Formúla 1

Ný­liðarnir skipta um liðs­stjóra

Andri Broddason skrifar
Marcin Budkowski hefur tekið við störfum sem liðsstjóri Cadillac
Marcin Budkowski hefur tekið við störfum sem liðsstjóri Cadillac Cadillac

Cadillac hefur ráðið Marcin Budkowski sem liðsstjóra í Formúlu 1. Hann tekur við af Greame Lowdon sem var liðsstjóri Cadillac.

Nýtt lið bættist við í Formúlu 1-keppnina á þessu tímabili og eru liðin nú orðin ellefu. Bandaríski bílaframleiðandinn Cadillac hefur lengi sýnt áhuga á að verða hluti af Formúlu 1 og fékk liðið loks leyfi á þessu tímabili.

Cadillac er eina stigalausa lið tímabilsins hingað til en Aston Martin er einu sæti fyrir ofan með aðeins eitt stig. Ökumenn Cadillac eru þeir Valtteri Bottas og Sergio Perez en þeir koma með mikla reynslu í liðið. Þeir hafa báðir endað heimsmeistaramótið í öðru sæti á eftir liðsfélögum sínum. Bottas endaði í öðru sæti á eftir Lewis Hamilton þegar þeir keyrðu fyrir Mercedes og Perez endaði í öðru sæti á eftir Max Verstappen hjá Red Bull.

Greame Lowdon hóf tímabilið sem liðsstjóri Caddilac-liðsins en fyrir það hafði hann verið fjarverandi frá Formúlu 1 í tíu ár. Nú hefur Marcin Budkowski tekið við sem liðsstjóri en hann starfaði síðast fyrir Alpine. Þar sá hann um liðið á meðan það var að breytast úr Renault yfir í Alpine.

Budowski hefur ekki starfað hjá öðru liði síðan árið 2022 en þrátt fyrir það er hann með yfir tveggja áratuga reynslu hjá liðum í Formúlu 1. Það er gulls ígildi fyrir nýtt lið sem er enn að koma sér fyrir í keppninni.

Í tilkynningu frá Cadillac segir Budowski að þessi tími liðsins sé uppfullur af tækifærum.

„Liðið hefur skýrt markmið: að þróa bílinn eins mikið og mögulegt er án þess að fara yfir kostnaðarþakið. Það þýðir að setja sigurhugarfar í allar hliðar liðsins og halda ótrauð áfram þrátt fyrir bakslög. Mín áhersla verður að sjá til þess að upplýsingar flæði vel innan liðsins og til réttu aðilanna svo réttar ákvarðanir séu teknar strax. Það mun skila sér í frammistöðu liðsins þegar við hefjum kappakstur.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×