Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar 6. júlí 2026 12:07 Skýrsla Ríkisendurskoðunar um innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna sendir skýr skilaboð til stjórnvalda, sveitarfélaga og þeirra stofnana sem bera ábyrgð á þjónustu við börn og fjölskyldur. Þótt markmið farsældarlaganna séu bæði metnaðarfull og mikilvæg bendir skýrslan til þess að verulegar gloppur séu enn í framkvæmdinni. Ef ekki verður brugðist við þeim af festu er hætt við að væntingar laganna verði ekki að veruleika. Farsældarlögin voru sett til að tryggja að börn og foreldrar fái rétta aðstoð,á réttum tíma frá réttum aðilum. Markmið laganna er að þau sem vinna með börnum og fjölskyldum þeirra leggi sitt af mörkum til að tryggja að verndandi þættir séu til staðar í lífi allra barna. Starfsfólki sem vinnur með og fyrir börn er ætlað að vinna saman að farsæld þeirra og eru sérstakar skyldur settar á starfsfólk leik-, grunn- og framhaldsskóla, félagsþjónustu, íþrótta- og tómstundastarfs og heilbrigðisþjónustu. Tilgangur laganna er að bregðast við langvarandi vanda í íslensku velferðarkerfi. Of oft féllu börn og fjölskyldur á milli kerfa, ábyrgð var óskýr og þjónusta brotakennd. Markmið um að tryggja snemmtækan stuðning, samfellda þjónustu og skýrari samvinnu milli stofnana eru óumdeild. Börn eiga rétt á þjónustu sem tekur mið af þörfum þeirra og fjölskyldna þeirra, óháð því hvaða stofnun ber ábyrgð hverju sinni. Góð lög ein og sér tryggja ekki árangur Gagnrýni Ríkisendurskoðunar bendir meðal annars til þess að innleiðing hafi verið misjöfn, að skortur sé á samræmdum mælikvörðum og að sveitarfélög hafi ekki öll haft sömu forsendur til að sinna þeim verkefnum sem lögin fela þeim. Þegar slíkur munur er til staðar skapast hætta á að réttur barna ráðist að einhverju leyti af búsetu þeirra fremur en þörfum. Það er þróun sem enginn getur sætt sig við í samfélagi sem leggur áherslu á jafnræði og réttindi barna. Víða virðist skorta nægilegt fjármagn, mannafla og tæknilega innviði til að styðja við þá samþættingu sem lögin gera ráð fyrir. Þjónustukerfi sem eiga að vinna saman eru sums staðar enn að glíma við samskiptahindranir, ólíka verkferla og takmarkað upplýsingaflæði. Afleiðingin getur orðið sú að fjölskyldur upplifi ekki þá samfellu í þjónustu sem þeim var lofað og að börn fái ekki þann stuðning sem þau þurfa á réttum tíma. Félagsráðgjafar gegna lykilhlutverki Sú fagstétt sem gegnir lykilhlutverki við að hrinda markmiðum farsældarlaganna í framkvæmd eru félagsráðgjafar. Þeir eru oft fyrsta tenging barna og fjölskyldna við velferðarkerfið og bera víða ábyrgð á mati á þörfum, samhæfingu þjónustu og samstarfi ólíkra kerfa í þágu barnsins. Menntun og starf félagsráðgjafa byggir á heildarsýn á aðstæður fólks, þverfaglegu samstarfi og þeirri sannfæringu að árangursrík þjónusta verði aðeins veitt þegar ólík kerfi vinna saman. Reynslan sýnir að þar sem félagsráðgjafar hafa svigrúm, stuðning og nauðsynleg úrræði til að sinna hlutverki sínu aukast líkur á að þjónustan verði samfelld, markviss og byggð á þörfum barnsins. Ef skortur er á fagfólki eða vinnuumhverfi óviðunandi, er hætt við að markmið laganna náist ekki að fullu, óháð því hversu góður lagaramminn er. Ef ekki verður brugðist við Þegar samþætting þjónustu bregst geta afleiðingarnar komið fram í lífi barna. Þarfir eru síður greindar tímanlega, stuðningur kemur seinna fram og erfiðleikar geta magnast áður en gripið er inn í. Því lengur sem beðið er með að bregðast við, þeim mun meiri verður bæði samfélagslegur og mannlegur kostnaður. Snemmtækur stuðningur getur komið í veg fyrir umfangsmeiri og kostnaðarsamari úrræði síðar sem hefur áhrif á lífsgæði barna og fjölskyldna þeirra. Það væri sannarlega mistök að túlka niðurstöður Ríkisendurskoðunar sem sönnun þess að farsældarlögin hafi mistekist. Þvert á móti sýna þær hversu mikilvægt er að fylgja eftir þeirri stefnu sem mörkuð var. Viðvörunarljósin sem nú hafa kviknað kalla á markvissar úrbætur. Verkefnið er að tryggja að framkvæmdin standist þær væntingar sem lögin skapa. Stjórnvöld þurfa því að bregðast við af ábyrgð. Tryggja þarf að sveitarfélög og stofnanir hafi raunhæfar forsendur til að sinna lögbundnum verkefnum sínum. Það krefst fjárfestingar í mannauði, þjálfun fagfólks, þróun sameiginlegra verkferla og öflugra upplýsingakerfa. Jafnframt þarf að setja skýrari mælikvarða á árangur svo hægt sé að meta hvort börn og fjölskyldur fái í raun þá þjónustu sem lögin kveða á um. Það krefst jafnframt þess að tryggt sé að félagsráðgjafar og annað fagfólk sem ber uppi samþættingu þjónustunnar hafi svigrúm til að sinna lögbundnu hlutverki sínu. Að lokum Farsæld barna verður ekki tryggð með yfirlýsingum einum saman. Hún byggist á því að þau kerfi sem eiga að styðja börn og fjölskyldur virki í reynd. Gagnrýni Ríkisendurskoðunar er því ekki aðeins úttekt á framkvæmd laganna heldur áminning um að metnaðarfull markmið krefjast metnaðarfullrar framkvæmdar. Það þarf pólitískan vilja til að tryggja nægjanlegt fjármagn og úrræði svo farsældarlöginn nái tilgangi sínum. Ef ekkert er að gert munu börnin bera kostnaðinn og um leið allt samfélagið. Það er ábyrgð okkar allra að tryggja að þau viðvörunarljós sem nú hafa kviknað verði tilefni til aðgerða en ekki enn ein skýrslan sem fær að safna ryki í hillum stjórnsýslunnar. Höfundur er formaður Félagsráðgjafafélags Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Börn og uppeldi Mest lesið Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United Gauti Eggertsson Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen Skoðun Þess vegna já Arnór Sighvatsson Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Varanlegar undanþágur eru möguleiki Per Ekström Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson Skoðun Þreifað á „pakkanum“ Hlín Leifsdóttir Skoðun Upplýst lýðræði - Lærdómurinn af einni leiðréttingu Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Málefnið liggur á götunni Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er betra að vita en halda? Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Eitt lítið og saklaust skref í einu í átt til Brussel Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Þess vegna já Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun Smá standard, takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvernig getum við stöðvað innbrotaölduna í Reykjavík? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Upplýst lýðræði - Lærdómurinn af einni leiðréttingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fullyrðingar utanríkisráðherra um samningssvigrúm Íslands Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þreifað á „pakkanum“ Hlín Leifsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United Gauti Eggertsson skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur eru möguleiki Per Ekström skrifar Skoðun Hvernig lögum við vanstillt stjórnmál? Gunnar Már Gunnarsson skrifar Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Einfaldasta sagan er ekki alltaf sú sanna Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver fer í slíkar „samningaviðræður“? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sættum okkur ekki við atvinnuleysi Illugi Gunnarsson,Ragnhildur Björt Björnsdóttir skrifar Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar