Sigurjón Þórðarson og sannleikurinn Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar 30. júní 2026 09:00 Alþingismaðurinn Sigurjón Þórðarson skrifar grein á vísi.is þar sem hann hefur áhyggjur af áhrifum aðildar að Evrópusambandinu á íslenskan sjávarútveg og sérstaklega sjávarbyggðir. Ég er honum sammála um að líklega verði afleiðingarnar miklar og neikvæðar, ekki bara fyrir sjávarbyggðir, heldur landið allt þegar til lengdar lætur. Aðal ástæða þess að við erum sammála er, eins og Sigurjón nefnir, áhrifaleysið. Þar nefnir hann sláandi dæmi um að samanlagður íbúafjöldi Raufarhafnar og Bakkafjarðar sem hlutfall af íbúafjölda Íslands (0,060%) sé sá sami og hlutfallslegur íbúafjöldi Íslands og Evrópusambandsins (0,088%). Auðvitað hafa menn allskonar sjónarmið um áhrif Bakkfirðinga og Raufarhafnarbúa á stjórnkerfi Íslands, en að óbreyttu og þegar til lengdar lætur verða þau líklega lítil sem engin. Sigurjón verður að fara rétt með staðreyndir Þrátt fyrir að við Sigurjón séum sammála um þennan þátt í greininni verður að gera þá kröfu til hans sem þingmanns og formanns fjárlaganefndar að rökstuðningur og tilvitnanir hans séu réttar og haldi vatni. Því miður er ekki svo. Í greininni vitnar Sigurjón til þess að ,,Vinnslustöðin lokaði á síðasta ári saltfiskvinnslu í Eyjum og jók síðan saltfiskvinnslu í fyrirtæki sínu í Portúgal“. Hvort tveggja er rangt og standast þær staðhæfingar ekki skoðun. Þessar upplýsingar hefði verið auðvelt að sannreyna áður en greinin var skrifuð og þannig komið í veg fyrir rangfærslurnar sem eru eftirfarandi: Í fyrsta lagi þá lokaði Vinnslustöðin fiskvinnslunni Leo Seafood á síðasta ári. Sú fiskvinnsla framleiddi aðallega ferskar og frosnar afurðir úr ufsa, en einnig þorski, ýsu og karfa. Í fréttatilkynningu sem Vinnslustöðin sendi út í kjölfar lokunarinnar kom fram að hluti þess fiskjar (aðallega þorsks) yrði unninn í saltfiskvinnslu Vinnslustöðvarinnar. Annar afli yrði seldur á markaði. Ástæða lokunarinnar var hækkun veiðigjalda sem þingmaðurinn, þá formaður atvinnuveganefndar, stóð fyrir og kynnti sér sérstaklega með lestri margra umsagna. Hér má finna grein sem tíundar ástæður lokunarinnar betur. Í öðru lagi þá keypti Vinnslustöðin framleiðslu- og sölufyrirtækið Grupeixe árið 2019. Grupeixe þurrkar og áframvinnur saltfisk sem saltaður er á Íslandi og Noregi, byggt á hundruð ára hefð. Áhrif þessara kaupa eru þau að árið 2018 saltaði Vinnslustöðin 2.300 tonn af þorski en 6.300 tonn á árinu 2025 í Vestmannaeyjum. Í ár er framleiðslan þegar komin yfir 6.000 tonn. Saltfiskvinnsla hefur því aukist í Vestmannaeyjum og kaupin eru því lykillinn að kröftugri saltfiskvinnslu Vinnslustöðvarinnar á Íslandi. Verður Ísland brothætt byggð? Sigurjón nefnir í greininni, svona í framhjáhlaupi, að aðrir flokkar en Flokkur fólksins hafi ekki áhuga á öðru en ,,jú, hækka eitthvað veiðigjöld eða lækka“. Hann var formaður atvinnuveganefndar í fyrra sem vann tillögur um tvöföldun veiðigjalda. Að mínu mati mun hækkun veiðigjaldanna hafa þau áhrif sem Sigurjón vísar til, að Ísland verði brothætt byggð. Með hækkun skatta og gjalda á sjávarútveg munu fyrirtækin leita leiða til að lækka annan kostnað. Annars vegar gerist það með því að vinnslur sem vinna úr verðminni fisktegundum leggja upp laupana, eins og í tilfelli Leo Seafood eða vinnslur sem sérhæfa sig í aukategundum hverfa. Hins vegar munu sjávarútvegsfyrirtæki hefja vinnslu á fiski í löndum með lægri framleiðslukostnað og ríkisstyrkir eru til fjárfestinga. Við þekkjum styrkjakerfi Evrópusambandsins í sjávarútvegi og framleiðslukostnað þar. Vandinn er bara sá að eftir því sem fiskurinn er fluttur lengra minnkar ferskleikinn og gæðin sem við erum að selja í íslenskum afurðum. Á endanum verður enginn gæðamunur íslensks fiskjar við samkeppnisþjóðirnar eins og t.d. í þorski á afurðamörkuðum þar sem íslenskur þorskur er að jafnaði verðmætari en sá norski. Kostnaðarmunur mun draga vagn breytinganna í átt að lækkun tekna þjóðarbúsins af sjávarafurðum. Áhrif auðlindagjalda á brothætta byggð Raufarhafnar Svipuð áhrif skattabreytinga má þegar sjá á öðrum sviðum atvinnulífsins. Í því samhengi er áhugavert að vísa í nýlega frétt á RÚV um áhrif auðlindagjalda (líka nefnt innviðgjald og/eða gistináttagjald) sem þegar eru fram komin í ferðaþjónustu. Sunnudaginn 28. júní síðastliðinn var frétt á RÚV um áhrif innviðagjalds á komur skemmtiferðaskipa til Raufarhafnar. Hækkun þess hafði gríðarlega áhrif. Með markaðssetningu tókst Norðurþingi að fjölga komum skemmtiferðaskipa. Árið 2017 tóku Raufarhafnarbúar á móti sínu fyrsta skemmtiferðaskipi og tókst að auka tekjur hafnarinnar og um leið samfélagsins umtalsvert. Með álagningu gistináttaskatts árið 2024 á hverja koju í skemmtiferðaskipi og síðar hækkun árið 2025 (nú innviðagjald) hurfu skipin og þar með skatttekjur ríkisins sem og tekjur íbúa, safna og sveitarfélagsins. Það mun taka íbúana og sveitarfélagið mörg ár að koma sér í sömu stöðu og fyrir skattahækkanirnar og skila þannig skatttekjum til sameiginlegs sjóðs okkar allra, ríkissjóðs. Segið satt frá og komið með röksemdir sem halda vatni Í opinberri umræðu verða þingmenn að fara rétt með staðreyndir og byggja málflutning sinn á rökum sem standast skoðun. Sömu kröfu geri ég til þeirra sem vilja hafna aðild að Evrópusambandinu, þar á meðal Sigurjóns Þórðarsonar. Höfundur er framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjávarútvegur Mest lesið Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar