Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Eiður Þór Árnason skrifar 2. júlí 2026 00:15 Einar Bárðarson hjá SVEIT segir að duglega fólkinu hafi verið refsað. Vísir/Anton Brink „Það er gul viðvörun á öllum en kannski svona 30 til 40 prósent eru á rauðu.“ Þetta segir framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði (SVEIT) aðspurður hversu mörg veitingahús á höfuðborgarsvæðinu hann telji vera í hættu. Verðlagshækkanir, há leiga, síðustu kjarasamningar og lán vegna heimsfaraldursins séu meðal þess sem plagi veitingafólk. „
Við höfum verið að tala því máli í svolítinn tíma að rekstrarskilyrði eru mjög erfið og við höfum verið að reyna að vekja athygli á því. Ekki vegna þess að við séum aumingjar og viljum láta vorkenna okkur heldur vegna þess að við viljum vernda þessa grein sem hefur aldrei verið öflugri í raun og veru og stærri heldur en núna,“ sagði Einar Bárðarson, framkvæmdastjóri SVEIT, í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Hann bendir á að mikill vöxtur hafi verið í fjölda veitingastaða eftir að sprenging varð í komum erlendra ferðamanna upp úr 2015. Í dag sé hægt að finna frábær veitingahús um allt land og flóran hafi sjaldan verið breiðari. Síðan hafi heimsfaraldurinn skollið á og veitingafólki verið gert að loka stöðum sínum. „Þú færð ekkert að ráða. Nú loka allir og hlýða Víði. Menn voru bara grjótharðir og mættu í búningum og bönkuðu upp á ef þú fylgdir því ekki.“ „Það reyndu allir að bjarga sér einhvern veginn. Sumir reyndar bara skelltu í lás og hugsuðu með sér: „Ég ræð ekkert við þetta.“ Aðrir fóru í að senda frá sér mat og þeir svona héldu einhverri ákveðinni veltu.“ Heimsfaraldur Covid-19 hafði mikil áhrif á rekstur veitingastaða.Vísir/Anton Brink Síðar hafi stjórnvöld boðið upp á rekstrarstuðning sem hafi reynst eigendum misjafnlega vel. „Þeir sem töpuðu nógu miklu fengu styrk, sem sagt ókeypis pening. En þeir sem töpuðu ekki nógu miklu fengu lán og þú varst ekkert í aðstöðu til þess að segja já eða nei, þú varst bara að taka annað hvort,“ segir Einar. Góðu kjörin stóðu ekki endalaust „Gott og vel, allir fengu einhver úrræði og svo var sagt: „Þú færð þetta lánað í einhvern ákveðinn tíma, svo koma sérstök lánavilyrði sem eru mjög gjaldgeng, ég man ekki 3–4 prósent eða eitthvað sem var sannarlega gott.“ Tveimur árum síðar hafi þau lán sem hafi ekki verið greidd upp breyst í samræmi við almenn lánakjör á markaði með tilheyrandi hækkun á vöxtum. Fámennt var á veitinga- og skemmtistöðum þegar samkomubann stóð sem hæst.Vísir/Vilhelm „Duglega fólkinu var refsað,“ segir Einar og tekur fram að hann hafi átt hlut í veitingastað í Smáralind á þessum tíma. Þessi lán geri það að verkum að sumir veitingastaðir séu enn að glíma við afleiðingar heimsfaraldursins öllum þessum árum síðar. Hver einasta stýrivaxtahækkun seðlabankans bítur þennan hóp, að sögn Einars. Kjarasamningarnir stór biti Einar segir að síðustu kjarasamningar Samtaka atvinnulífsins (SA) og Eflingar hafi sömuleiðis reynst veitingafólki illa. Hann fullyrðir að langflestir veitingastaðir hafi ekki fjárhagslega burði til að vera aðilar að Samtökum atvinnulífsins. „Það eru kannski svona sex til átta stór fyrirtæki sem hafa veltu og erindi þangað inn. Allir aðrir aðilar í veitingageiranum höfðu ekki aðkomu að þessum síðustu kjarasamningum.“ Einar hefur áhyggjur af stöðunni.Vísir/Anton Brink Samningsaðilar hafi sýnt mikla stillingu þegar kom að almennum daglaunum en í staðinn hafi forysta Eflingar fengið í gegn umtalsverða hækkun á launatöxtum fyrir eftirvinnu, næturvinnu og helgarvinnu. „Til þess að skilja aftur frústrasjón veitingamanna þar er að svona 70 prósent af söluþunga og þjónustuþunga veitingastaða á Íslandi fer fram á þessum tíma. Það eru bara eigendur og svona fast vaktafólk sem stendur vaktina miðjan daginn.“ „Þetta er eins og kanarífuglinn í námunni. Hægt og rólega eru þeir sem voru fallvaltir fyrir, kannski út af þessum lánum og öðru, að heltast úr lestinni og geta ekki meira.“ Hækkað um fimmtán prósent Þeir veitingastaðir sem reyna að halda sjó hafa fengið fleiri áskoranir í fangið, að sögn Einars. „Þú ert með gegndarlausar hækkanir frá birgjum. Það hafa verið allt að 15 prósent hækkanir núna á 12 mánuðum þegar ég talaði um það í febrúar.“ Ekki sjái fyrir endann á hækkunum. Matvara og ekki síður kjöt hefur hækkað mikið í verði síðustu ár. Vísir/vilhelm „Alltaf er einhvern veginn bent á veitingamanninn og að þetta sé allt komið upp í rjáfur og hvernig sé hægt að græða á þessu og svo framvegis og svo framvegis. En það er bara ekki svigrúm. Því að leigan hækkar, launin hækka gríðarlega og eru í raun og veru ekki í samhengi við neitt það sem gerist á Norðurlöndunum. Það er að segja 33 prósent kvöldálag og 45 prósent helgar- og næturálag. Á Norðurlöndunum sem við berum okkur saman við er þetta álag helmingi lægra.“ Funduðu með ráðherra Einar segir að SVEIT leiti allra leiða til að bæta stöðuna og hafi átt fund með atvinnuvegaráðherra fyrir um tveimur vikum. „Við ræddum þar á meðal áfengisgjaldið, hugsanlega skoðun á virðisaukaskatti, einhver svona tímabundin inngrip til þess að koma til móts við þetta að einhverju leyti.“ Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra.Vísir/anton brink „Atvinnuvegaráðherra tók ágætlega í okkar málflutning og hafði skilning á þessu, hefur verið að fylgjast með þessari umræðu en um leið erum við náttúrulega að reyna að átta okkur á því hvar er hægt að gera eitthvað.“ Kalla eftir breytingu á tryggingagjaldi „Auðvitað er stærsta kjarabótin að við náum einhverjum stöðugleika. Nú er ég farinn að tala eins og verkalýðsforingi, við verðum að ná einhverjum stöðugleika á vaxta- og verðhækkanir og verðbólguna fyrst og fremst.“ SVEIT hafi kallað eftir tímabundnum úrræðum sem gætu gilt í eitt til tvö ár en mestu máli skipti tryggingagjaldið sem atvinnurekendur greiða með hverjum starfsmanni. „Það væri svona stærsta málið og í raun og veru getur ríkið í dag fengið meira út úr því ef það væri stokkað aðeins upp á sanngjarnari hátt.“
Veitingastaðir Kjaramál Ferðaþjónusta Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Reykjavík síðdegis Verðlag Mest lesið Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Fleiri fréttir Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Sjá meira