Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 11. júní 2026 10:47 Kolbeinn Reginsson telur víst að meirihluti Kópavogsbúa sé á móti uppbyggingu nýs miðbæjar þrátt fyrir dræma þátttöku í undirskriftarlista. Vinir Hamraborgar segja það sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað nafn sitt undir undirskriftarlista þar sem skorað er á bæjaryfirvöld að endurskoða áform um þéttingu og uppbyggingu í miðbæ Kópavogs. Einn þeirra segir draumatölu undirskrifta vera 2500 en þegar þetta er skrifað hafa 187 skrifað undir. „
Það er sorglegt hve illa er tekið undir þennan undirskriftalista,“ skrifar Kolbeinn Reginsson fyrrverandi bæjarfulltrúi í Facebook hópinn Vinir Hamraborgar og vísar þar til undirskriftarsöfnunar hópsins. Gríðarleg breyting verður á Hamraborg í Kópavogi á næstu árum þar sem stendur til að reisa nýjan miðbæ og íbúðir. Undirskriftarlisti Vina Hamraborgar ber heitið „Björgum miðbæ Kópavogs“ og segist hópurinn þar vilja byggja fallegan og mannbætandi bæ en ekki niðurdrepandi háreist blokkahverfi. „Það að vera orðinn venjulegur og óbreyttur Kópavogsbúi aftur, við höfum svo fá tæki annað en Facebook til að koma þessu á legg, við erum reyndar komin með upp undir tvöhundruð undirskriftir og það er gaman að skoða samanburðinn, hvað það þýðir en sá flokkur sem fékk fæst atkvæði hann fékk þrjú hundruð, þannig við erum nánast að geta stofnað stjórnmálaflokk og Framsóknarflokkurinn fékk tvö þúsund, svo það eru nú ekki fleiri atkvæði á bakvið þessa flokka heldur en þetta og ef við getum safnað þessum undirskriftum, þá erum við komin með rödd,“ segir Kolbeinn í samtali við Vísi. Getur verið að þessi fjöldi undirskrifta sé til marks um það að Kópavogsbúar séu sáttir við nýjan miðbæ? „Það kemur þannig út. Það er bara alveg ótrúlega erfitt að fá fólk til að skrifa undir, því það þarf að nota rafræn skilríki, það vitum við því við höfum gert þetta áður og við vorum næstum því rög við að beita þessari aðferð. Ég fæ miklu fleiri læk á síðuna heldur en undirskriftir.“ Þú telur að meirihluti Kópavogsbúa sé á móti þessari uppbyggingu? „Ég setti þetta á hverfissíðurnar og undirtektirnar þar voru miklar. Ég veit að það er enginn spenningur fyirr því að fá þessar blokkir hérna upp og fólk getur ekki lesið teikningar og ég veit að fólk sem er núna í bæjarstjórn hefur aldrei getað lesið teikningar.“ Kolbeinn segir að það standi til að byggja fimm blokkir á pari við Engihjallablokkirnar á reitnum, með tveggja hæða bílakjöllurum. Aðeins lengra frá Hamraborg, á Traðarreitnum svokallaða eigi að byggja sjö átta hæða blokkir, með tvöföldum bílakjallara. „Þannig að fjöldi fólks sem getur búið hérna er á pari við þorp úti á landi. Ég bara spyr, ef meirihluti Kópavogsbúa vill þetta í staðinn fyrir það sem er, það er enginn miðbær í Kópavogi, ef þú berð þetta saman við miðbæ í Selfossi, Hafnarfirði, Garðabæ, þar er einhver miðbæjarmynd, hér er ekki einu sinni val um það hvernig þetta á að líta út sem íbúar myndu fá að kjósa um.“ Hann segist ekki endilega vilja að miðbærinn yrði byggður upp í svipuðum stíl og á Selfossi sem dæmi, þar sem nýr miðbær í norrænum stíl reis nýlega. Hann hafi ýmsar hugmyndir um útlit sem hann hafi deilt með Vinum Hamraborgar. Einhvern veginn svona myndi Kolbeinn vilja að nýr miðbær Kópavogs liti út. Gervigreind En eftir að þessi frétt birtist, þá hlýtur fjöldi undirskrifta að rjúka upp? „Vonandi. Segjum að við náum jafnmörgum atkvæðum og Framsóknarflokkurinn, sem er nú kominn í meirihlutasamstarf, við náum ekki níu þúsund eins og Sjálfstæðisflokkurinn, en þá erum við komin með dágóðan hóp sem mér finnst skipta máli.“ Hvaða tala er draumatala, sem væri þannig að þér þætti ekki vera hægt að líta framhjá undirskriftalistanum? „2500. Vegna þess að það er svipuð tala og Vinir Kópavogs fengu á sínum tíma og fengu þá tvo menn inn.“
Kópavogur Skipulagsmál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Fleiri fréttir Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ Sjá meira