„Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 11. júní 2026 10:00 Tölvugerð mynd af Hvammsvirkjun. Skeiða- og gnúpverjahreppur Náttúruverndarsamtök furða sig á niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur sem gaf í gær grænt ljós á virkjunarleyfi Landsvirkjunar vegna Hvammsvirkjunar. Dóminum verði að öllum líkindum áfrýjað.
Landvernd, Náttúruverndarsamtök Íslands, Náttúrugrið, Verndarsjóður villtra laxastofna og Íslenski náttúruverndarsjóðurinn gáfu frá sér tilkynningu í morgun þar sem þau segjast telja niðurstöðu dómsins ranga og að forsendur virkjunarinnar stangist á við landslög. Sérstaklega gagnrýna þau að dómurinn skuli ekki horfa til þess að Þjórsá hýsi stærsta náttúrulega stofn Atlantshafslaxins á landinu og einn allrastærstu stofnum laxins við Atlantshaf. Dómur var kveðinn upp í gær í máli landeigenda við Þjórsá á hendur íslenska ríkisins, Landsvirkjun og fleirum. Landeigendur kröfðust þess að virkjunarleyfi Landsvirkjunar vegna Hvammsvirkjunar yrði ógilt. Leyfið var gefið út í desember í fyrra eftir að Hæstiréttur hafði ógilt fyrra virkjunarleyfið í júlí sama ár. Útgáfa nýs leyfis var byggð á breytingu á raforkulögum og lögum um stjórn vatnamála. „Samtökin telja það ósvífni af hálfu forsvarsmanna Landsvirkjunar að segja að dómsmál og önnur kærumál tengd virkjuninni snúist um formsatriði en „ekki virkjunina sjálfa“ – þvert á móti snýst dómsmálið og baráttan gegn Hvammsvirkjun fyrst og fremst um vernd náttúru, samfélags og sérstaklega lífríkis Þjórsár sem er búsvæði eins mesta stofns Atlantshafslaxins,“ segir í tilkynningu samtakanna. „Ljóst er að deilunni um Hvammsvirkjun er ekki lokið enda hefur lögmaður landeigenda þegar lýst því yfir í fréttum að dóminum verði að öllum líkindum áfrýjað. Auk þess liggur kæra inni hjá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála vegna framkvæmdaleyfis Skeiða- og Gnúpverjahrepps og styðja náttúruverndarsamtök stefnendur í dómsmálinu í áframhaldandi baráttu fyrir vernd Þjórsár.“
Deilur um Hvammsvirkjun Dómsmál Umhverfismál Orkumál Landsvirkjun Vatnsaflsvirkjanir Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Fleiri fréttir Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Sjá meira