Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Agnar Már Másson og Áróra L Davíðsdóttir skrifa 9. júní 2026 11:47 Elkjøp, sem er upprunalega norskt vörumerki, rekur verslanir um öll Norðurlönd. Verslanirnar nefnast Elko á Íslandi, Elding í Færeyjum, Elgiganten í Danmörku og Svíþjóð, Giganten í Finnlandi, og Pisifik á Grænlandi. Á Íslandi er Elko í eigu Festi. Elkjøp Norska raftækjaverslunarkeðjan Elkjøp hefur verið sektuð í Noregi fyrir persónuverndarlagabrot á viðskiptavinum í svokölluðum kúnnaklúbbi. Brotið er sagt varða tæplega 6,7 milljónir viðskiptavina félagsins vítt og breitt um Norðurlöndin. Íslendingar þekkja verslanir vörumerkisins sem Elko. Persónuvernd á Íslandi kveðst ekki hafa haft aðkomu að málinu.
Persónuverndaryfirvöld í Noregi greindu frá þessu í tilkynningu í síðustu viku en sektin nemur 20 milljónum norskra króna (262 milljónum íslenskra króna). Málið tengist úttekt sem persónuverndaryfirvöld gerðu íjúní 2022 hjá Elkjøp Nordic AS og Elkjøp Norge AS, sem reka 400 verslanir á Norðurlöndum, eftir að persónuverndaryfirvöldum þar bárust tilkynningar um brot á persónuverndarlögum og kærur og ábendingar um viðskiptavinaklúbb fyrirtækisins. Að sögn norska eftirlitsins hafði Elkjøp ekki fengið gilt samþykki til þess að vinna úr persónuupplýsingum vildarklúbbsmeðlima en einnig segir eftirlitið félagið hafa enn ekki gert nauðsynlegar breytingar á vinnslu persónuupplýsinga. Elkjøp hafi heldur ekki svarað beiðnum viðskiptavina um réttindi sín innan frestsins sem persónuverndarlöggjöfin kveður á um, að sögn norskra persónuverndaryfirvalda. Upphæðin er ákvörðuð með hliðsjón af veltu samstæðunnar sem Elkjøp er hluti af. Þrátt fyrir að gjaldið sé hátt í krónum talið er það, að sögn Persónuverndar, lágt miðað við veltu samstæðunnar. Ákvörðun kunni að gæta Í tilkynningu kom fram að norsk yfirvöld hefðu unnið með persónuverndarstofnunum á Norðurlöndum. Raftækjaverslunin Elko á Íslandi, sem er í eigu fjárfestingafélagsins Festi, er með sérleyfissamning við norska félagið. Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar á Íslandi, segir aftur á móti í svari við fyrirspurn Vísis að Persónuvernd á Íslandi hafi ekki haft beina aðkomu að málinu. „Ákvörðun í málinu er eingöngu tekin í Noregi, þótt áhrifa hennar kunni að gæta annars staðar á Norðurlöndunum þar sem Elkjøp er með starfsemi.“ Þar sem Elkjøp Nordic og Elkjøp Norge AS hafi höfuðstöðvar í Noregi fari norska persónuverndarstofnunin með leiðandi hlutverk í eftirlitinu í þessu tilviki. „Þegar svona háttar til (þ.e. þegar höfuðstöðvar fyrirtækis eru annars staðar á EES-svæðinu en ákvörðunin getur haft þýðingu fyrir íbúa í öðru EES-landi) hefur Persónuvernd heimildir til þess að fylgjast með málinu og koma athugasemdum á framfæri við drög systurstofnunar sinnar að ákvörðun í því (þ.m.t. ákvörðun um að leggja á sekt). Þær heimildir voru hins vegar ekki nýttar í þessu tilviki,“ skrifar Helga.
Tækni Verslun Persónuvernd Noregur Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Sjá meira