Golf

Gunn­laugur fékk ekki að klára hringinn en endaði á fugli

Aron Guðmundsson skrifar
Gunnlaugur á Shinnecock Hills vellinum í kvöld ásamt kylfusveini sínum og vini, Bjarka Péturssyni
Gunnlaugur á Shinnecock Hills vellinum í kvöld ásamt kylfusveini sínum og vini, Bjarka Péturssyni Vísir/Getty

Gunn­laugur Árni Sveins­son fékk ekki, líkt og nokkrir aðrir kylfingar, að ljúka fyrsta hring sínum á U.S. Open risamótinu í golfi í kvöld. Myrkur skall á og munu kylfingar sem ekki gátu klárað sinn fyrsta hring þurfa að ljúka honum fyrir annan hring á morgun. Gunn­laugur lauk deginum á frábærum fugli á annars krefjandi degi og er á níu höggum yfir pari.

Þessi tvítugi Ís­lendingur opnaði nýjan kafla í ís­lenskri golfsögu í kvöld með því að verða fyrsti íslenski kylfingurinn til að spila á U.S. Open risamótinu í karla­flokki. Mikil reynsla fyrir strákinn unga.

Segja má að þessi fyrsti hringur hafi reynt ansi mikið á Gunn­laug sem að gekk illa með teig­höggin sín. Hann byrjaði hringinn á pari og fékk tvo skolla á fyrstu fjórum holunum en lenti svo einni í tölu­verðu brasi á sjöttu holu, fór hana á átta höggum. Fjórum höggum yfir pari.

Skollarnir urðu alls tveir til viðbótar og var á brattann að sækja fyrir Gunn­laug sem sýndi þó styrk, lét deigan ekki síga og náði í lok dags, á fjórtándu holu, að sækja sinn fyrsta fugl og þar með fyrsta fugl Ís­lendings á þessu risamóti.

Gunn­laugur náði að leika fjórtán af átján holum vallarins á fyrsta hringnum og mun þurfa að leika þær fjórar holur sem eftir standa á morgun áður en hann heldur út í sinn annan hring.

Alls endaði Gunn­laugur daginn á níu höggum yfir pari. Það er rými fyrir bætingu hjá kappanum og hann mun bara eflast við þetta. Góð reynsla í bankann og spennandi að sjá hvað kylfingurinn ungi gerir á morgun.

Sýnt verður beint frá öðrum keppnis­degi U.S. Open á Sýn Sport á morgun. Út­sendingin hefst fyrr en vana­lega, eða klukkan hálf eitt í há­deginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×