Eigi veldur sá er varar Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar 7. ágúst 2026 09:31 Í grein á vísi.is og fésbókarfærslum hafa forystumenn sjómanna gert athugasemd við það að Vinnslustöðin (VSV) skipti út 3.000 tonnum af makríl fyrir liðlega 1.400 tonn af þorski. Ástæða skiptanna er einföld. Nauðsynlegar framkvæmdir upp á 700 – 900 milljónir vegna breytinga á vigtarreglugerð stjórnvalda um uppsjávarfisk hafa tafist og fyrirséð varð að makríl yrði ekki landað í vinnslu félagsins á makrílvertíð þetta sumarið af þeim sökum. Áhrif þessara viðskipta á starfsmenn VSV eru skýr. Í stað þess að sjómenn uppsjávarskipa og starfsfólk uppsjávarvinnslu njóti tekna af makrílnum skapa þorskheimildirnar verkefni fyrir sjómenn á botnfiskskipum og og starfsfólk í botnfiskvinnslu. Viðskiptin færa þannig verkefni og tekjur milli greina og starfsmannahópa innan íslensks sjávarútvegs í stað þess að þau hverfi úr landi. Áhyggjur sjómannaforystunnar ,,Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers?“ spurði Gunnar Sigurðsson formaður VM í fyrirsögn greinarinnar. Hvernig kemst hann að þeirri niðurstöðu? VSV gat ekki unnið makrílinn vegna þeirra aðstæðna sem lýst hefur verið. Félagið brást við með því að skipta makrílheimildum fyrir þorsk sem hægt er að vinna hjá félaginu. Með því eru tryggð verkefni fyrir skip og vinnslu VSV í Vestmannaeyjum. Í færslum sínum höfðu forystumenn Sjómannasambands Íslands takmarkaðar áhyggjur af áhrifunum á landverkafólk og þjónustuaðila í Eyjum eða annars staðar þótt makrílnum yrði landað erlendis. Í færslunni sagði meðal annars: ,,Það væri gustuk að gera út á makríl og landa í Færeyjum eða Noregi ef útgerðina vantar aur í kassann“. Það vekur spurningar þegar löndun makríls erlendis er talin ásættanleg en viðskipti sem tryggja hráefni til vinnslu í Vestmannaeyjum sæta harðri gagnrýni. Verðmæti markaða Í grein Gunnars sagði hann einnig þetta um fjárfestingar VSV í Portúgal; ,,ef markmiðið með þessum breytingum er að færa meira hráefni til vinnslu erlendis blasir við önnur alvarleg spurning: Hvað þýðir það fyrir íslenskt verkafólk?“ Á undanförnum árum höfum við byggt upp verðmætan markaðsaðgang að þurrkuðum fiski á Portúgalsmarkaði með kaupum á Grupeixe árið 2019. Félagið þurrkar hefðbundinn blautverkaðan saltfisk og selur til veitingahúsa og stórmarkaða. Nýlega keypti VSV fyrirtækið ESBAL í Portúgal. Fyrirtækið sérhæfir sig í útvötnun og frystingu á blautverkuðum saltfiski og selur á sama hátt og Grupeixe, fisk til veitingahúsa og stórmarkaða. Þetta eru mikilvæg og nauðsynleg skref í átt að frekara markaðsstarfi eins og Kristján Vigfússon lektor benti á í viðtali á Sprengisandi fyrir stuttu. Í kjölfar þessara fjárfestinga hefur saltfiskvinnsla hjá VSV í Eyjum aukist úr 2.000 tonnum af þorski árið 2019 og stefnir í 7.000 tonn í ár. Það er meira en sem nemur aflaheimildum félagsins í þorski. Þróunin sýnir því að fjárfestingar VSV í Portúgal hafa stutt við aukna vinnslu og fjölgun verkefna í Vestmannaeyjum, en ekki flutning þeirra úr landi. Þessi staðreynd samræmist ekki þeirri mynd sem Gunnar dregur upp af áhrifum fjárfestinganna á íslenskt verkafólk. Eigi veldur