Golf

McIlroy pirraður á athyglissjúkum DeChambeau

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Rory McIlroy hefur ekkert sérstaklega mikið álit á Bryson DeChambeau.
Rory McIlroy hefur ekkert sérstaklega mikið álit á Bryson DeChambeau. getty/Richard Heathcote

Rory McIlroy sakaði Bryson DeChambeau um að halda Opna breska meistaramótinu í golfi í gíslingu. DeChambeau fékk tveggja högga refsingu á öðrum hring mótsins í gær.

DeChambeau lék annan hringinn á fjórum höggum undir pari og var í 2. sæti á eftir Lucas Herbert eftir gærdaginn. En hann fékk tveggja högga víti fyrir að laga legu boltans fyrir annað högg sitt á 5. holu vallarins. Eftir refsinguna færðist DeChambeau niður í 5. sætið á samtals fimm höggum undir pari.

DeChambeau ræddi lengi við regluverði áður en refsingin var kveðin upp í gær. Er McIlroy var spurður álits á máli DeChambeaus sagði hann að sá bandaríski hefði haft rangt við. 

„Ég held að það leiki enginn vafi á því að hann bætti baksveifluna,“ sagði McIlroy.

„Það skiptir ekki máli hvort þetta var kæruleysi eða viljaverk. Vonandi var þetta kæruleysi en hann verðskuldaði klárlega refsinguna.“

McIlroy var verulega pirraður á því hversu langan tíma allt havaríið tók en rástímar dagsins í dag voru ekki gefnir út fyrr en búið var að leysa úr máli DeChambeaus.

„Þetta var langt kvöld fyrir alla. Ég ætla ekki að þykjast verja Bryson. Ég er ekkert sérstaklega mikill aðdáandi hans. Ég held að margt af þessu sé gert fyrir athyglina,“ sagði McIlroy.

„Að halda móti svona í gíslingu og láta okkur alla, keppendur og sjálfboðaliða, bíða eftir því að hann fari leit ekki vel út.“

DeChambeau lék þriðja hringinn í dag á einu höggi undir pari og er samtals á sex höggum undir pari í 6. sæti. DeChambeau er fjórum höggum á eftir forystusauðnum Sam Burns.

McIlroy lék einnig á einu höggi undir pari í dag. Hann er samtals á tveimur höggum undir pari og situr í 29. sæti.

Bein útsending frá lokadegi Opna breska hefst klukkan 08:00 á Sýn Sport á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×