Sálin tekin úr skólunum Ingibjörg Isaksen skrifar 25. júní 2026 07:01 Ræða Karls Frímannssonar, skólameistara Menntaskólans á Akureyri, við útskrift skólans 17. júní sl. hefur vakið mikla athygli. Þar lýsti Karl stöðu framhaldsskólanna af mikilli hreinskilni um leið og hann fullyrti að málefni framhaldsskóla hafi verið vanrækt um langt skeið, framtíðarsýn stjórnvalda sé óskýr og aðgerðaleysi hafi lengi einkennt málaflokkinn. Þegar skólameistari eins af elstu og virtustu framhaldsskólum landsins talar svo skýrt, þá eigum við að hlusta vel. Um svipað leyti og þessi orð féllu samþykkti Alþingi fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031 þar sem gert er ráð fyrir að fjárheimildir til framhaldsskólastigsins dragist saman ár frá ári allt til ársins 2031. Því er rík ástæða til að ræða stöðu framhaldsskólanna og þá stefnu sem stjórnvöld eru í raun að marka með þessum ákvörðunum. Á framhaldsskólastiginu er lagður grunnur að þeirri þekkingu, aðlögunarhæfni og seiglu sem einstaklingar og samfélag þurfa að búa yfir til að takast á við og nýta sér tækifæri komandi ára. Þar fær stór hluti þjóðarinnar einfaldlega þá menntun sem ræður för um framtíð þeirra. Þess vegna vekur það athygli þegar fjárveitingar til þessa mikilvæga hluta menntakerfisins dragast saman á sama tíma og stjórnvöld segjast leggja áherslu á þekkingu, nýsköpun og aukna samkeppnishæfni. Tölurnar tala sínu máli Samkvæmt nýsamþykktri fjármálaáætlun 2027–2031 lækkar fjárhagsrammi framhaldsskólastigsins um 190 milljónir króna milli áranna 2026 og 2027. Árið 2028 nemur lækkunin um 1,5 milljörðum króna miðað við árið 2026. Þegar horft er til ársins 2031 nemur niðurskurðurinn tæpum fjórum milljörðum króna. Rétt er að hafa í huga að fjárhagsstaða framhaldsskóla hefur verið þröng um árabil. Samkvæmt nýlegri umfjöllun (RÚV) voru 22 af 27 ríkisreknum framhaldsskólum reknir með halla árið 2024 og samanlagt eigið fé skólanna hafði á fáum árum farið úr tæpum milljarði króna í plús yfir í rúman milljarð í mínus. Staðan batnaði nokkuð árið 2025 en þá með viðbótarfjármagni á aukafjárlögum. Sú ráðstöfun leysir vandann hins vegar ekki til framtíðar. Samhliða þessu standa margir framhaldsskólar nú frammi fyrir þeirri kröfu fjármálaráðuneytisins að greiða niður uppsafnaðan rekstrarhalla á næstu árum. Þegar fjárheimildir dragast saman og skólum er um leið gert að greiða niður uppsafnaðan halla verður minna svigrúm til að sinna því hlutverki sem þeim er ætlað að gegna. Í stað þess að bregðast við þessari þróun er nú stefnt að lægri fjárheimildum. Það gerist á sama tíma og einn fjölmennasti árgangur sögunnar innritast í framhaldsskóla landsins, á sama tíma og margir skólar vinna að því að rétta af fjárhag sinn eftir rekstrarerfiðleika síðustu ára og á sama tíma og atvinnustefna ríkisstjórnarinnar byggir á því að aukin þekking og nýsköpun verði drifkraftur framtíðarhagvaxtar. Sálin tekin úr skólunum Guðjón Hreinn Hauksson, formaður Félags framhaldsskólakennara, hefur nýlega bent á að afleiðingar af frekari niðurskurði geti meðal annars falist í fækkun námsbrauta, skerðingu stoðþjónustu og minni þjónustu við nemendur. Hann hefur jafnframt varað við því að verið sé að taka „sálina úr skólunum“. Orðalagið er sterkt og áhrifamikið og það lýsir einmitt þeim áhyggjum sem víða heyrast innan skólakerfisins um að verulega sé þrengt að starfsemi sem hefur verið rekin við þröngan kost um langt árabil. Þetta eru áhyggjur sem stjórnvöld verða að taka alvarlega. Þeir sem standa vaktina Enginn sem þekkir til framhaldsskólanna efast um að kennarar og skólastjórnendur hafi staðið vaktina