sá er varar Á síðasta ári voru samþykkt lög um veiðigjöld sem fela í sér tvöföldun þeirra. Í umsögn sinni til atvinnuveganefndar Alþingis varaði Vinnslustöðin mjög við afleiðingum laganna. Þar sagði meðal annars að vegna áforma stjórnvalda um hækkun veiðigjalda yrði félagið að ráðast í umfangsmiklar hagræðingaraðgerðir. Þær aðgerðir eru nú fram komnar. Stöðugildi Vinnslustöðvarinnar voru 460 í kjölfar kaupa á Leo Seafood og Ós, en áætlað er að þau verði um 360 í ár. Félagið hefur fækkað starfsmönnum um 100, að stærstu hluta með lokun á Leo Seafood. Ástæður þessarar lokunar má finna hér. Þar til viðbótar seldi félagið Þórunni Sveinsdóttur til að létta á skuldum og féll frá fyrirhugaðri en brýnni endurnýjun á skipaflota sínum, sem er nú að meðaltali 32ja ára, eftir sölu Þórunnar. Þessu til viðbótar fara nú um 2 – 3.000 tonn af botnfiski (ýsu, karfa og ufsa), sem áður var unninn í Leo Seafood, á fiskmarkaði bæði innanlands og utan. Hvers vegna áhyggjur nú en ekki áður? Ég nefni þetta hér vegna þess að forystumenn verkalýðsfélaganna, að formanni Drífanda í Vestmannaeyjum undanskildum, hafa lítið haft sig í frammi til að setja sig inn í eða skilja ástæður þessara breytinga í rekstri VSV og áhrif á tekjur og atvinnu umbjóðenda þeirra. Sú spurning vaknar hvers vegna þessi tilteknu viðskipti með aflaheimildir kalla á hörð viðbrögð forystumanna sjómanna á sama tíma og lítið hefur farið fyrir opinberri umræðu þeirra um uppsagnir sjómanna og landverkafólks, sem hefur átt sér stað hjá fleiri fyrirtækjum en Vinnslustöðinni. Allt eru þetta ákvarðanir sem hafa bein áhrif á félagsmenn verkalýðshreyfingarinnar. Því er eðlilegt að kalla eftir samræmi í málflutningi forystumanna hennar og spyrja hvers vegna sumar ákvarðanir kalla á hörð viðbrögð en aðrar, sem hafa haft mun meiri áhrif á störf og afkomu félagsmanna, gera það ekki. Forsvarsmenn Vinnslustöðvarinnar eru reiðubúnir til að ræða þessar ákvarðanir og áhrif þeirra með opnum hætti. Sú umræða verður hins vegar að byggjast á heildarmyndinni og staðreyndum um reksturinn. Ekki er trúverðugt að gagnrýna ráðstöfun sem tryggir hráefni til vinnslu í Vestmannaeyjum en láta hjá líða að ræða aðrar og mun umfangsmeiri breytingar af hendi stjórnvalda sem þegar hafa haft áhrif á störf sjómanna og landverkafólks. Höfundur er framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjávarútvegur Mest lesið Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson Skoðun Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst? Hjörtur Hjartarson Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Stöndum með blaðamönnum Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar Skoðun Þess vegna segjum við NEI þann 29. ágúst Þorvaldur Þorvaldsson skrifar Skoðun Ég kýs JÁ ! - Hvers vegna? skrifar Skoðun Kveðja til hleðslukvíðans Úlfar Linnet skrifar Skoðun Samkeppnishæfni Íslands Ingvar Þóroddsson skrifar Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst? Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Traust er ekki sjálfgefið Hilmar Freyr Gunnarsson skrifar Skoðun Evrópusambandið, skjól frá Bandaríkjunum? Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar