Gunnlaugur Árni tekur þátt í Einvíginu á Nesinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. júlí 2026 21:32 Gunnlaugur Árni Sveinsson öðlaðist gríðarmikla reynslu á því að spila á Opna bandaríska mótinu, fyrstur Íslendinga. Getty/Christian Petersen Nýjasta stórstjarnan í íslensku golfi, Gunnlaugur Árni Sveinsson, verður með á árlegu góðgerðarmóti Nesklúbbsins, Einvíginu á Nesinu, sem verður haldið á frídegi verslunarmanna. Mótið er haldið í samstarfi við Arion banka og er þetta í þrítugasta skipti sem það fer fram.
Gunnlaugur Árni hefur verið að gera afar flotta hluti með golfliði Louisana State-háskólans þar sem hann var útnefndur íþróttamaður ársins í karlaflokki. Það sem gerði þetta sumar sérstakt fyrir íslenskt golf var að hann vann sér fyrstu íslenskra karlkylfinga sæti á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi. Gunnlaugur Árni verður ekki eina stjarnan sem tekur þátt því venju samkvæmt munu nokkrir bestu kylfingar landsins etja kappi hver við annan. Þar á meðal verða GR-ingarnir Tómas Eiríksson Hjaltested og Dagbjartur Sigurbrandsson sem eru tveir síðustu sigurvegarar einvígsins. Aron Snær Júlíusson hefur einnig unnið einvígið áður og það taka því þrír fyrrum sigurvegarar þátt í ár. Þrjár konur eru með í ár eða þær Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Perla Sól Sigurbrandsdóttir og Ragnhildur Kristinsdóttir en kona hefur aðeins unnið einvígið þrisvar sinnum og það eru komin átta ár síðan Ragnhildur Sigurðardóttir vann 2018. Guðrún Brá (2025, 2ö20, 2ö19, 2018), Ragnhildur (2023) og Perla Sól (2022) hafa allar unnið Íslandsmótið í golfi á síðustu árum. Að þessu sinni leika þeir í þágu Bergsins, sjálfstæðra, óhagnaðardrifinna samtaka sem veita ungu fólki gjaldfrjálsan stuðning vegna andlegrar líðanar og áskorana í daglegu lífi. Markmið Bergsins er að veita svokallaða lágþröskuldaþjónustu þar sem áhersla er lögð á aðgengilegan stuðning, ráðgjöf og fræðslu á forsendum unga fólksins. Arion banki mun afhenda forsvarsaðila Bergsins ávísun upp á eina milljón króna í lok móts. Einvígið hefst stundvíslega kl. eitt á mánudaginn. Fyrirkomulagið er með því sniði að sá fellur úr leik á fyrstu braut sem er fjærst holu eftir þrjú högg og tvö högg á annarri braut. Eftir það verður farið í hina hefðbundnu útsláttarkeppni, eða „shoot-out“, þar sem sá sem er með hæsta skor á viðkomandi braut fellur úr leik.
Golf Mest lesið Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Handbolti Haukar halda sigurgöngunni áfram Handbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Fótbolti Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Fótbolti Verðlaunafé fyrir karla og konur í tennis verði það sama Sport Ásaka Barcelona um að hafa borgað varaforseta spænskra dómarasamtaka Fótbolti Fleiri fréttir Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Sleppir verðlaunaafhendingu til að losna við herskyldu Tryggði sig á PGA-mótaröðinna þrátt fyrir að meiðsli enduðu næstum feril hans Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Stendur ekki til að hleypa LIV-kylfingum að Evrópa hafði betur gegn Bandaríkjunum Horfðu á golfmót í körfubíl Dagbjartur í góðum málum á úrtökumóti DP World Tour Aron Snær fékk albatross á úrtökumóti DP World Tour Ragnar bestur allra á úrtökumóti DP World Tour í dag Gunnlaugur Árni í samstarf með Nike: „Hefur mikla þýðingu fyrir mig“ Skulda Rahm og DeChambeau milljónir dollara Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Átta Íslendingar mætast í Þýskalandi Enduðu tíu ára sigurgöngu Bandaríkjanna Tryggðu sig í efstu deild Evrópumótsins með öruggum sigri Sjá meira