Vann í „íslensku veðri“ og fagnaði með ís með pabba Sindri Sverrisson skrifar 15. júní 2026 09:01 Hulda Clara Gestsdóttir hélt í hefð um að hoppa út í tjörnina í Tékklandi og smellti svo kossi á glæsilegan verðlaunagripinn. LET Access Hulda Clara Gestsdóttir varð annar Íslendingurinn í sögunni til að vinna mót á LET Access, næststerkustu mótaröð Evrópu í golfi kvenna. Hún fékk sér sundsprett í tjörn á vellinum eftir sigurinn og kvaðst hafa notið sín vel í „íslenskum veðuraðstæðum“.
Hulda Clara gerðist atvinnukylfingur á síðasta ári og er nú þegar búin að vinna sitt fyrsta atvinnumannamót en það gerði hún með sigri á Czech Ladies Challenge í gær. Hulda Clara lék á pari vallarins alla þrjá hringina en mótið fór fram í um 60 kílómetra fjarlægð frá Prag í Tékklandi. Hún endaði höggi á undan hinni svissnesku Natalie Armbruester og tveimur höggum á undan Mou Svedenskiold frá Svíþjóð, eftir mikla spennu. Svo mikla raunar að Hulda Clara hélt að hún væri á leið í bráðabana gegn Armbruester, eftir að hafa fengið skolla á 16. holu. „Ég hélt í fyrstu að ég væri bara með eins höggs forskot, og að við værum á leiðinni í umspil. En svo fattaði ég að ég hefði unnið og það var mjög gaman,“ sagði Hulda Clara á vef Let Access sem hélt haus og landaði fræknum sigri þrátt fyrir spennuna. Aðeins Ragnheiður Kristinsdóttir hafði áður fyrst Íslendinga unnið mót á mótaröðinni, í fyrra, og Hulda Clara fetar nú í hennar fótspor. „Þetta er nýliðatímabilið mitt. Ég er ánægð með hvernig ég spila og líður stórkostlega. Ég bjóst ekki alveg við þessu svona snemma en ég er mjög ánægð. Þetta tekur pressuna af manni fyrir næstu mót. Ég er mjög ánægð að hafa náð hingað,“ sagði Hulda Clara sem naut þess að spila í vindi og rigningu með köflum. View this post on Instagram A post shared by The LET Access Series (@letaccess) „Þetta eru ansi íslenskar veðuraðstæður. Ég vissi að ef ég yrði þolinmóð og myndi einbeita mér að hverju höggi þá myndi ég eiga góða möguleika,“ sagði Hulda Clara sem var þegar búin að ákveða hvernig hún ætlaði að fagna sigrinum. „Ég er að fara til Prag með pabba mínum og flugið er ekki fyrr en á morgun, svo ég fæ mér eflaust einhverja dýrindis máltíð og svo ís til að fagna þessu.“
Golf Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Svakaleg endurkoma Joshua í fyrsta bardaga hans eftir bílslysið Sport Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Enski boltinn Óvæntasta stjarna HM fann sér nýtt félag Fótbolti Haaland kyndir undir Haaland-æði á samfélagsmiðlum Fótbolti Fleiri fréttir Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Guðmundur Oddsson látinn „Ég ætla ekki að segja neitt sem ég má ekki segja“ Rory var „fastur í hlutlausum“ allt mótið og segist vera á leið í frí „Ég fann ekki fyrir neinu við púttið því allt skalf svo mikið“ Scheffler segir DeChambeau „klárlega ekki vera svindlara“ Fox sýndi stáltaugar og vann sitt fyrsta risamót Young flaug inn í toppbaráttuna og Scheffler skammt undan Aron og Guðrún með forystu fyrir lokahringinn McIlroy pirraður á athyglissjúkum DeChambeau Burns leiðir á Birkdale og líkur á sögulegum sigri Sá þriðji sem jafnar vallarmetið Púttin að leika Scheffler grátt DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti DeChambeau einu höggi frá toppsætinu eftir fugla á lokaholunum Íslendingar í stórum hlutverkum á The Open Tveir kylfingar jafna besta hringinn á risamóti Stuttu pútti frá besta hring sögunnar „Of mörg heimskuleg mistök“ Hafði aldrei komið til Evrópu en nú er hann efstur á Opna breska Vonar að hann fái að halda áfram að reykja „Er það ekki fullkominn dagur? Golf og fótbolti“ „Ég sef í bílnum ef ég þarf“ „Ég er svo lélegur í golfi“ Ragnhildur hlaut hálfa milljón í þriðja sæti í Englandi Gunnlaugur Árni íþróttakarl ársins í LSU Íslensku liðin hófu leik á Evrópumótinu í holukeppni Gunnlaugur Árni vann Arnold Palmer-bikarinn Tveir íslenskir kylfingar í efstu tíu sætunum Bjargaði fugli úr tjörn í miðjum golfhring Sjá meira