OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Samúel Karl Ólason skrifar 9. júní 2026 11:48 Sam Altman er forstjóri OpenAI. AP/Jacob Hamilton Forsvarsmenn gervigreindarfyrirtækisins OpenAI hófu í gær formlega ferli hlutafjárútboðs, sem gæti átt sér stað í haust. Þá gæti reynt á það hve mikið fjárfestar eru sólgnir í að fjárfesta í gervigreindarfyrirtækjum en forsvarsmenn fyrirtækisins Anthropic, sem rekur gervigreindina Claude, stefna einnig að hlutafjárútboði um þetta leyti. Það sama má segja um SpaceX, sem rekur meðal annars gervigreindina Grok.
Öll fyrirtækin þrjú eru metin á gífurlegar upphæðir en SpaceX er fremst í kapphlaupinu að útboði. Þróun gervigreindar er samt langt frá því að vera stór hluti rekstrar þess en þeir hlutar snúa að geimferðum og gervihnattaþyrpingunni Starlink. Hlutafjárútboð SpaceX verður það stærsta í sögunni og gæti gert Musk að fyrsta billjónamæringi heims, í dölum talið. Sjá einnig: Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Í yfirlýsingu sem birt var á vef OpenAI í gær segir að forsvarsmenn fyrirtækisins hafi nýlega byrjað ferlið fyrir hlutafjárútboð, sem gæti átt sér stað í haust. Í yfirlýsingunni segir þó að ekki liggi fyrir hvenær það eigi að gerast, þar sem forsvarsmenn fyrirtækisins segjast vilja gera hluti sem er auðveldara að gera á meðan fyrirtækið er einkafyrirtæki. Ekki fylgir sögunni hvaða hlutir það eru en samkvæmt yfirlýsingunni gæti verið nokkuð langt í hlutafjárútboðið. Í frétt Wall Street Journal segir að innan OpenAI hafi yfirmenn fyrirtækisins áhyggjur af því að Anthropic verði á undan þeim í útboð. OpenAI hefur forskot á Anthropic þegar kemur að almennum notendum en fyrirtækið náði ekki eigin tekjumarkmiðum í nýjasta uppgjöri. Þá hefur Anthropic náð töluverðum árangri þegar kemur að því að eiga í viðskiptum við önnur fyrirtæki og varð fyrirtækið nýlega talið verðmætara en OpenAI. Það var metið á nærri því billjón dala (Tólf núll). Lauslega reiknað samsvarar það tæpum 123 billjónum króna (123.000.000.000.000). Forsvarsmenn bæði Anthropic og OpenAI hafa fengið þau skilaboð frá stærstu bönkum Bandaríkjanna að þeir sem verða fyrstir til að skrá sig á hlutabréfamarkaði muni geta haft gífurleg áhrif á framvindu mála hvað varðar gervigreindarfyrirtæki á mörkuðum vestanhafs. Þeir munu fyrstir hafa aðgang að aragrúa fjárfesta sem vilja ólmir fjárfesta í geiranum. OpenAI fékk nýverið umtalsvert fé í fjárfestingum frá fyrirtækjum eins og Amazon, Nvidia og Softbank eða um 122 milljarða dala. Fyrirtækið hefur safnað mun meira fé en Anthropic sem hefur gert því kleift að afla meiri reiknigetu en önnur gervigreindarfyrirtæki. Þetta hefur þó kostað fyrirtækið verulega en samkvæmt frétt WSJ benda gögn sem fyrirtækið deildi nýverið með fjárfestum til þess að útgjöld þess á næstu árum verði gífurleg og jafnvel meiri en útgjöld annars fyrirtækis í sögu hlutabréfamarkaða.
Gervigreind Bandaríkin Mest lesið Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Viðskipti erlent Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Viðskipti innlent Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Viðskipti erlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira