Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 24. júlí 2026 10:20 Hjúkrunarheimilið Hraunbúðir sést hér fyrir miðri mynd. Vísir/Atli Már Sæþórsson Úttekt embættis landlæknis á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum leiðir í ljós að ráða þurfi inn fleira fagmenntað starfsfólk þar sem lágmarksviðmið eru ekki uppfyllt. Ráðist var í úttekt eftir rannsókn lögreglu.
Í byrjun febrúar voru tveir starfsmenn Hraunbúða handteknir vegna rannsóknar lögreglunnar á andláti konu á tíðræðisaldri á hjúkrunarheimilinu. Nú í júlí var rannsókn hætt þar sem krufningarskýrslan hafi leitt í ljós að ekki sé grundvöllur fyrir því að halda rannsókn áfram. Í febrúar sömuleiðis tók embætti landlæknis sig til og hóf úttekt á starfsemi hjúkrunarheimilisins. Ástæðan er sögð vera alvarlegt atvik á stofnuninni en úttektin tók til atriða er varða stefnumörkun, stjórnun, starfshætti, gæði og öryggi þjónustunnar og mönnun. „Að mati embættis landlæknis er umbótastarf á Hraunbúðum á réttri leið og mikilvægt að því sé haldið áfram og fylgt eftir. Mikilvægt er að stjórnendur fái markvissan stuðning til að breytingar og umbótavinna sem í gangi er skili árangri,“ segir í úttektinni. Málningin flögnuð af handriðum Teknar voru saman átta ábendingar til að bæta starfsemi hjúkrunarheimilisins. Ein ábendinganna var að nauðsynlegt er að auka hlutfall fagmenntaðra í mönnun heimilisins þar sem þau ná ekki lágmarksviðmiðum. Algjört lágmarkshlutfall hjúkrunarfræðinga er tuttugu prósent til að tryggja öryggi íbúa en á Hraunbúðum er hlutfall hjúkrunarfræðinga tólf prósent. Sömuleiðis eru lágmarkshlutfall fagmenntaðs starfsfólks 57 prósent mannaflans en í raun eru þeir 27 prósent. Síðustu þrjú ár hefur starfsmannaveltan verið 35 prósent og tilefni til að ráðast í aðgerðir til að draga úr henni. Starfsánægja hefur verið töluvert undir viðmiðum. Þegar litið er til húsnæðis Hraunbúða telur embættið að framkvæma þurfi nauðsynlegar úrbætur. Til að mynda hefur málningin flagnað af handriðum og baðaðstaða er komin til ára sinna. Einnig er ekki hægt að koma rúmum út um herbergisdyr íbúa ef til rýmingar kæmi. Telur embættið að bæta þurfi upplýsingagjöf á heimasíðu til íbúa og aðstandenda en einnig bæta upplýsingagjöf til aðstandenda varðandi daglega starfsemi og breytingar á meðferð íbúa. Starfsfólk þarf einnig betri fræðslu hvað varðar sí- og endurmenntun og efla þarf öryggismenningu. „Embætti landlæknis leggur áherslu á að yfirstjórn HSU fylgi því eftir að stjórnendur Hraunbúða vinni úr atvikum og ráðist sé í úrbætur í kjölfar úrvinnslunnar sé þess þörf. Einnig bendir embættið á mikilvægi þess að stjórnendur ræði reglulega um mikilvægi atvikaskráningar og tilgang hennar við starfsfólk og kynni fyrir niðurstöður úrvinnslu atvika fyrir starfsfólki þannig að lærdómur hljótist af og umbætur eigi sér stað.“
Rannsókn á andláti í Hraunbúðum í Eyjum Vestmannaeyjar Lögreglumál Hjúkrunarheimili Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Fleiri fréttir „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli Sjá meira