af fagmennsku og ábyrgð og það þrátt fyrir aukið álag, fjölbreyttari nemendahópa og sífellt flóknari verkefni. Til lengdar er ekki hægt að byggja eitt mikilvægasta kerfi samfélagsins á því að starfsfólk beri sífellt meira álag á sama tíma og þrengt er að rekstri. Þetta er sérstaklega mikilvægt þegar horft er til þess að stór hluti kennarastéttarinnar mun láta af störfum á næstu árum vegna aldurs. Ef starfsumhverfið heldur áfram að þyngjast án þess að stuðningur og fjármögnun fylgi með verður enn erfiðara að halda í reynslumikið fagfólk og laða nýja kennara til starfa. Kennarar þurfa stuðning, skýra stefnu og þau verkfæri sem nauðsynleg eru til að sinna starfi sínu vel. Þar skipta viðeigandi námsgögn, raunhæfar kröfur og traust rekstrarskilyrði miklu máli. Val um framtíðina Karl Frímannsson orðaði þetta vel þegar hann sagði að von væri ekki aðferð. Það á sérstaklega við nú þegar ákvarðanir um fjármögnun skólakerfisins liggja fyrir. Menntun verður ekki efld með óskhyggju, heldur skýrri stefnu, raunhæfri fjármögnun og markmiðum sem skila nemendum raunverulegum árangri. Í haust mun koma í ljós hvort ríkisstjórnin hyggst fylgja þessari hættulegu stefnu sinni eftir eða hvort hún er tilbúin að bregðast við þeim skýru viðvörunum sem berast úr skólakerfinu. Stjórnvöld hafa ítrekað lagt áherslu á mikilvægi menntunar, nýsköpunar og þekkingar sem undirstöðu framtíðarhagvaxtar. Ef sú sýn á að verða að veruleika þarf hún að birtast í ákvörðunum um sjálfbæra fjármögnun skólakerfisins. Höfundur er þingmaður Framsóknar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingibjörg Ólöf Isaksen Akureyri Framhaldsskólar Mest lesið Hver á lokaorðið? Hópur meðlima í Ungum gegn ESB-aðild Skoðun Verum ekki lítil - Ákall til ungu kynslóðarinnar Kristrún Ágústsdóttir Skoðun Það vaknar enginn með sæstreng í bakgarðinum Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Já til að sjá hvað? Geir Finnsson Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Pylsa á stærð við bankakerfi Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Við getum valið að hætta að rífast – um krónuna Dagbjört Hákonardóttir Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Amma og afi, plís ekki kjósa gegn okkur Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Fullveldi er ekki stofustáss María Kristín Gylfadóttir skrifar Skoðun Þarf kerfi sem er sjálft búið að greina skort á samfellu rof á samfellu meðan verið er að laga skort á samfellu? Spyr amma Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Á matur að vera ódýr? Sæmundur Jón Jónsson skrifar Skoðun Baráttan um Ísland Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Verum ekki lítil - Ákall til ungu kynslóðarinnar Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Af hverju þarf þolandinn alltaf að færa sig? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Er erfitt að taka ákvörðun? Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Hugrekki til að breyta Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fljótlegasta leiðin til að lækka verðbólgu og vexti er að segja NEI 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Ósýnileg stjórnarskrárákvæði Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Pylsa á stærð við bankakerfi Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Þarf kerfi sem er sjálft búið að greina skort á samfellu rof á samfellu meðan verið er að laga skort á samfellu? Spyr amma Kristín Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Fljótlegasta leiðin til að lækka verðbólgu og vexti er að segja NEI 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar