Krónan er ekki stríðsminjar – hún er megin ástæðan fyrir hagsæld okkar Eggert Guðmundsson skrifar 20. júlí 2026 17:00 Það er vinsælt að tala illa um krónuna. Hún er litli gjaldmiðillinn sem á að vera rót allra vandamála í augum margra. En þegar ég las grein Baldurs Péturssonar sem birtist í Vísi þann 18.júlí sl, þar sem hann lýsir krónunni sem “stríðsminjum“, sá ég aðeins eina hlið sögunnar – og hún er ekki sú hlið sem skýrir hvernig Íslendingar urðu ein mest velmegandi þjóð Evrópu. Greinin lýsir einnig Norræna myntbandalaginu sem gullöld stöðugleika. Það er rétt að kerfið var stöðugt — en það er líka rétt að á þeim tíma var Ísland fátækt land með litla framleiðni og vanþróað atvinnulíf og afar fátækleg lífskjör. Stöðugleiki gullfótarins tryggði ekki hagsæld fyrir okkur íslendinga en hann tryggði stöðugleika í fátækt, og því var það gæfa okkar að bandalagið hrundi í stríðinu og KRÓNAN varð að veruleika með sínum kostum og göllum. Því við Íslendingar urðum ríkari – eftir krónuna var tekin upp Kaupmáttur Íslendinga er í dag með þeim hæstu í Evrópu, og það er staðreynd sem erfitt er að horfa fram hjá. Meðaltekjur eru hærri en í flestum evruríkjum, sem sýnir að krónan hefur ekki grafið undan lífskjörum – hún hefur fylgt þeim upp. Atvinnuleysi á Íslandi er eitt það lægsta í Evrópu til langs tíma, sem er bein afleiðing af sveigjanleika í hagkerfinu. Lífslíkur Íslendinga eru með þeim hæstu í heimi, sem endurspeglar bæði hagsæld og stöðugleika samfélagsins. Þetta gerðist eftir að krónan kom til – ekki á tímum myntbandalagsins, þegar Ísland var fátækt og vanþróað land undir dönum. Krónan hefur bjargað okkur í áföllum – aftur og aftur Sveigjanlegt gengi er ekki veikleiki. Það er öryggisnet og styrkleiki.Gengisfallið 2008 bjargaði útflutningsgreinum og hraðaði endurreisn, á meðan evruríki sátu föst í stífu (stöðugu) kerfi. Veikari króna 2020 hjálpaði ferðaþjónustu að rísa upp hraðar en í ESB, sem skilaði Íslandi hraðari bata eftir heimsfaraldurinn. Árin 2023–2024 nutu útflutningsgreinar sveigjanleika krónunnar, á meðan evran var of sterk fyrir suðurríki ESB og dró úr samkeppnishæfni þeirra. Ef við hefðum verið með evru stöðulkeika í þessum áföllum, hefðum við einfaldlega setið föst. Atvinnuleysi hefði orðið hærra, endurreisn hægari og kaupmáttur lægri. Evran er stöðug – en stöðugleiki er ekki það sama og hagsæld Það er auðvelt að dást að evrunni. Hún er stór, sterk og stöðug. En stöðugleiki gjaldmiðils er ekki töfralausn eins og sumir ESB sinnar halda fram. Ítalía, Spánn, Portúgal og Grikkland hafa glímt við háa atvinnuleysi, stöðnun kaupmáttar og litla launahækkun, þrátt fyrir evruna. Skuldir þessara ríkja eru meðal þeirra hæstu í Evrópu, sem sýnir að evran leysir ekki sjálfkrafa efnahagsvanda landa meðð ólík hafkerfi. Evran hentar sumum ríkjum ESB– en alls ekki öllum. Litlu opnu hagkerfi eins og Íslandi hentar sveigjanleiki betur en stíf og stöðug mynt. Sjálfstæði þjóðar felst í getu til að bregðast við áföllum Það er rétt að hair vextir og verðbólga eru óþægileg hverju hagkerfi. En stærri spurning er þessi: Hvað gerist þegar áfall dynur yfir og við höfum enga leið til að bregðast við? Ef Ísland hefði verið með evru þá hefði Kreppan 2008 orðið dýpri og endurreisn hægari, því engin gengisfelling hefði verið möguleg. Ferðaþjónusta hefði hrunið 2020, því evran hefði haldið verðlagi hátt og samkeppnishæfni niðri. Útflutningsgreinar hefðu misst samkeppnishæfni, sem myndi bitna á launum og störfum. Laun hefðu hækkað hægar (og líklega lækkað) og kaupmáttur væri lægri, eins og gerðist í mörgum evruríkjum. Sjálfstæði er ekki að hafa sama gjaldmiðil og 350 milljónir manna. Sjálfstæði er að geta stýrt eigin hagkerfi. Krónan er því ekki minjar – hún er bjargvættur og aðal ástæðan fyrir hagsæld okkar nú í dag. Krónan hefur skilað hærri tekjum, sem sést í samanburði við flest evruríki skilað meiri kaupmætti, sem er mældur árlega og raðast í efstu sæti Evrópu, skilað betri lífskjörum, sem endurspeglast í lífslíkum og fátæktartölum, skilað hraðari hagvexti, sérstaklega eftir áföll, skilað lægra atvinnuleysi, sem er eitt af sterkustu efnahagslegu gæðamerkjum hvers lands og skilað sveigjanleika í áföllum sem evran getur ekki boðið upp á. Það er erfitt að finna evruríki sem hefur náð betri árangri á þessum mælikvörðum. Krónan er því ekki vandamálið. Hún er ástæðan fyrir því að við erum í dag ein best staddra þjóð Evrópu í lífskjaramælingum. Hún hefur galla – en hún hefur líka kosti sem hafa reynst okkur ómetanlegir. Sagan sýnir ekki að krónan hafi haldið okkur aftur. Sagan sýnir að hún hefur hjálpað okkur að rísa upp úr fátækt eftir að við töpuðum stöðuleika Norræna myntbandalagsins. Jón Sigurðsson myndi standa fremst í flokki forfeðra okkar til að fagna þeirri gæfu sem íslendingar hlutu við upptöku krónununar við hrun Norræna myntbanalagssins, því hann tengdi frjáls viðskipti við sjálfsforræði þjóðarinnar á sínum eigin forsendum. Höfundur er byggingafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Verðlag Íslenska krónan Mest lesið Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar