Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Kjartan Kjartansson skrifar 11. ágúst 2026 10:39 Donald Trump Bandaríkjaforseti heldur á útprenti af færslu hans á Truth Social. Forsetinn selur nú fyrirtækjum forgangsaðgang að færslum hans á samfélagsmiðllinum sem geta veitt þeim mikilvægt forskot á keppinauta á fjármálamörkuðum. AP/Julia Demaree Á annan tug fyrirtækja hafa þegar gerst áskrifendur að nýrri þjónustu samfélagsmiðlafyrirtækis Donalds Trump Bandaríkjaforseta sem veitir þeim aðgang að yfirlýsingum forsetans á undan öðrum. Fyrir það eru fyrirtækin sögð greiða forsetanum milljónir á hverjum mánuði.
Félag sem er í meirihlutaeigu Trump-fjölskyldunnar og rekur samfélagsmiðilinn Truth Social byrjaði að selja aðgang að nýrri þjónustu sem það kallar Truth API um mánaðamótin. Hún veitir fjárfestum á Wall Street aðgang að færslum á samfélagsmiðli forsetans á undan öðrum. Áskriftin að þjónustunni er sögð kosta á bilinu 60.000 til 100.000 dollara, jafnvirði allt að rúmlega tólf milljóna íslenskra króna, á mánuði, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins. Notendafjöldi og dagleg umferð um Truth Social er aðeins brot af því sem gerist X, allsherjarforritinu, sem samfélagsmiðill Trump eftir eftirlíking af. X sjálft kemst þó ekki á lista yfir tíu mest notuðu samfélagmiða heims. Trump sjálfur er þannig langstærsta aðdráttarafl Truth Social en þar birtir hann iðulega yfirlýsingar og tilkynningar sem hafa margar mikil áhrif á fjármálamarkaði á milli þess sem hann dreifir furðulegum gervigreindarmyndum og myndböndum af sér og óvinum sínum. Færslur Trump á Truth Social um átökin við Íran sem hófust í vetur hafa til dæmis ítrekað hreyft við olíuverði og hlutabréfamörkuðum. Gæti gerst sekur um innherjasvik Framtak samfélagsmiðlafyrirtækis Trump hefur af þessum sökum sætt harðri gagnrýni. Það sé í besta falli ósiðlegt og í versta falli kolólöglegt. Með þjónustunni hagnist forsetinn beint á því að selja fyrirtækjum forgang að hans eigin opinberu yfirlýsingum sem veiti þeim forskot á aðra fjárfesta þegar þessar yfirlýsingar hrista upp í mörkuðum. Richard Painter, aðalráðgjafi George W. Bush, fyrrverandi forseta, í siðamálum, sagði breska ríkisútvarpinu nýlega að Trump gæti gerst sekur um innherjasvik með sölunni á forgangi að samfélagsmiðlafærslunum. „Ef ég bý yfir upplýsingum sem tilheyra Bandaríkjastjórn sem ég má ekki nota til þess að stunda viðskipti en ég gef öðrum upplýsingarnar sem greiða mér fyrir þær og þeir stunda viðskipti og ég veit að þeir eru líklegir til þess að stunda viðskipti þá er ég líka sekur um innherjasvik og þeir líka,“ sagði Painter. Trump-fjölskyldan á um fjörutíu prósen hlutafjár í Trump Media and Technology. Félagið á Truth Social og hefur braskað með rafmyntir.AP/John Minchillo Innherjalögin næðu þó aðeins til ákveðinna færslna forsetans, þar á meðal um tolla, stríðsrekstur og aðrar stjórnarathafnir. Gekk Painter svo langt að segja að forstjóri Verðbréfaeftirlits Bandaríkjanna (SEC) ætti að hóta því að segja af sér ef Truth Social félli ekki frá áformunum eða undanskildi færslur forsetans um stjórnarathafnir frá þjónustunni. Veðjað grimmt rétt fyrir færslur Trump Ítrekað hefur verið braskað og brallað rétt fyrir tilkynningar Trump á Truth Social á undanförnum mánuðum. Svo rammt kvað að þessu að Hvíta húsið sendi starfsmönnum sínum tölvupóst í vor þar sem þeir voru varaðir við því að nýta sér innherjaupplýsingar til þess að leggja fé undir á veðmálasíðum. Bandarískur hermaður var handtekinn í apríl vegna gruns um að hann hefði nýtt sér innherjaupplýsingar til þess að veðja á að Bandaríkjastjórn tæki Nicolás Maduro, forseta Maduro, höndum í janúar. Hann vann jafnvirði tuga milljóna króna á veðmálasíðunni Polymarket. Mikill taprekstur vegna niðursveiflu í rafmyntum Truth Media and Technology, eigandi Truth Social, greindi frá 238 milljóna dollara tapi, jafnvirði hátt í 29,5 milljarða íslenskra króna, á öðrum ársfjórðungi í gær. Það var tífalt meira tap en í fyrra. Stór hluti tapsins skýrist af verðfalli á rafmyntunum Bitcoin og Cronos. Félag forsetafjölskyldunnar segist nú ætla að einbeita sér frekar að samfélagsmiðlarekstrinum og síður að rafmyntabraski og samstarfi við veðmálafyrirtæki.
Donald Trump Bandaríkin Efnahagsbrot Fjármálamarkaðir Samfélagsmiðlar Mest lesið Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Viðskipti erlent Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Viðskipti innlent Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Viðskipti innlent Breytingar á fyrsta farrými Neytendur Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Viðskipti innlent Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Viðskipti innlent Hreyfing: Ekki lengur þörf á að greiða tugi þúsunda yfir mánuðinn Atvinnulíf Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Viðskipti innlent Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira