungmenni á aldrinum 16 til 24 ára voru hvorki í skóla né vinnu, eingöngu á höfuðborgarsvæðinu. Halla Gunnarsdóttir formaður VR benti nýverið á sömu grafalvarlegu staðreynd, að allt að 18% ungmenna á þessum aldri standa algjörlega utan kerfa. Þetta er ekki bara tölfræði á blaði. Þetta eru þúsundir ungra einstaklinga sem fá aðra leiðina, one way ticket, beint inn í bótakerfin eða í gin glæpa- og fíkniheimsins. Og við sem samfélag erum, meðvitað eða ómeðvitað, að vísa þeim veginn. Hvað kostar aðgerðaleysið? Örorkufjölgun ungs fólks er óyggjandi vitnisburður um kerfislægt gjaldþrot. Í grein Odds Ingimarssonar læknis í Læknablaðinu (2025) er dregin upp miskunnarlaus mynd af tímabilinu 2014 til 2022: Örorka hjá 18 til 29 ára jókst um 13,6% Örorka hjá 30 til 49 ára jókst um rúm 20% Til samanburðar jókst hún aðeins um 4,3% hjá fólki á aldrinum 50 til 59 ára. Tap á atvinnutekjum samfélagsins af því að missa einn 27 ára einstakling af vinnumarkaði í 40 ár nemur tæplega 170 milljónum króna (núvirt). Samt horfum við aðgerðalaus upp á hundruð ungra einstaklinga hverfa á hverju einasta ári inn í varanlegt vonleysi. Sænska leiðin eða raunveruleg úrræði? Við munum aldrei útrýma glæpum eða fíkn með öllu, en við getum dregið stórkostlega úr eftirspurninni eftir því að tilheyra þeim heimi. Ef við bjóðum ungu fólki ekki upp á viðurkennt samhengi, tilgang og tækifæri, þá grípur glæpaheimurinn það. Nú þegar nýtir skipulögð glæpastarfsemi sér berskjölduð ungmenni, þar á meðal unga innflytjendur sem ekki hafa náð að festa hér rætur. Þetta er nákvæmlega sænska martröðin að raungerast á Íslandi. Lausnin felst ekki í því að vopnvæða lögregluna eða fjölga í sérsveitinni, þótt vopnuðum útköllum hennar hafi fjölgað tólffalt á einum áratug. Hún felst heldur ekki í því að bjóða leigumorðingjum afslátt af dómum, þar sem menn ganga lausir eftir örfá ár fyrir að skjóta mann níu skotum í bak og hnakka í hreinni aftöku. Hvaða skilaboð eru það? Lögregluvald og refsingar lækna engin mein. Þau plástra bara einkennin. Verðmiðinn á lífi og framtíð Þegar dóttir Jóhannesar Kr. Kristjánssonar blaðamanns lést af völdum ofskammts árið 2010, aðeins 17 ára að aldri, lét hann reikna út hið beinharða samfélagslega tap af því að missa manneskju í blóma lífsins. Það voru 800 milljónir króna á þágildandi verðlagi, en talan er örugglega margfalt hærri í dag. Síðan þá hafa tugir ungra einstaklinga fallið frá í blóma lífsins af sömu ástæðu. Hvað kostar að byggja upp öfluga fjölsmiðju og raunveruleg framtíðarúrræði? Tvo til þrjá milljarða? Hvað er það í samanburði við hundruð milljóna eða milljarða tap í peningum á mannslífum, glæpum og óbætanlegum skaða? Eða eigum við að horfa í aurinn í því samhengi? Þar sem græna gímaldið rís núna öllum til ama á besta stað fórum við stórkostlega á mis við að reisa öflugt skólatorg og starfsþjálfun í anda Fjölsmiðjunnar. Það endurspeglar nákvæmlega hvar forgangsröðunin liggur í þessu samfélagi að mínu mati. Gjaldfallin innviðaskuld Allir einstaklingar hafa frumþörf fyrir að tilheyra. Innviðaskuldin í mennta-, félags-, heilbrigðis-, dóms- og fangelsismálum er gjaldfallin. Ef við greiðum hana ekki höldum við áfram að greiða margfalt hærri reikning í ótta, dauða og bótakerfum og sendum út tvöföld skilaboð. Eftir rúma þrjá áratugi af störfum á þessum vettvangi og tugi greinaskrifa læt ég hér staðar numið. Ég hef sagt allt sem segja þarf í þeim skrifum. Að lokum spyr ég: Viljum við reka heilbrigt og réttlátt samfélag, eða er verðmiðinn of dýr? Á þetta land bara að vera fyrir þá fáu útvöldu sem passa inn í akademísk box og verða aldrei hornreka? Hversu lengi ætlum við að steypa ungu fólki út á jaðarinn sem stóð veikt fyrir? Ætlum við að stefna því eitthvert eða láta það halda áfram að húkka á stoppistöð sem er fyrir löngu búið að taka úr gildi og breyta leiðakerfinu, með öðrum orðum: Fara þau one way ticket hvert? Höfundur er starfsmaður Fjölsmiðjunnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Davíð Bergmann Mest lesið Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir Skoðun Er EES samningurinn orðinn klafi á Íslendinga? Eggert Guðmundsson Skoðun Starfsfólkið stóð vaktina en stjórnvöld stóðu ekki við sitt Leifur Þorkelsson Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson Skoðun Skiptir máli að skipta máli í vinnunni? Sigrún Þóra Sveinsdóttir Skoðun Haust til hægri Baldvin Björgvinsson Skoðun Kona með spegil Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Stöndum vörð um okkar mikilvægustu atvinnugrein Björgvin Jóhannesson Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Virðing er ekki veikleiki Theodór Francis Birgisson skrifar Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar Skoðun Skiptir máli að skipta máli í vinnunni? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Er EES samningurinn orðinn klafi á Íslendinga? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Kona með spegil Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Haust til hægri Baldvin Björgvinsson skrifar Skoðun Starfsfólkið stóð vaktina en stjórnvöld stóðu ekki við sitt Leifur Þorkelsson skrifar Skoðun Það sem ekki sést í Excel-skjali skrifar Skoðun Hver sat við borðið? Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Núll sem heldur Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Grindavík var ekki svartur svanur Snorri Birgisson skrifar Skoðun Stóra samhengið sem gleymdist Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir skrifar Skoðun Stöndum vörð um okkar mikilvægustu atvinnugrein Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Óvissa og ágreiningur SÁÁ bitnar á notendum þjónustunnar Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Sjá meira
Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar
Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar