Innherji

Gefur Al­vot­ech nauð­syn­leg svig­rúm og losar um ó­vissu sem vofði yfir fé­laginu

Hörður Ægisson skrifar
Lisa Graver er forstjóri Alvotech. Erlendir hlutabréfagreinendur, meðal annars frá norrænum bönkum, bregðast nokkuð vel við þeim tíðindum að Alvotech hafi lokið hlutafjárútboð upp á allt að ríflega tuttugu milljarða. 
Lisa Graver er forstjóri Alvotech. Erlendir hlutabréfagreinendur, meðal annars frá norrænum bönkum, bregðast nokkuð vel við þeim tíðindum að Alvotech hafi lokið hlutafjárútboð upp á allt að ríflega tuttugu milljarða.  Aðsend og Vísir/Vilhelm

Yfir tuttugu milljarða hlutafjáraukning Alvotech átti ekki að koma á óvart með hliðsjón af þróun lausafjárstöðu á fyrsta fjórðungi og áformum um áframhaldandi miklar fjárfestingar, að sögn erlendra greinenda, en þeir segja stjórnendur núna hafa meiri sveigjanleika til að mæta rekstrarþörf félagsins auk þess sem búið sé að styrkja og einfalda fjárfestasöguna. Mikil velta hefur verið með bréf félagsins frá opnun markaðarins vestanhafs í dag og gengið hækkað talsvert frá útboðsgenginu.


Tengdar fréttir

Sér mikil tækifæri með hliðstæðu við Simponi vegna tak­markaðrar sam­keppni

Alvotech gerir ráð fyrir því að vera komið með þrjár nýjar líftæknilyfjahliðstæður á Bandaríkjamarkað í árslok og horfir þar einkum til tækifæra með hliðstæðuna við Simponi, að sögn stofnanda og aðaleigenda félagsins, þar sem samkeppnin er „mjög takmörkuð.“ Hann segir Alvotech vera á ákveðnum „vendipunkti“ og að breytingar á regluverki FDA séu til þess fallnar að styrkja samkeppnisstöðu félagsins enda talsverðar aðgangshindranir fyrir nýja leikendur að koma inn á markaðinn.

Af­koma Al­vot­ech nokkuð undir væntingum og „sjóðs­staða þrengist“

Bæði tekjur og rekstrarhagnaður Alvotech á fyrsta fjórðungi var talsvert undir meðalspá greinenda en þar hefur meðal annars áhrif, að sögn stjórnenda, að hægja þurfti á framleiðslu vegna úrbóta á verksmiðjunni. Gengi bréfa Alvotech hríðlækkaði við opnun markaða en greinendur benda á að lausafjárstaða félagsins „þrengdist hratt“ á fjórðungnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×