Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Jakob Bjarnar skrifar 1. júlí 2026 15:17 Björn Zoëga læknir er einn þeirra sem heldur erindi á fyrsta fundi hinnar nýju Nei-hreyfingar sem fram fer þann 6. júlí næstkomandi. vísir/ívar fannar Áfram Ísland er ný hreyfing sem vill berjast gegn Evrópuaðild og hún hefur nú boðað til fundar í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll þann 6. júlí. „Áfram Ísland er vettvangur fólks sem velur íslenska framtíð á eigin forsendum í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst. Áfram Ísland er helgað baráttu sem drifin verður áfram af jákvæðni og bjartsýni,“ segir í tilkynningu frá hreyfingunni. Þjóðþekktir einstaklingar á borð við Björn Zoëga lækni, Láru Herborgu Ólafsdóttur, lögmann og sérfræðing í tæknirétti, og Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseta Íslands, sem öll halda erindi auk Halldórs Benjamíns Þorbergssonar hagfræðings og fundarstjóra skipa hópinn. Halldór Benjamín Þorbergsson er meðal þeirra sem standa í stafni nýrrar hreyfingar gegn aðild að Evrópusambandinu.Heimar Nú gæti einhver sagt að þarna væri klofningur í Nei-hreyfingunni og fyrrnefnt fólk vildi með engu móti kenna sig við Heimsýn, hreyfingu sjálfstæðissinna í Evrópumálum sem hefur verið hvað mest áberandi í gegnum árin gegn aðild, þar sem fyrir fara þau Haraldur Ólafsson veðurfræðingur, Erna Bjarnadóttir hagfræðingur og Vigdís Hauksdóttir fyrrverandi þingmaður og borgarfulltrúi. En samkvæmt upplýsingum Vísis er málið ekki alveg svo einfalt. Haraldur Ólafsson veðurfræðingur er formaður Heimssýnar. Nú er komin ný hreyfing, Áfram Ísland, sem talar gegn aðild að Evrópusambandinu líkt og Heimsýn hefur gert um árabil.Vísir/Vilhelm Í samtali við einn þeirra sem tilheyra þessum hópi kemur fram að ekki sé um klofning að ræða. Fólk geti verið á móti aðild á gerólíkum forsendum. Hins vegar vilji nýja hreyfingin gagnrýna harðlega framlög Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra til málaflokksins. Hún útbýtti 10 milljónum til Heimssýnar og öðrum tíu til Evrópuhreyfingarinnar, sem talar fyrir aðild, í desember. Samkvæmt heimildum Vísis mun Áfram Ísland einkum líta til fordæma frá hópum svo sem Indefence, sem barðist hart gegn Icesave-samningunum á sínum tíma. Á þeim forsendum þarf ekki að undrast þó Ólafur Ragnar sé þarna innanborðs enda forseti á þeim tíma og hafnaði undirritun samninganna eins og frægt er orðið. Hvað sem því líður verður fundinum þann 6. júlí streymt og segir í tilkynningu að fólk sé hvatt til að koma saman og fylgjast með fundinum á heimilum og í byggðalögum um allt land. „Áfram Ísland er opinn vettvangur fyrir alla þá sem velja sjálfstæða framtíð Íslands. Fundurinn við Austurvöll er öllum opinn.“ Tilkynninguna í heild má sjá að neðan. Upphafsfundur Áfram Ísland í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll Áfram Ísland boðar til upphafsfundar í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll mánudaginn 6. júlí kl 17:00. Áfram Ísland er vettvangur fólks sem velur íslenska framtíð á eigin forsendum í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst. Áfram Ísland er helgað baráttu sem drifin verður áfram af jákvæðni og bjartsýni. Áfram Ísland er hreyfing fólks með fjölbreyttan bakgrunn og frá ólíkum sviðum íslensks þjóðfélags. Samnefnarinn er að íslenska þjóðin sé fullfær um að sækja fram um leið og hún tekst á við áskoranir sem við blasa hverju sinni. Stór hluti þjóðarinnar telur að Ísland sé land tækifæranna og að hagsmunum Íslands sé best borgið utan ESB. Heimasíðunni aframisland.is hefur verið hleypt af stokkunum og á næstu dögum verða þar birt nöfn aðstandenda Áfram Ísland. Á þeim lista fjölgar dag frá degi, enda er þetta opinn vettvangur og er áhugasamt fólk hvatt til að skrá sig til leiks á heimasíðunni. Ræðumenn á upphafsfundinum verða Björn Zoëga, læknir, Lára Herborg Ólafsdóttir, lögmaður og sérfræðingur í tæknirétti, og Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrv. forseti Íslands. Fundarstjóri verður Halldór Benjamín Þorbergsson hagfræðingur. Fundinum verður streymt og er fólk hvatt til að koma saman og fylgjast með fundinum á heimilum og í byggðalögum um allt land. Áfram Ísland er opinn vettvangur fyrir alla þá sem velja sjálfstæða framtíð Íslands. Fundurinn við Austurvöll er öllum opinn. Fréttin hefur verið uppfærð. Félagasamtök Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Erlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Innlent Fleiri fréttir Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Sjá meira
