Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Áróra L Davíðsdóttir skrifar 20. júlí 2026 22:56 Um sé að ræða bæði daglegar neysluvörur fólks, svo sem mjólkurvörur, áfengi og húsgögn, en einnig iðnaðarvörur eins og sement. Getty/Andrew Harnik Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur undirritað tilskipun um að leggja fimmtíu prósenta toll á ýmsar innfluttar vörur frá Kanada. Hann sakar Kanada um „ósanngjarna“ verðlagningu bandarískra vara þar í landi.
Tollarnir taki gildi 19. ágúst og eru til marks um verulega aukningu á spennu milli nágrannaríkjanna vestanhafs, segir í umfjöllun breska ríkisútvarpsins. Forsvarsmenn Hvíta hússins segi tollana mikilvæga til þess að vernda bandarísk fyrirtæki. Vörurnar sem tollarnir leggist á séu af ýmsum toga. Um sé að ræða bæði daglegar neysluvörur fólks, svo sem mjólkurvörur, áfengi og húsgögn, en einnig iðnaðarvörur eins og sement. Nokkrar útflutningsvörur verði undanskildar tollunum, eins og orka, pottaska og fiskur. Trump saki Kanada um að leggja skatt á bandarísk ökutæki og varahluti þeirra sem falli ekki undir gildandi fríverslunarsamning milli Kanada, Bandaríkjanna og Mexíkó. Hann segi Kanada hafa mismunað Bandaríkjunum með því að leggja ekki svipaðan skatt á innflutningsvörur annarra landa og segir það „óréttmætt.“ Á laugardaginn hótaði Trump að leggja tolla á Kanada vegna skógareldanma sem þar geisa í hundraðatali. Hann sakar Kanadamenn um gáleysi og að halda ekki skógunum sínum og sinu við. Í tilskipun Trump um tollana frá því í dag er hins vegar hvergi minnst á gróðurelda. Nýju tollarnir bætist ofan á þær viðskiptahindranir sem eru þegar í gildi milli þjóðanna tveggja. Bandaríkin haldi uppi 15 til 50 prósenta tollum á kanadískt stál, kopar og ál en Kanada hefur einnig lagt 25 prósenta toll á valdar bandarískar innflutningsvörur, svo sem bíla, stál og ál.
Donald Trump Bandaríkin Kanada Mest lesið Áslaug Arna í gervigreindina hjá CCP Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Neytendur Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Von á hóflegum hagvexti næstu árin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira