Viðskipti innlent

Eitt app fyrir ferða­menn til að skemmta sér og forðast hættur

Lovísa Arnardóttir skrifar
Hugleikur og Stefán hafa síðasta árið unnið saman að appinu.
Hugleikur og Stefán hafa síðasta árið unnið saman að appinu. Vísir/Vilhelm

Einar Hrafn Stefánsson, Hugleikur Dagsson, The Reykjavík Grapevine og nýtt sprotafyrirtæki gefa í dag út nýtt app þar sem ferðamenn eiga að geta fengið allar upplýsingar sem þeir þurfa til að hafa gaman og forðast helstu hættur landsins.

Icebreaker, ný íslensk stafræn ferðalausn þróuð af sprotafyrirtækinu The Tourist Trapp, hefur það markmið að gera Ísland einfaldara fyrir erlenda gesti. Í tilkynningu segir að appið sameini staðbundna þekkingu, ritstýrt efni frá The Reykjavík Grapevine og myndheim eftir Hugleik Dagsson sem hefur teiknað sérsniðnar myndskreytingar, kortatákn og persónur fyrir appið.

Í appinu, Icebreaker, er hægt að finna upplýsingar um veitingastaði, viðburði, veður, bensínverð, bílastæði og margt annað. Í tilkynningu segir að á hverju ári heimsæki yfir tvær milljónir ferðamanna Ísland. Flestir treysti á Google Maps, úreltar umsagnir, Reddit og handahófskennd ráð af samfélagsmiðlum til að ákveða hvert þeir fara, hvað þeir borða og hvernig þeir ferðast um landið.

„Ég fékk þessa hugmynd, eins og margar aðrar hugmyndir, bara í sturtu fyrir svona rúmu ári síðan, vorið 2025,“ segir Einar Hrafn Stefánsson, einn forsprakka verkefnisins, tónlistarmaður úr Vök og Hatara og markaðsstjóri hugbúnaðarhússins Reon.

Skjáskot úr appinu. Icebreaker

Eitt app í stað margra appa

Hann segir það búið að vera í umræðu hversu mörg forrit fólk þarf í símann sem kemur til landsins og markmið þeirra sé að einfalda fólki lífið með því að geta sótt bara eitt forrit.

„Þú ert alltaf með eitt app til þess að leysa eitthvað eitt vandamál. Þegar maður setur sig í spor ferðamanns á Íslandi þá er þetta kaótískt umhverfi. Við erum svo stafræn hérna. Ég hef horft á ferðamenn lenda í sömu vandamálunum aftur og aftur,“ segir Einar.

Hugleikur teiknaði myndir í appinu. Vísir/Vilhelm

„Þeir vita ekki hvaða staðir eru raunverulega góðir, hvar þeir finna áreiðanlegar upplýsingar eða einfaldlega hvernig Ísland virkar. Á sama tíma eru framúrskarandi staðir, fyrirtæki og upplifanir sem margir komast aldrei í tæri við. Við byggðum Icebreaker til að hjálpa fólki að taka betri ákvarðanir, upplifa meira og lenda síður í túristagildrum.“

Einar býr í gamla Vesturbænum í Reykjavík þar sem hann rekst reglulega á ferðamenn sem hafa, til dæmis, klórað sér í hausnum yfir því hvernig og hvar þeir ættu að leggja bílnum sínum.

„Það er EasyPark og Parka og hvað þá með þessi hleðsluöpp. Þannig ég var oft einhvern veginn staddur í því að vera að hjálpa einhverju ferðafólki að sækja bílastæðaapp og leiðbeina því í gegnum þetta og þá fór ég að spá að það hlyti að vera einhver leið til þess að gera þetta ansi einfaldara.“

Einar fékk hugmyndina að appinu í sturtunni.Vísir/Vilhelm

Reyndi að átta sig á hvað hann vildi sjálfur

Hann hafi í kjölfarið byrjað að kortleggja stöðuna.

„Ég reyndi í rauninni bara að átta mig á því hvað ég myndi vilja sjálfur hafa ef ég væri ferðamaður, hvort sem á Íslandi eða einhvers staðar annars staðar, og byrjaði að telja upp hvað væri nokkuð einfalt að leysa.“

Það sé til dæmis hvar og hvernig eigi að leggja bíl og hvernig sé hægt að nýta afslætti, sem dæmi.

„Ég er algjör „coupon queen“ eins og það kallast, algjör „fríðinda-vildarklúbbakall“,“ segir hann og að þó svo að Íslendingar geti verið duglegir að nýta sér afslætti þá viti ferðamenn sjaldan af þessu afsláttarhagkerfi.

