Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. ágúst 2026 22:02 Luka Doncic, stórstjarna Los Angeles Lakers og Kristrún Mjöll Frostadóttir, forsætisráðherra Íslands. Getty/Nic Antaya/Vísir/Vilhelm NBA-körfuboltafélagið Los Angeles Lakers gengur nú kaupum og sölum og í dag var það selt fyrir metfé í annað skiptið á rúmu ári.
Kaupverðið að þessu sinni er 12,5 milljarðar Bandaríkjadala eða um 1544 milljarðar íslenskra króna sem er það langmesta sem einhver hefur fengið fyrir íþróttafélag í Bandaríkjunum. Þetta er líka það stór upphæð að það er erfitt að setja hana í samhengi við eitthvað sem almenningur áttar sig á en það væri þó hægt að bera hana saman við ríkissjóð Íslands. Rekstur ríkissjóðs Íslands felur í sér stjórn á opinberum fjármálum, innheimtu skatta og úthlutun fjárheimilda samkvæmt fjárlögum, en árið 2026 er gert ráð fyrir að heildartekjur ríkisins verði um 1.591 milljarður króna. Við Íslendingar gætum því næstum því rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers. Kaupendurnir eru fyrrverandi forstjóri Disney, Bob Iger, og áhættufjárfestirinn Josh Kushner en sá síðastnefndi er yngri bróðir Jared Kushner sem er eiginmaður Ivönku Trump og hann er því tengdasonur Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Mark Walter hafði keypt meirihlutaeign í Lakers af Buss-fjölskyldunni á síðasta ári fyrir þáverandi metverðmat á liðinu upp á um tíu milljarða dala. Hann hagnaðist því um tvo milljarða dala eða 247 milljarða á þessum stutta tíma. „Sem ævilangir NBA-aðdáendur erum við afar stoltir af því tækifæri að verða ráðsmenn Los Angeles Lakers, eins þekktasta íþróttafélags í heimi. Við berum mikla virðingu fyrir forystu og framtíðarsýn Jerry og Jeanie Buss. Langtímaskuldbinding okkar er að byggja á þeim grunni, keppa á hæsta stigi og þjóna þessu ótrúlega liði, aðdáendum þess og borginni Los Angeles,“ sögðu Kushner og Iger í yfirlýsingu. Walter, forstjóri og stjórnarformaður fjárfestingafélagsins TWG Global, hefur verið meirihlutaeigandi Lakers síðan í október síðastliðnum þegar tilboð hans var samþykkt einróma af NBA. „Að eiga Los Angeles Lakers hefur verið einn mesti heiður lífs míns – ótrúleg fjárfesting, en það sem ég mun búa að er samfélagið, aðdáendurnir og borgin sem kemur fram við þetta lið sem fjölskyldu. Ég er þakklátur Jeanie Buss, Buss-fjölskyldunni, leikmönnunum og starfsfólkinu fyrir að bjóða mig velkominn í þennan kafla. Lakers tilheyrir Los Angeles og ég er fullviss um að það besta er enn framundan,“ sagði Walter í yfirlýsingu en enginn hefur örugglega grætt jafnmikið á íþróttafélagi á jafnstuttum tíma og hann.
NBA Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Lakers selt fyrir metupphæð Körfubolti Keyptu kynlífsþjónustu fyrir dómara með korti sambandsins Fótbolti Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Enski boltinn Æfði með tveggja feta snák í hjálminum Sport Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Enski boltinn Staðfestir brottför Gunnars: „Einn besti varnarmaður frá upphafi“ Íslenski boltinn Messi opnar sig um föðurmissinn: „Veit ekki hvernig ég á að halda áfram“ Fótbolti „Viss um að þetta sé rétta skrefið fyrir feril minn“ Fótbolti Ronaldo gifti sig í fámenni Fótbolti Gunnlaugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti Golf Fleiri fréttir Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjöfaldur NBA meistari kennir íslenskum krökkum að setja stóru skotin Njarðvík semur við Sadio Doucouré Berglind með 33 stig í fyrsta leik og strákarnir unnu Úkraínu Hilmir greiddi sjálfur fyrir félagaskiptin með launalækkun Sótti silfur á EM eftir rúmt ár af meiðslum Ármenningar semja við fyrrum Íslandsmeistara Stjarnan tekur efnilegan leikmann frá Álftanesi Sneru leiknum á síðustu stundu og komust áfram Stelpurnar rúlluðu yfir Hollendinga Rebekka með 31 stig í góðum sigri á Portúgal NBA-stjarna skuldar Cam Newton 32 milljónir vegna vangreiddrar leigu Náðu ekki að halda í við heimaliðið í fyrsta leik EM Strákarnir spila um fimmtánda sætið Misstu Svisslendingana frá sér á hræðilegum lokamínútum Sjá meira