Breski herinn stöðvaði skip úr skuggaflota Rússa Freyja Þórisdóttir skrifar 14. júní 2026 08:52 Emmanuel Macron Frakklandsforseti sagði frá því fyrr í júní að Frakkar hefðu stöðvað skip úr skuggaflotanum með stuðningi Breta. Getty Breski herinn stöðvaði skip úr skuggaflota Rússa á Ermarsundi snemma í morgun, að sögn Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands en aðgerðin stóð yfir í um sex klukkustundir. Hann segir þetta vera í fyrsta sinn sem breski herinn fer um borð í rússneskt olíuskip á Ermasundi.
Sérsveitarmenn úr Konunglega landgönguliðinu og sérþjálfaðir lögreglumenn frá bresku rannsóknarlögreglunni fóru um borð í olíuskipið, sem sætir viðskiptaþvingunum, að sögn varnarmálaráðuneytisins. En hinn svokallaði skuggafloti er floti skipa sem Rússar nota til þess að komast í kringum viðskiptaþvinganir vestrænna ríkja, til njósna og skemmdarverka í Evrópu. Skipið, Smyrtos, verði kyrrsett og fylgst verði með því með tilliti til umhverfis- eða öryggisáhættu undan suðurströnd Englands á meðan rannsókn standi yfir, bætti ráðuneytið við. Er þetta meðal þess sem erlendar fréttaveitur á borð við Al Jazeera og AP herma. „Þessi aðgerð er enn eitt áfallið fyrir Rússland og minnir þá sem fjármagna stríð Pútíns í Úkraínu á að þeir geta ekki falið sig,“ sagði Starmer í yfirlýsingunni en nýskipaður varnarmálaráðherra, Dan Jarvis, sagði einnig að „Rússland treysti á skuggaflota sinn til að fjármagna átökin í Úkraínu og íhlutun Breta sé áfall fyrir ólöglegt stríð Pútíns“. Ekki nægilegt fjármagn í ljósi ógnarinnar Í lifandi vakt The Guardian kemur fram að atvikið eigi sér stað dögum eftir að fyrrverandi hernaðarmálaráðherra, Al Carns, og varnarmálaráðherra, John Healey, hafi sagt af sér embætti eftir langvarandi deilur um fjárfestingaráætlun í varnarmálum. Þeir hafi sagt að áætlunin, sem hafi tafist ítrekað, væri verulega vanfjármögnuð og stæðist ekki þær kröfur sem varnarmálaráðuneytið þyrfti að uppfylla til að tryggja öryggi Bretlands á jafn óstöðugum tímum. Healey hafi jafnframt sagt að ríkisstjórnin væri aðeins reiðubúin að veita tíu milljarða punda, eða ríflega 1,6 milljarða íslenskra króna, í viðbótarfjármagn, upphæð sem hann sagði vera langt um minni en það sem þörf væri á í ljósi ógnarinnar frá Rússlandi og annarra stórra öryggisáskorana.
Rússland Bretland Frakkland Skipaflutningar Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira