Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Árni Sæberg skrifar 7. ágúst 2026 11:03 Áslaug Arna sat lengi á þingi. Vísir/Vilhelm Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, hefur verið ráðin til íslenska tæknifyrirtækisins Fenris Creations, sem hét áður CCP. Þar mun hún leiða nýtt verkefni tengt gervigreind, með starfstöð í London.
Þetta segir í fréttatilkynningu frá Fenris Creations. Áslaug Arna tilkynnti nokkuð óvænt þann 3. júní síðastliðinn að hún hefði ákveðið að láta af þingmennsku. Hún hafði setið á þingi frá árinu 2016 og gengt embætti dómsmálaráðherra, vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Margir hafa velt því fyrir sér hvað tekur við eftir langan feril hennar í pólitík en hún hafði áður tekið sér nokkurra mánaða leyfi til þess að leggja stund á MPA-nám (e. Master in Public Administration in Global Leadership) við Columbia-háskóla í New York. Nú er komið í ljós að hún hefir ráðið sig til Fenris Creations í starf sem nefnist Senior director AI partnerships á ensku. Það gæti útlagst á íslensku framkvæmdastjóri samstarfs á sviði gervigreindar. Prófa hegðun gervigreindarlíkana í sýndarheimum Í fréttatilkynningu segir að hún leiði nýtt gervigreindarverkefni félagsins og stýri uppbyggingu prófunarvettvangs fyrir gervigreind í EVE Frontier. Þá muni hún leiða samstarf félagsins við rannsóknastofur á sviði gervigreindar, háskóla, stefnumótendur og lykilsamstarfsaðila um nýtt rannsóknarverkefni sem tengist EVE Frontier. „Fenris Creations hefur unnið að þróun verkefnisins undanfarna mánuði en það byggir á þeirri kenningu að sýndarheimar á borð við EVE Frontier geti orðið kjörinn prófunarvettvangur til að rannsaka hegðun háþróaðra gervigreindarlíkana í flóknu og síbreytilegu umhverfi, áður en þau verða hluti af daglegu lífi okkar. Markmiðið er að prófunarvettvangurinn verði mikilvægt framlag til rannsókna á gervigreind og um leið opna á nýtt hlutverk fyrir Fenris Creations og EVE Frontier.“ Í stað þess að reiða sig eingöngu á skammlífar hermanir sé ætlunin að skapa vettvang þar sem hægt er að fylgjast með sjálfstæðum kerfum við aðstæður sem líkjast raunverulegu hagkerfi sem mest. Þar starfi kerfin innan um raunverulegt fólk og ákvarðanir þeirra hafi raunverulegar afleiðingar í hinu síbreytilega umhverfi EVE heimsins. EVE heimurinn henti sérlega vel Þá segir að EVE heimurinn henti sérstaklega vel til slíkra rannsókna. Í meira en tvo áratugi hafi þar þróast lifandi sýndarhagkerfi með viðskiptum, framleiðslukeðjum, gjaldmiðlum, og hrávörumörkuðum, svo ekki sé minnst á bandalög, átök, svik, gróða og tap. Þessi heimur hafi mótast af hundruðum þúsunda raunverulegra þátttakenda með allri þeirri ófyrirsjáanlegu hegðun sem þeim fylgja. Ólíkt mörgum leikjum eigi EVE heimurinn sér ekki upphaf og endi: Mistök standi, skuldir hverfi ekki, sambönd endist og orðspor fylgi þátttakendum. Það geri hann að einum fárra staða þar sem hægt er að rannsaka hegðun sjálfstæðra kerfa við aðstæður sem líkjast raunverulegu hagkerfi og samfélagi. „Í EVE Frontier, nýjum kafla í EVE heiminum, verður sýndarheimurinn nýttur til að rannsaka hvernig sjálfstæð gervigreindarlíkön setja sér markmið, bregðast við breytingum og taka samhangandi ákvarðanir yfir lengri tíma. Þannig geta rannsakendur lagt nákvæmara mat á hegðun líkana við raunaðstæður og stuðlað að ábyrgri þróun gervigreindarkerfa. Takist verkefnið gæti það orðið mikilvægt framlag til rannsókna á greindum gerendum (e. intelligent agents), flóknum kerfum og aðlögun gervigreindar. Jafnframt gæti það skapað alveg nýtt hlutverk fyrir Fenris Creations og EVE Frontier.“ Það sem geri þessa vinnu mögulega sé umfang og langlífi þess sem þegar hafi verið byggt upp. Fenris leggi til reynslu sína af þróun og rekstri viðvarandi sýndarheima, ásamt þeirri þekkingu á verkfræði, hönnun og samfélagsuppbyggingu sem þurfi til að kanna hegðun sjálfstæðrar gervigreindar. Fáir sýndarheimar bjóði upp á sambærilega blöndu af samfellu, margbreytileika og langtíma þátttöku fólks. Hvergi annars staðar að finna Haft er eftir Hilmari Veigari Péturssyni, forstjóra Fenris Creations, að hverri stórri framþróun í gervigreind hafi fylgt þörf fyrir nýjan prófunarvettvang. „Við teljum að viðvarandi sýndarheimar séu næsta skrefið. EVE Frontier býður upp á nokkuð sem er hvergi annars staðar að finna: Lifandi hagkerfi þar sem greindir gerendur geta lært, unnið saman, keppt og gert mistök sem hafa varanlegar afleiðingar. Við erum afar spennt að bjóða Áslaugu velkomna til Fenris, þar sem hún mun hjálpa okkur að leiða það alþjóðlega samstarf sem þarf til að gera þessa framtíðarsýn að veruleika.“ „Eftir að hafa kynnst af eigin raun hvernig stefnumótun fer fram og henni er hrint í framkvæmd er ég spennt að fá að nýta pólitíska reynslu mína í þessu nýja hlutverki. Fátt býður upp á betra tækifæri til að móta framtíð nýsköpunar í gervigreind en að taka þátt í uppbyggingu prófunarvettvangs sem gerir samstarfsaðilum okkar kleift að ná raunverulegum árangri í samskiptum við eftirlits- og stjórnvöld. Þannig getum við stuðlað að öruggum, hagnýtum og áreiðanlegum stöðlum fyrir gervigreind. Ég hlakka til að hjálpa Fenris að þróa þetta starf áfram með ábyrgum hætti,“ er haft eftir Áslaugu Örnu. Aftur í eigu Íslendinga Fenris Creations var stofnað á Íslandi árið 1997 undir heitinu CCP Games. Nafni félagsins var breytt í maí síðastliðnum eftir að stjórnendur þess keyptu fyrirtækið aftur af fyrirtæki frá Suður-Kóreu en það var gert með aðkomu Aldir ehf. Omega ehf. og tæknirisans Google. Fyrirtækið er nú að mestu í eigu Íslendinga og höfuðstöðvar þess eru í Reykjavík en það rekur einnig starfsstöðvar í London og Shanghai. Fréttin hefur verið uppfærð eftir að fréttatilkynning barst.
Vistaskipti Tækni Gervigreind Tengdar fréttir Hefur þegar fengið starfstilboð Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir segir að það að ganga í gegnum erfiðleika hafi mótað hana mest. Áslaug gengur stolt frá störfum sínum á þingi en segist munu sakna þess að takast á um framtíð landsins. Starfstilboð eru þegar farin að berast Áslaugu sem er nýkomin heim úr meistaranámi í Bandaríkjunum. 11. júní 2026 16:24 Mest lesið Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Viðskipti innlent Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Neytendur Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Framúrskarandi fyrirtæki Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Sjá meira
Hefur þegar fengið starfstilboð Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir segir að það að ganga í gegnum erfiðleika hafi mótað hana mest. Áslaug gengur stolt frá störfum sínum á þingi en segist munu sakna þess að takast á um framtíð landsins. Starfstilboð eru þegar farin að berast Áslaugu sem er nýkomin heim úr meistaranámi í Bandaríkjunum. 11. júní 2026 16:24