Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Aron Guðmundsson skrifar 11. júní 2026 09:29 Bergrós mun næstu daga standa í ströngu í undankeppni fyrir heimsleika CrossFit. Hún lentri í slæmri upplifun á dögunum en lætur það ekki draga úr sér á meðan að hún eltir draum sinn. Vísir/Samsett Bergrós Björnsdóttur hefur lengi dreymt um að komast á heimsleika CrossFit. Hún varð fyrir áfalli á Spáni á dögunum en lætur það ekki slá sig út af laginu. Hún fær einn lokaséns til að komast inn á heimsleika Crossfit í ár. Byrjar í dag og ætlar að keyra á þetta.
Í undankeppni fyrir heimsleikana í Ciudad Real á Spáni á dögunum lenti Bergrós í því að fá hitaslag og var hún flutt á nærliggjandi sjúkrahús eftir að hafa hvorki geta talað né gengið. Hún kláraði hins vegar leikana og var í séns á farmiða þangað komandi inn í lokadag mótsins. Það tókst ekki þá að tryggja sætið og skildi bitur reynsla eftir sig sár á sálinni sem er enn að gróa. „Ég kem inn í mótið og farmiði á heimsleika CrossFit undir. Ég ætla að gera hvað sem er til að ná honum. Ég gef allt í fyrsta WOD-ið. Þetta er út í hitanum og það er mjög heitt,“ segir Bergrós í samtali við íþróttadeild Sýnar. „Ég næ mjög góðum árangri, var mjög ánægð með WOD-ið en þetta byrjar beint eftir WOD-ið. Þar sem mér líður ekki vel. Mér fer að líða verr og verr. Ég kemst inn í skuggann aðeins, næ ekki að fá líkamshitann mikið niður. Þegar að ég var að labba til baka að bílnum þá fæ ég mjög slæma tilfinningu í öllu kerfinu og get ekki labbað lengur. Ég missti svolítið meðvitund þar, þarf að setjast niður og það er kallað á sjúkraliða.“ Tárast í hvert sinn sem hún hugsar um drauminn Óþægilegar aðstæður að vera í. „Ég var bara mjög hrædd. Fór með sjúkrabílnum upp á sjúkrahúsið og náði sem betur fer að taka mig saman sjálf. Það var ekki þörf á frekara inngripi. Ég er enn að reyna ná utan um þetta. Ég man heldur ekkert allt of mikið eftir þessu, var inn og út úr meðvitund. Ég fékk grænt ljóst til að halda keppni áfram en alla helgina var ég ekki ég sjálf. Alls ekki.“ Bergrós eltir áfram þennan stóra draum sinn að ná inn á heimsleikana og fær eitt tækifæri til viðbótar til að tryggja sig inn á leika þessa árs. Önnur undankeppni, sú síðasta sem í boði er fyrir Bergrós, hefst í dag. Sjö sæti á heimsleikana í kvennaflokki eru í boði. Bergrós er mjög nálægt draumnum. Spurning hvort hún nái að láta hann verða að veruleika í ár?Vísir/Lýður „Það er náttúrulega fullt af góðum konum að keppa. Ekki spurning. Mér líður hins vegar mjög vel með það sem að ég get. Ef ég næ að framkvæma hvert WOD fyrir sig eins vel og ég mögulega get líður mér mjög vel með þetta.“ Hvaða þýðingu hefði það fyrir þig að ná að gera þennan stóra draum að veruleika? „Í hvert einasta skipti sem ég hugsa um að komast á heimsleikana tárast ég. Mér finnst það segja svolítið mikið. Þetta er algjör draumur. Það myndi þýða allt saman fyrir mig.“
CrossFit Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Fleiri fréttir Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Sjá meira