„Áfram Ísland er vettvangur fólks sem velur íslenska framtíð á eigin forsendum í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst. Áfram Ísland er helgað baráttu sem drifin verður áfram af jákvæðni og bjartsýni,“ segir í tilkynningu frá hreyfingunni. Þjóðþekktir einstaklingar á borð við Björn Zoëga lækni, Láru Herborgu Ólafsdóttur, lögmann og sérfræðing í tæknirétti, og Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseta Íslands, sem öll halda erindi auk Halldórs Benjamíns Þorbergssonar hagfræðings og fundarstjóra skipa hópinn. Halldór Benjamín Þorbergsson er meðal þeirra sem standa í stafni nýrrar hreyfingar gegn aðild að Evrópusambandinu.Heimar Nú gæti einhver sagt að þarna væri klofningur í Nei-hreyfingunni og fyrrnefnt fólk vildi með engu móti kenna sig við Heimsýn, hreyfingu sjálfstæðissinna í Evrópumálum sem hefur verið hvað mest áberandi í gegnum árin gegn aðild, þar sem fyrir fara þau Haraldur Ólafsson veðurfræðingur, Erna Bjarnadóttir hagfræðingur og Vigdís Hauksdóttir fyrrverandi þingmaður og borgarfulltrúi. En samkvæmt upplýsingum Vísis er málið ekki alveg svo einfalt. Haraldur Ólafsson veðurfræðingur er formaður Heimssýnar. Nú er komin ný hreyfing, Áfram Ísland, sem talar gegn aðild að Evrópusambandinu líkt og Heimsýn hefur gert um árabil.Vísir/Vilhelm Í samtali við einn þeirra sem tilheyra þessum hópi kemur fram að ekki sé um klofning að ræða. Fólk geti verið á móti aðild á gerólíkum forsendum. Hins vegar vilji nýja hreyfingin gagnrýna harðlega framlög Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra til málaflokksins. Hún útbýtti 10 milljónum til Heimssýnar og öðrum tíu til Evrópuhreyfingarinnar, sem talar fyrir aðild, í desember. Samkvæmt heimildum Vísis mun Áfram Ísland einkum líta til fordæma frá hópum svo sem Indefence, sem barðist hart gegn Icesave-samningunum á sínum tíma. Á þeim forsendum þarf ekki að undrast þó Ólafur Ragnar sé þarna innanborðs enda forseti á þeim tíma og hafnaði undirritun samninganna eins og frægt er orðið. Hvað sem því líður verður fundinum þann 6. júlí streymt og segir í tilkynningu að fólk sé hvatt til að koma saman og fylgjast með fundinum á heimilum og í byggðalögum um allt land. „Áfram Ísland er opinn vettvangur fyrir alla þá sem velja sjálfstæða framtíð Íslands. Fundurinn við Austurvöll er öllum opinn.“ Tilkynninguna í heild má sjá að neðan. Upphafsfundur Áfram Ísland í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll Áfram Ísland boðar til upphafsfundar í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll mánudaginn 6. júlí kl 17:00. Áfram Ísland er vettvangur fólks sem velur íslenska framtíð á eigin forsendum í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst. Áfram Ísland er helgað baráttu sem drifin verður áfram af jákvæðni og bjartsýni. Áfram Ísland er hreyfing fólks með fjölbreyttan bakgrunn og frá ólíkum sviðum íslensks þjóðfélags. Samnefnarinn er að íslenska þjóðin sé fullfær um að sækja fram um leið og hún tekst á við áskoranir sem við blasa hverju sinni. Stór hluti þjóðarinnar telur að Ísland sé land tækifæranna og að hagsmunum Íslands sé best borgið utan ESB. Heimasíðunni aframisland.is hefur verið hleypt af stokkunum og á næstu dögum verða þar birt nöfn aðstandenda Áfram Ísland. Á þeim lista fjölgar dag frá degi, enda er þetta opinn vettvangur og er áhugasamt fólk hvatt til að skrá sig til leiks á heimasíðunni. Ræðumenn á upphafsfundinum verða Björn Zoëga, læknir, Lára Herborg Ólafsdóttir, lögmaður og sérfræðingur í tæknirétti, og Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrv. forseti Íslands. Fundarstjóri verður Halldór Benjamín Þorbergsson hagfræðingur. Fundinum verður streymt og er fólk hvatt til að koma saman og fylgjast með fundinum á heimilum og í byggðalögum um allt land. Áfram Ísland er opinn vettvangur fyrir alla þá sem velja sjálfstæða framtíð Íslands. Fundurinn við Austurvöll er öllum opinn. Fréttin hefur verið uppfærð.
Upphafsfundur Áfram Ísland í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll Áfram Ísland boðar til upphafsfundar í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll mánudaginn 6. júlí kl 17:00. Áfram Ísland er vettvangur fólks sem velur íslenska framtíð á eigin forsendum í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst. Áfram Ísland er helgað baráttu sem drifin verður áfram af jákvæðni og bjartsýni. Áfram Ísland er hreyfing fólks með fjölbreyttan bakgrunn og frá ólíkum sviðum íslensks þjóðfélags. Samnefnarinn er að íslenska þjóðin sé fullfær um að sækja fram um leið og hún tekst á við áskoranir sem við blasa hverju sinni. Stór hluti þjóðarinnar telur að Ísland sé land tækifæranna og að hagsmunum Íslands sé best borgið utan ESB. Heimasíðunni aframisland.is hefur verið hleypt af stokkunum og á næstu dögum verða þar birt nöfn aðstandenda Áfram Ísland. Á þeim lista fjölgar dag frá degi, enda er þetta opinn vettvangur og er áhugasamt fólk hvatt til að skrá sig til leiks á heimasíðunni. Ræðumenn á upphafsfundinum verða Björn Zoëga, læknir, Lára Herborg Ólafsdóttir, lögmaður og sérfræðingur í tæknirétti, og Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrv. forseti Íslands. Fundarstjóri verður Halldór Benjamín Þorbergsson hagfræðingur. Fundinum verður streymt og er fólk hvatt til að koma saman og fylgjast með fundinum á heimilum og í byggðalögum um allt land. Áfram Ísland er opinn vettvangur fyrir alla þá sem velja sjálfstæða framtíð Íslands. Fundurinn við Austurvöll er öllum opinn.
Félagasamtök Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Erlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Innlent Fleiri fréttir Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Sjá meira