Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. júlí 2026 12:01 JJ Gabriel var frábær með átján ára liði Manchester United í fyrra þrátt fyrir að hafa byrjað tímabilið fjórtán ára. Getty/James Gill Fimmtán ára framherji hefur verið valinn í aðalliðshóp Manchester United í fyrsta sinn fyrir vináttuleikinn gegn Rosenborg í kvöld.
JJ Gabriel vann verðlaun hjá átján ára liði United á síðasta tímabili þrátt fyrir að hafa aðeins verið 14 ára þegar tímabilið hófst. Strákurinn var með 26 mörk og 3 stoðsendingar í 26 leikjum í deildarkeppni átján ára liða. Hann er hluti af 25 manna ferðahópi Michael Carrick fyrir annan vináttuleikinn á undirbúningstímabilinu sem fer fram í Þrándheimi. Gabriel, sem verður ekki sextán ára fyrr en í október, er eina breytingin á hópnum sem tapaði 1-0 fyrir Wrexham í Finnlandi í síðustu viku, en framherjinn Ethan Wheatley dettur út. Manchester United teenager JJ Gabriel has been included in the senior squad to face Rosenborg in a pre-season friendly on Friday.The 15-year-old played a starring role for the Under-18s last term, recording an average of a goal per game in the league and scoring three in their… pic.twitter.com/ReJyet6IxS— The Athletic | Football (@TheAthleticFC) July 23, 2026 Þetta þýðir að það er ekkert pláss fyrir hinn átján ára gamla Tynan Thompson, sem kom frá Tottenham fyrir átta milljónir punda. Framherjinn Benjamin Sesko, markvörðurinn Karl Darlow og varnarmaðurinn Matthijs de Ligt eru allir fjarverandi vegna meiðsla. Búist hafði verið við því að Gabriel myndi taka einhvern þátt í undirbúningstímabili United í sumar í ljósi góðrar frammistöðu sinnar í gegnum unglingastarf félagsins. Gabriel, sem gæti skráð sig á spjöld sögunnar hjá Manchester United og orðið yngsti leikmaður félagsins frá upphafi ef hann spilar í keppnisleik fyrir 25. október, mun vonast til að fá að minnsta kosti nokkrar mínútur á vellinum. Í leiknum gegn Wrexham ákvað Carrick að stilla upp sínu sterkasta liði í fyrri hálfleik og skipta svo öllu liðinu út fyrir seinni 45 mínúturnar. Wheatley var meðal þeirra sem komu inn á í hálfleik, en ekki allir fengu að spila – útileikmennirnir Jim Thwaites og Chido Obi sátu á bekknum. JJ Gabriel is the #U18PL Player of the Season! 👏🏆 pic.twitter.com/b3ZF0elDnw— Manchester United (@ManUtd) May 12, 2026
Enski boltinn Manchester United Mest lesið Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Enski boltinn „Eyðileggur íþróttina“ Sport Tielemans biðst afsökunar Enski boltinn Uppgjörið: Víkingur-FC Thun 3-2 | Evrópudeildardraumurinn úti Íslenski boltinn Myndir af Haaland á stórri kókaínsendingu Fótbolti Skoraði þrennu á 92 sekúndum og bíður eftir staðfestingu frá Guinness Fótbolti Fabrizio Romano að hætta Enski boltinn Fleiri styðja UEFA frekar en Infantino Fótbolti Draumur Bolvíkinga rætist gegn risunum í íslensku golfi Golf Ronaldo hughreystir Messi: „Stórt faðmlag til þín og þinna nánustu“ Fótbolti Fleiri fréttir Carrick vill fá fleiri nýja leikmenn í Man United Neville svarar Lineker: Disney+ kaupir réttinn að The Overlap Orðaður við Chelsea og Manchester United en vill ekki fara Tielemans biðst afsökunar Þurfti að bíða í 212 daga eftir fyrsta leik með Villa: „Haaland í mótun“ Spurs samþykkir tilboð Atlético í Romero Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Arteta segir að Arsenal vilji gera meira á markaðnum Segir lykilatriði fyrir titilvonir Liverpool að ná í Barcola Fabrizio Romano að hætta Arsenal og Man. United unnu bæði í vító Chelsea heldur áfram að bæta við sig „gömlum“ leikmönnum Fenerbahce staðfestir Lukaku sem gæti haft áhrif á Jesus hjá Arsenal Tielemans segir að Manchester United sé stærra félag en Aston Villa Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Óvenjuleg leið á toppinn Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Inter Milan gerir tilboð í Spence Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Mourinho hringdi í Ferguson og grét „Mér líður frábærlega“ Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Eigandi Forest í mál við Crystal Palace vegna byssuborða Liverpool staðfestir samning við Barcelona um lánið á Araujo Højbjerg hafnaði Newcastle Everton og Crystal Palace skiptast á leikmönnum Mun Bezos verða eigandi Liverpool? Liverpool og Barcola náð samkomulagi Óvenjulegur vinskapur Haaland vekur athygli Sjá meira