„Þannig mig langaði líka einhvern veginn, sérstaklega í ljósi þess að það er verið að kvarta yfir því að Ísland sé dýrt, það sé dýrt að koma hingað og dýrt að vera hérna. Maður vill ekki að það sé endilega stopper fyrir fólk til þess að geta komið og heimsótt landið okkar.“

Eftir það hafi hann svo kortlagt „happy hour“-tíma á börum og sett sig í kjölfarið í samband við Grapevine. Þar hafi hann mætt mikilli jákvæðni og þeir ákveðið að taka þátt.

Veitingastaðir og barir valin af Grapevine

Veitingastaðir, barir, kaffihús og afþreying í appinu eru því valin í samstarfi við The Reykjavík Grapevine, sem hefur gefið út árlegan „Best of Reykjavík“-lista frá árinu 2009.

„Þannig að þá fórum við að innleiða allt best of dótið sem Reykjavík Grapevine hefur verið að gera,“ segir hann og að Grapevine sé eins konar „sýningarstjóri“ á mat og drykk í Reykjavík.

„Enda með rosalega mikilvæga og vandaða rödd hvað varðar menningu og smekk.“

Hann segir að í dag sé það þannig að við búum á tímum þar sem hægt er að taka svona hugmynd og móta hana frekar fljótt. Hann hafi myndað lítið teymi sem hafi frá því síðasta vor unnið hörðum höndum að því að koma forritinu í loftið og það gerist formlega í dag.

Einar segir markmiðið með appinu einfalt: að ferðamenn þurfi ekki að hoppa á milli margra mismunandi appa til að skipuleggja ferðalag sitt um Ísland og geti þannig fundið upplýsingar sem er gott að vita til að koma í veg fyrir slys eða hættu.

„Það er bara í rauninni bara „have fun“ og „don't die“. Þetta eru svona tvenn skilaboð sem hafa bara leitt vinnuna. Við viljum að þú njótir þín, hafir gaman og reynir að forðast að lenda í einhverjum hremmingum.“

Icebreaker sameinar því á einum stað meðmæli frá The Reykjavík Grapevine, veður- og norðurljósaspár, bensínkort og bensínverð um allt land, bílastæði og samgönguupplýsingar, happy hour, afslætti og tilboð, viðburði, tónleika og menningarlíf, öryggisupplýsingar og viðvaranir auk þess sem hægt er í appinu að tala við Vin, gervigreindarferðafélaga sem svarar spurningum ferðamanna.

Appið er ókeypis og verður það alltaf að sögn Einars. Vísir/Vilhelm

Einar segir forritið þó líka eiga að aðstoða við skemmtun og því sé hægt að skoða viðburði í því og sjá þá á korti eftir tíma og dagsetningu.

„Þannig að þú getur séð einhvern spennandi viðburð og fengið leiðbeiningar þangað,“ segir hann.

Sem foreldri þótti honum svo líka mikilvægt að hafa í huga hvað væri hægt að gera með börnum og því er hægt að flokka viðburðina eftir því líka.

„Þó svo að þetta hafi verið þróað sem ferðamannaapp þá er mjög margt í þessu sem nýtist líka heimamönnum,“ segir hann.

Fyrst í Reykjavík og svo annars staðar

Hann segir að til að byrja með sé aðeins hægt að sjá viðburði í Reykjavík en þau stefni á að bæta við öðrum bæjarfélögum síðar.

„Þetta er fyrsta útgáfan og við ákváðum miðað við tímann sem við höfðum til þess að ná sumrinu að bara að fókusa á að gera Reykjavík og gera það vel. En svo er planið að bæta við restina af landinu. Við gerum það í skrefum.“

Hugleikur Dagsson, Einar Stefánsson og Steinar Þór Oddsson hafa unnið saman að appinu. Vísir/Vilhelm

Appið heitir Icebreaker sem er eins konar orðaleikur. Einar segist hafa farið í marga hringi með nafnið en endað á þessu.

„Mér fannst það lýsandi. Þetta er svona einhver leið til þess að einfalda aðgang að landinu okkar. Þetta er náttúrulega líka svona smá svona „punny“. Þú ert „on a break“, þú ert að koma hingað í frí. Það var svo sem ekki dýpra en það.“

Icebreaker er nú aðgengilegt fyrir iPhone í gegnum App Store. Android-útgáfa kemur í Google Play á næstu dögum. Appið er ókeypis í notkun.

„Við viljum brúa bilið á milli ferðamanna og þeirra fyrirtækja sem gera Ísland skemmtilegra, áhugaverðara og meira ekta,“ segir Einar að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×