Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. júní 2026 23:17 Gunnlaugur Árni Sveinsson spilaði frábærlega í dag og lét ekki eina slæma holu stoppa sig. mynd/LSU Gunnlaugur Árni Sveinsson verður meðal þátttakenda á U.S. Open risamótinu í golfi í ár eftir að hafa komist í gegnum bráðabana í kvöld. Hann er fyrstur Íslendinga til að tryggja sig inn á Opna bandaríska meistaramótið í karlaflokki.
Fjögur sæti voru í boði en fjórir voru jafnir í öðru sætinu og því þurfti bráðabana til að skera úr um það hverjir komast á risamótið. Úrslitin réðust strax á fyrstu holu bráðabanans þar sem Gunnlaugur Árni hélt haus og kláraði sitt. Þetta er þvílíkur árangur hjá okkar manni sem verður á meðal keppenda á Shinnecock Hills vellinum í næstu viku. Opna bandaríska meistaramótið verður að sjálfsögðu í beinni útsendingu á sportstöðvum Sýnar. Gunnlaugur Árni spilaði frábært golf á lokaúrtökumótinu í Ohio í dag þar sem spilaðar voru 36 holur og endaði Íslendingurinn knái, sem er á meðal bestu háskólakylfinga í heimi, á níu höggum undir pari líkt og þrír aðrir kylfingar. Hér fyrir neðan má sjá útsendingu frá bráðabananum á samfélagsmiðlum Golfsambands Íslands. View this post on Instagram A post shared by Golfsamband Íslands (@gsigolf) Gunnlaugur lék fyrri hringinn á 67 höggum en þann seinni á 68 höggum. Gunnlaugur Árni var um tíma í öðru sæti á seinni hringnum en varð fyrir áfalli þegar hann fékk skramba á fyrstu holu á seinni níu. Gunnlaugur byrjaði hringinn sinn á tíundu holu og það var því fyrsta hola vallarins sem reyndist honum svo skeinuhætt. Hann lék par fjögur holuna á sex höggum. Gunnlaugur datt niður töfluna en lét þetta áfall ekki buga sig heldur svaraði með tveimur fuglum í röð og þremur fuglum á næstu fjórum holum. Fyrir vikið hoppaði hann aftur upp fyrir línu og var meðal fjögurra efstu þegar þrjár holur voru eftir. Taugarnar héldu og hann paraði síðustu fjórar holurnar sem tryggði honum sæti í umspilinu. Aðeins efsti kylfingur umrædds móts hafði þá tryggt sér farmiða í gegnum lokaúrtökumótið á Opna bandaríska meistaramótið en Gunnlaugur og þrír aðrir kylfingar börðust um þá þrjá farmiða á mótið í bráðabananum. Þar lenti einn af þessum fjórum í vandræðum og setti boltann í vatnið. Hann náði ekki að bjarga sér og á sama tíma kláruðu hinir þrír sitt. Gunnlaugur Árni náði góðu teighöggi í bráðabananum og var í góðum málum eftir það. Hann komst upp með að missa stutt pútt en gerði nóg til að tryggja sig inn á opna bandaríska meistaramótið og skrifa nýjan kafla í íslensku golfsöguna. Gunnlaugur Árni verður fyrsti karlmaðurinn til að keppa á opna bandaríska risamótinu en Ólafía Þórunn Kristinsdóttir keppti tvisvar sinnum á opna bandaríska kvennamótinu. Valdís Þóra komst fyrst íslenskra kvenna inn á bandaríska meistaramótið í kvennaflokki árið 2017. View this post on Instagram A post shared by Golfsamband Íslands (@gsigolf)
Golf Opna bandaríska Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Íslenski boltinn Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð í miklum hitaleik Íslenski boltinn Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Kane lendir um helgina Körfubolti Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti Fleiri fréttir Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Sleppir verðlaunaafhendingu til að losna við herskyldu Tryggði sig á PGA-mótaröðinna þrátt fyrir að meiðsli enduðu næstum feril hans Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Stendur ekki til að hleypa LIV-kylfingum að Evrópa hafði betur gegn Bandaríkjunum Horfðu á golfmót í körfubíl Dagbjartur í góðum málum á úrtökumóti DP World Tour Aron Snær fékk albatross á úrtökumóti DP World Tour Ragnar bestur allra á úrtökumóti DP World Tour í dag Gunnlaugur Árni í samstarf með Nike: „Hefur mikla þýðingu fyrir mig“ Skulda Rahm og DeChambeau milljónir dollara Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Átta Íslendingar mætast í Þýskalandi Enduðu tíu ára sigurgöngu Bandaríkjanna Tryggðu sig í efstu deild Evrópumótsins með öruggum sigri Sjá meira