Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Lovísa Arnardóttir skrifar 1. júlí 2026 21:35 Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra ásamt fulltrúum Náttúruverndarstofnunar og Seltjarnanesbæjar. Stjórnarráðið Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur staðfest stækkun friðlandsins við Gróttu á Seltjarnarnesi. Hið friðlýsta svæði er alls um 1,5 km² að stærð. Með endurskoðaðri friðlýsingu nái verndin nú einnig til Seltjarnar, sem er eitt mikilvægasta fæðu- og hvíldarsvæði fugla á svæðinu. Unnið var að friðlýsingunni í sex ár.
Í tilkynningu stjórnarráðsins kemur fram að stækkunin tryggi heildstæðari vernd fuglalífs og verðmætra fjöru- og grunnsævisvistgerða, sem myndi eitt mikilvægasta strandsvæði höfuðborgarsvæðisins. Stækkunin var unnin í samstarfi við Seltjarnarnesbæ, Náttúruverndarstofnun og Minjastofnun Íslands. Fjallað var um stækkunina á Vísi fyrr í vetur en þá kom fram að Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri taldi tillögu um friðlýsingu ganga of langt. Sjálfstæðisflokkurinn var klofinn í málinu og bæjarstjórinn greiddi einn atkvæði gegn tillögunni. Bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar samþykkti, með sex greiddum atkvæðum gegn einu, stækkun á friðlendi í Gróttu og Seltjarnar. Í tilkynningu stjórnarráðsins segir um svæðið: Grótta er eitt þekktasta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins og jafnframt eitt mikilvægasta fuglasvæðið. Þar verpa hundruð para af kríu á hverju sumri, en krían er ábyrgðartegund Íslands og nýtur sérstakrar verndar. Auk hennar verpa þar meðal annars æðarfugl, grágæs, tjaldur, sandlóa og stelkur. Á vorin og haustin er svæðið einnig mikilvægur viðkomustaður farfugla, svo sem rauðbrystings og sanderlu. „Vernd líffræðilegrar fjölbreytni hefst oft nær okkur en við gerum okkur grein fyrir. Með því að stækka friðlandið við Gróttu erum við að styrkja vernd mikilvægs fugla- og strandsvæðis um leið og við stöndum vörð um náttúruverðmæti sem eru hluti af daglegu lífi fólks og þúsundir njóta á hverju ári,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, í tilkynningunni. Með friðlýsingunni er jafnframt aukin vernd Seltjarnar, grunns strandsvæðis þar sem fjörur og grunnsævi skapa mikilvægar fæðuaðstæður fyrir fjölmargar fuglategundir. Þar er líka að finna sjaldgæfar og verðmætar vistgerðir, meðal annars fjörumó og sandmaðksleirur, sem eru ríkar af lífi og gegna lykilhlutverki fyrir fuglalíf. Í tilkynningu segir að sérstaklega hafi verið hugað að meðalhófssjónarmiðum til að gæta jafnvægis milli friðar fyrir fuglalíf á viðkvæmustu tímum ársins með tilliti til varps, og útivistar og íþróttaiðkunar á svæðinu. Uppfærð friðlýsing kveður á um að umferð um Seltjörn sé óheimil á tímabilinu 1. maí til 31. júlí, en Seltjörn er mikilvæg uppspretta fæðu fyrir varpfugla yfir varptímann ásamt því að vera hvíldarsvæði fuglanna. Eru takmarkanirnar, sem m.a. hafa áhrif á iðkun drekabretta, taldar nauðsynlegar til að ná fram tilætlaðri vernd á grundvelli laga um náttúruvernd, enda takmarkanir aðeins bundnar við þann tíma sem fuglalíf er hvað viðkvæmast. Byggt er á alþjóðlegum og innlendum gögnum við mat á áhrifum.
Seltjarnarnes Fuglar Umhverfismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Sjá meira